Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Qupperneq 2
vikublað 7.–9. mars 20172 Fréttir
Eldbakaðar pizzur
hafnargata 36a, kEflavík / nálægt flugstöðinni
salur
fyrir
hópa
sími 557 1007
hamborgarar,
salöt, pasta,
kjúklingavængir
og flEira
Lést á Grinda-
víkurvegi
Konan sem lést í umferðarslysi á
Grindarvíkurvegi um helgina hét
Guðrún Pálsdóttir.
Slysið varð aðfaranótt sunnu-
dags. Tildrög slyssins eru ókunn
en konan virðist hafa misst stjórn
á bílnum með þeim afleiðingum
að hann valt.
Guðrún var 45 ára gömul og
var til heimilis að Traðarbergi 3 í
Hafnarfirði.
Skiptum loks
að ljúka
Boðað hefur verið til skiptafund-
ar í þrotabúi Magnúsar Þorsteins-
sonar þann 20. mars næstkom-
andi þar sem skiptastjóri mun
kynna kröfuhöfum frumvarp til
úthlutunar úr þrotabúinu. Verði
andmælum ekki hreyft gegn
frumvarpinu telst skiptum lokið
á grundvelli þess. Þá verða rétt
tæplega átta ár síðan Magnús var
úrskurðaður gjaldþrota í Héraðs-
dómi Norðurlands eystra. Hann
hefur áður gagnrýnt harðlega
hversu langan tíma skiptin hafa
tekið og líkt þeim við skuldafang-
elsi en talið er að um Íslandsmet
sé að ræða. Samþykktar kröfur í
bú Magnúsar nema á þriðja tug
milljarða króna.
Kópavogsbúar ósáttir
Mótmæla byggingu fimm hæða húsa
Í
búar á Kársnesi í Kópavogi afhentu
Ármanni Kr. Ólafssyni, bæjarstjóra
Kópavogs, undirskriftir á mánu-
dag þar sem áformum um að reisa
tvö fimm hæða fjölbýlishús við Kópa-
vogsbraut 9 og 11. Þetta kom fram á
Facebook-síðunni Kársnesið okkar á
mánudag.
„Þessar byggingar munu
algjörlega eyðileggja ásýnd elsta
hluta Kársnessins og breyta sólríkum
unaðsreit í sannkallað skuggahverfi,“
segir í tilkynningu á síðunni. Íbúar
voru hvattir til að mæta í garðinn
við Kópavogsbraut 18 og sýna ráða-
mönnum að þeim sé ekki sama um
hverfið. „Höldum vöku okkar og
verndum Kársnesið okkar fyrir öllum
öfgafullum áætlunum sem skerða
lífsgæði þeirra sem fyrir eru.“
Fjölmargir íbúar hafa tjáð sig
á Facebook-síðunni þar sem óá-
nægju er lýst með fyrirhugaðar fram-
kvæmdir. „Hver er réttur til skaðabóta
ef af þessu verður? Bý í útsýnishúsi
fyrir ofan blokkirnar verðandi og
hefur það mikið virði fyrir mig,“ segir
einn íbúi í umræðunum. n
Mynd Sigtryggur Ari
Elísabet Ronalds
klippir Deadpool 2
n Þriðja samstarfsverkefnið með David Leitch n „Spennandi áskorun“
Þ
etta er ákveðin áskorun að
takast á við enda var fyrri
myndin mjög vel gerð,
skemmtileg og gekk alveg
glimrandi vel. Þannig að er
það búið að setja markið ansi hátt.
En það gerir þetta líka spennandi.
Ég hlakka mjög mikið til,“ segir
Elísabet Ronaldsdóttir klippari
en hún kemur til með að klippa
framhald hinnar geysivinsælu
Hollywood-kvikmyndar Deadpool.
Tökur á myndinni hefjast í Van-
couver í Kanada í júní næstkom-
andi og þá mun myndin rata í kvik-
myndahús á næsta ári.
Deadpool segir frá samnefndri
andhetju úr Marvel-teiknimynda-
söguheiminum og fer stórstjarnan
Ryan Reynolds með aðalhlutverkið.
Fyrri Deadpool-myndin varð einn
óvæntasti bíósmellur seinasta árs
og er nú orðin ein tekjuhæsta bann-
aða mynd allra tíma. Það er því ljóst
að ófáir bíða spenntir eftir því að sjá
hina kaldhæðnu og orðljótu and-
hetju birtast á tjaldinu á ný.
Skemmtilegur í samstarfi
Óhætt er að setja Elísabetu í hóp
með þeim færustu í bransanum
en hún hefur klippt margar af
stærstu íslensku kvikmyndunum.
Deadpool 2 er þriðja samstarfsverk-
efni Elísabetar og leikstjórans David
Leitch en áður hefur hún klippt
Hollywood-hasarsmellinn John
Wick, auk kvikmyndarinnar Atomic
Blonde með þeim Charlize Theron
og James McAvoy í aðalhlutverkum.
„Hann er einstaklega skemmti-
legur í samstarfi og opinn fyrir því
að prófa nýja hluti,“ segir Elísabet
um Leitch þegar blaðamaður slær
á þráðinn til hennar. Hún bætir því
við að stór hluti þeirra sem komu
að framleiðslu John Wick og Atomic
Blonde muni nú einnig koma að
gerð Deadpool 2.
„Þannig að þetta er virkilega
„solid“ og þéttur hópur og við kunn-
um vel inn á hvert annað. Við erum
mjög bjartsýn og jákvæð gagnvart
þessu öllu saman.“
Finnst gaman að þenja formið
Elísabet dvaldi í Los Angeles fyrr
á árinu og vann að gerð gerð kitlu
eða „teaser“ fyrir myndina sem
frumsýnd var á dögunum. Ekki er
þó um hefðbundna kitlu að ræða,
heldur nokkurs konar stuttmynd.
„Það sem gerir hana öðruvísi er að
hún er sjálfstætt verk, og þetta er
ekki sena sem verður í myndinni.“
Deadpool er að margra mati ein
áhugaverðasta myndasögupersóna
sem fram hefur komið undanfarin
ár en sérstaða sagnanna felst meðal
annars í því að persónan brýtur
reglulega fjórða vegginn og talar
beint til áhorfenda. Elísabet segir
að þannig skapist frelsi sem ekki
finnist annars staðar. „Mér finnst
mjög gaman að þenja formið og
skoða það – þetta afþreyingarform.
Það er svo spennandi að sjá hvað
maður kemst upp með, þá sérstak-
lega þegar maður vinnur í þessum
Hollywood-heimi.“
Ekki verður undan því skotist að
spyrja Elísabetu um dýrðarljómann
sem fylgir því að starfa við kvik-
myndagerð vestanhafs. Hún ger-
ir þó lítið úr honum og segir það
fjarri lagi að hún sé í daglegu sam-
neyti við stórar Hollywood-stjörn-
ur. „Ég hitti þær þó reglulega í
gegnum ferlið, því að þær hafa ver-
ið framleiðendur að þessum verk-
efnum. Og það er enginn sérstakur
dýrðarljómi, bara kaffi og fundir og
vangaveltur, og einstaka reykpása.
Nema Ryan reykir ekki.“ n
Auður Ösp guðmundsdóttir
audur@dv.is
Seinheppin hetja
Deadpool er ekki jafn fullkominn
og aðrar ofurhetjur.