Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Side 4
vikublað 7.–9. mars 20174 Fréttir
Fáanleg í ýmsum stærðum og útfærslum
Unnið hefur verið að þróun á smíði húsanna í mörg ár og er komin
mikil reynsla af byggingu þeirra við ólíkar aðstæður.
Gluggagerðin | Súðarvogi 3–5 | 104 Reykjavík | Sími 566 6630 | gluggagerdin.is
FALLEG ÍSLENSK SUMARHÚS
Þjóðleg
sumarhús sem falla
einstaklega vel að
íslensku landslagi
Guðni vill
landsdóm burt
Guðni Th. Jóhannesson, forseti
Íslands, vill leggja af landsdóm.
Þetta kemur fram í viðtali við for
setann í tímariti Lögréttu. „Ég
sagði það áður en ég tók við emb
ætti for seta Íslands og segi það
enn að í end ur reisn ar starf inu eft ir
hrun var feigðarfl an að nýta forn
og úr elt ákvæði um lands dóm.“
Geir H. Haarde var dæmdur
af landsdómi árið 2012, vegna
þess að hann hefði átt að halda
fleiri ráðherrafundi um mikilvæg
stjórnarmálefni fyrstu mánuði
ársins árið 2008.
Guðni segir það hafa sýnt sig
að niðurstaðan hafi sundrað frem
ur en að sameina, á versta tíma.
Niðurstaðan hafi ekki verið í sam
ræmi við það sem stefnt var að,
að þeir sem bæru pólitíska ábyrgð
myndu axla hana.
WOW air
stundvísast
WOW air var stundvísasta
flugfélagið af þeim flugfélögum
sem voru með flest áætlunarflug
frá Keflavíkurflugvelli í febrúar.
Þetta er samkvæmt tölum sem
Dohop hefur tekið saman. Þar
segir að 77 prósent alls flugs í
febrúar hafi verið á áætlun.
Um 80 prósent áætlaðra
flugferða WOW air hafi verið á
réttum tíma, sem er mikil framför
frá síðasta mánuði þegar um 57
prósent flugferða félagsins voru á
áætlun.
Þ
etta átti ekki að geta gerst,“
segir Bryndís Fjóla Ingimars
dóttir, móðir Bjarna Salvars
Eyvindssonar sem lést af
slysförum í SuðurAfríku
þann 18. febrúar síðastliðinn, en þar
hugðist hann að dvelja í tvær vikur.
Bryndís kveðst óendanlega þakklát
fyrir stuðninginn síðustu vikur en
hún er nýkomin heim frá Höfðaborg
þar sem hún dvaldi í nokkra daga til
að ganga frá hinum ýmsu málum er
tengjast andláti Bjarna.
Vildi enga aðstoð
„Þessi ferð var í senn erfið og gef
andi. Við hittum fólkið sem hann var
mest með, krakkana á barnaheimil
inu þar sem hann vann og sáum fá
tækrahverfið sem hann talaði svo
mikið um. Við fengum knús frá alls
konar fólki og allir í þorpinu vissu
upp á hár hver við vorum. Allir stóðu
við bakið á okkur.“
Líkt og áður hefur komið fram lést
Bjarni samstundis eftir höfuðhögg
þegar hann féll niður af útsýnissyllu á
Tafelbergfjalli við Höfðaborg.
Bjarni hafði verið í fjallgöngu með
tveimur félögum sínum þegar slysið
átti sér stað. Að sögn Bryndísar virðist
sem Bjarni hafi orðið viðskila við fé
laga sína eftir að hann ákvað að snúa
við. Félagarnir vildu halda áfram en
buðust til að fylgja honum niður „Þeir
vildu fara með honum niður en Bjarni
harðneitaði. En svo hefur hann hætt
við að fara niður og hélt áfram upp
fjallið.“ Strákarnir sem hann var með
voru heldur ekki þeir síðustu sem sáu
hann á lífi eins og talið var í fyrstu. Til
dæmis gaf bandarískur ferðamaður
sig á tal við Bjarna. „Þessi maður, sem
og fleiri göngugarpar sem sáu Bjarna
einan á ferð, buðu fram aðstoð sína
sem Bjarni afþakkaði.“
Þjakaðir af samviskubiti
Bryndís segir að á þessum tíma
punkti hafi ekki verið komið vont
veður á fjallinu líkt og greint var frá
í íslenskum fjölmiðlum skömmu
eftir slysið. „Þetta rok sem var talað
um kom síðar. Bakpokinn hans fauk,
skórnir hans voru týndir og fötin rifin
þegar hann fannst.“
Þá segir Bryndís að vinir
hans hafi verið þjakaðir af sam
viskubiti yfir að hafa skilið við
Bjarna á fjallinu. „Þeir kenndu
sér um þetta. Grey strákarnir.
