Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2017, Síða 48
Helgarblað 17.–20. febrúar 201744 Menning
Glæsibær · Sími: 571 0977 · Opið 10-18 · www.deluxe.is
Fjölbreyttar vörur og úrval meðferða
Andlitsbað með lúxusmaska eftir húðgerð hvers og eins, þar sem leitast er eftir því að ná fram því besta
fyrir húðina þína með hágæða vörum. Frábær slökun og vellíðan.
Meistaraleg ævisaga
F
áir höfundar hafa skrifað
ævisögur af jafn miklum þrótti
og innlifun og austurríski rithöf-
undurinn Stefan Zweig. Nokkrar
þeirra hafa komið út í íslenskri
þýðingu og má þar nefna ævisögur
Maríu Stúart og Maríu Antoinette og á
síðasta ári kom út ævisaga Erasmusar í
þýðingu Sigurjóns Björnssonar. Nýlega
kom svo þessi bók, Balzac, sem Sigur-
jón þýðir einnig.
Ævisaga Balzac var síðasta bók
Zweig og þótt hann hafi ekki fyllilega
lokið við hana ber hún þess ekki mik-
il merki. Á fáeinum stöðum má þó
finna endurtekningar og jafnvel mót-
sagnir. Bókin er gríðarlega skemmti-
leg aflestrar og skiptir þar mestu af-
burða stílgáfa höfundar. Zweig heillar
lesandann með frásagnargleði sinni
og sérlega tilþrifamiklum stíl sem
einkennist af flugeldasýningum. Bók-
in er sneisafull af afar skemmtileg-
um myndrænum lýsingum, eins og
þegar Zweig segir um Balzac: „Hann
talaði í síbylju og án þess að stansa og
slöngvaðist eins og fallbyssukúla inn í
hvert samkvæmi.“ Sannarlega hressi-
leg lýsing!
Eins og iðulega á við í ævisögum
Zweig þá er hann afar hrifinn af við-
fangsefni sínu og dregur ekki úr lýsing-
um. Hann á til að ýkja stórlega, en um
leið afar skemmtilega, eins og þegar
hann segir viljakraft Balzac hafa verið
svo mikinn að hann ekki hafa átt sinn
líka eftir að Napóleon var allur. Zweig
reynir þó engan veginn að fela hina
mörgu galla Balzac, enda veit hann að
það eru einmitt gallarnir sem gera okk-
ur að manneskjum. Á köflum bregður
Zweig sér í hlutverk umvöndunarsams
skólastjóra og les yfir hausamótunum
á Balzac fyrir að hafa gerst sekur um
bókmenntalegan sóðaskap. Á tímabili
var Balzac ansi stórtækur og stal sög-
um annarra, breytti þeim og eignaði
sér. Þetta þykir Zweig vitaskuld ekki
vera til eftirbreytni.
Balzac átti áhugaverða ævi, var
gríðarlega afkastamikill höfund-
ur sem lifði fyrir vinnu sína. Hann
átti alla tíð í miklu basli í fjármálum,
og gat sjaldnast öðrum um kennt en
sjálfum sér. Samt lærði hann aldrei af
mistökum sínum og fór ætíð úr einni
skuldasúpunni í aðra.
Í bók sinni dregur Zweig upp
heillandi mynd af manni sem var á
allan hátt stór í sniðum og ólíkur öll-
um öðrum. Skruddu er þakkað fyr-
ir útgáfu þessarar bókar. Það er hrein
unun að lesa texta Zweig sem Sigur-
jón Björnsson þýðir glæsilega. n
„Zweig heillar les-
andann með frá-
sagnargleði sinni og sér-
lega tilþrifamiklum stíl
sem einkennist af flug-
eldasýningum.
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Bækur
Balzac
Höfundur: Stefan Zweig
Þýðandi: Sigurjón Björnsson
Útgefandi: Skrudda
450 blaðsíður
Stefan Zweig
Einstakur ævi-
sagnahöfundur.
Metsölulisti
Eymundsson
9.– 15. febrúar 2017
Allar bækur
1 LögganJo Nesbø
2 Eftir að þú fórstJojo Moyes
3 Englar vatnsins Mons Kallentoft
4 Þögult óp Angela Marsons
5 ÖrAuður Ava Ólafsdóttir
6 Átta vikna blóð-sykurkúrinn
Michael Mosley
7 Stúlkan sem enginn saknaði
Jónína Leósdóttir
8 Tvísaga Ásdís Halla Bragadóttir
9 HeiðaSteinunn Sigurðardóttir
10 Vögguvísurnar okkarÝmsir höfundar
Jo Nesbø
Sigurjón
Björnsson
Þýðing hans
er glæsileg.