Bæði ég og fósturpabbi Bjarna
sögðum við þá að þetta væri alls
ekki þeim að kenna. Þeir hefðu
ekki getað gert neitt öðruvísi.
Það var ekta Bjarni að afþakka
fylgdina og gera hlutina upp
á eigin spýtur, þrátt fyrir að
vera lögblindur. Hann var svo
gríðarlega þrjóskur og lét fötl
unina aldrei stoppa sig.“
Að ferðast til SuðurAfríku
var ekki fyrsta ferðalagið sem
hann lagði upp í einsamall
en Bjarni hafði áður ferðast til
Búdapest og London. „Bjarni
fór sínar eigin leiðir í lífinu
þrátt fyrir að hann gerði flest
með samþykki fjölskyldunnar. Hann
var mjög ábyrgur og átti sér marga
drauma. Ég hefði ekki getað stoppað
hann enda engin ástæða til.“
Á heimavelli
Bjarni var lögblindur sökum
fæðingargalla en hann fæddist með
skarð í augnbotninum. Hann var al
veg blindur á öðru auganu og með
20 til 30 prósent sjón á hinu. „Hann
átti að ganga með hvíta stafinn en
harðneitaði að gera það. Bjarni sá al
veg furðumikið. Hann fór til dæmis
oft í bíó og notaði símann sem
stækkunargler. Þá vann hann við af
greiðslustörf í 1011 og á frístunda
heimili fyrir börn.“
Bryndís segir son sinn alla tíð hafa
verið mjög barngóðan. Hann var á
heimavelli í frístundaheimilinu og í
SuðurAfríku var hann mjög hrifinn
af börnunum á barnaheimilinu sem
hann starfaði á vikuna áður en hann
lést. „Hann sendi mörg snöpp á okkur
og þar sést alveg hvað börnin sóttu í
hann og voru strax byrjuð að hnoðast
í honum. Það var alveg í hans anda
að velja þetta enda var táknið hans á
leikskóla „góður“. Hann var svo ótrú
lega hlýr og gefandi.“
Gefandi ferðalag
Ferðalagið til SuðurAfríku gekk að
sögn Bryndísar vonum framar. Á sama
tíma og það var sárt fyrir hans nánustu
að vera í umhverfinu sem Bjarni var í
dagana áður en hann lést þótti þeim
gott að kynnast fólkinu sem hann var
í mestum samskiptum við og tala við
þá sem komu að málinu.
Félagar Bjarna, sem voru með
honum á fjallinu áður en hann
lést, gróðursettu tvö tré og gerðu
matjurtagarð til minningar um
hann. Eitt limetré og annað appel
sínutré sem táknar „Bittersweet“.
„Síðan fengum við að heyra að það
eina sem Bjarni sagðist þurfa að gera
úti væri að kaupa afmælisgjöf handa
systur sinni sem á afmæli þann 19.
febrúar. Hann komst ekki svo langt.
Ég keypti afmælisgjöf handa henni
frá bróður hennar. Það er líka mikil
vægt fyrir okkur að andlát Bjarna sé
skráð 18. febrúar svo hún geti fengið
að eiga sinn afmælisdag áfram.“
Bryndís fékk að sjá son sinn og
kveðja hann eftir að hann var lagð
ur í kistuna í Höfðaborg. Líkið kom
til landsins síðastliðinn mánudag en
útför Bjarna fer fram í Vífilsstaða
kirkju mánudaginn 13. mars næst
komandi.
Kennitala: 1004773439, reikn
ingsnr: 014005071968. n
„Hann fór sínar
eigin leiðir í lífinu“
Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, móðir Bjarna Salvars, er þakklát fyrir stuðninginn síðustu vikur
Kristín Clausen
kristin@dv.is
Bryndís ásamt börnunum sínum
tveimur, Sigrúnu og Bjarna Bjarni átti
eftir að kaupa afmælisgjöf fyrir systur sína
sem átti afmæli daginn eftir að hann lést.
Bjarni Salvar Eyvindsson
Átti táknið „góður“ þegar hann var
í leikskóla. Móðir hans segir það
lýsandi fyrir persónuleika Bjarna.