Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Page 9
vikublað 7.–9. mars 2017 Fréttir 9
reiðaeigenda (FÍB), seg
ir þau slys sem hafa átt sér
stað að undanförnu, á bæði
Reykjanesbraut og Grinda
víkurvegi, séu með öllu óá
sættanleg. Fyrir utan þann
mikla mannlega harmleik
sem fylgir slysunum þá séu
þau gríðarlega kostnaðar
söm fyrir samfélagið.
„Alvarleg slys og
banaslys í umferðinni eru
óhemju kostnaðarsöm
fyrir utan þann mann
lega harmleik sem þeim
fylgir. Það fylgir því mikill
þjóðhagslegur ávinning
ur að draga úr slysum og
auka umferðaröryggi. Við
verðum sem samfélag að
standa myndarlega að
uppbyggingu og viðhaldi
vega,“ segir Runólfur og
bendir á að þessi mála
flokkur hafi verið vanrækt
ur í allt of langan tíma.
„Miðað við fjárlög fyr
ir árið 2017 þá má gera ráð fyrir að
innan við 22 milljarðar króna fari
til nýbygginga, viðhalds og þjón
ustu við vegi landsins. Þetta er um
1% af landsframleiðslu. Lengstum
áður fóru til vega um 2% af lands
framleiðslu og það er hlutfall sem
við sjáum hjá þeim þjóðum sem við
berum okkur saman við.“
En hvernig er hægt að bregðast
við strax?
„Það verður að forgangsraða í
framkvæmdum út frá umferðar
öryggi og umferðarmagni. Það þarf
einnig að tryggja öruggar og greið
ar samgöngur til að treysta byggð,“
segir Runólfur sem líst
ekki vel á hugmyndir
um að setja vegatoll
á Reykjanesbraut
og Suðurlandsveg til þess að flýta fyr
ir viðhaldi og uppbyggingu.
„Tekjur ríkissjóðs af bílum og um
ferð eru áætlaðar a.m.k. 70 milljarð
ar króna 2017. Skatttekjur ríkisins
af eldsneytissölu (fyrir utan virðis
aukaskatt) og af bifreiðagjaldinu eru
áætlaðar nærri 35 milljarðar króna.
Þetta er sú tala sem gert var ráð fyr
ir í samgönguáætlun sem samþykkt
var nær einróma rétt fyrir kosningar í
október 2016. Við hjá FÍB setjum fram
þá eðlilegu kröfu að þessir 35 milljarð
ar renni til uppbyggingar og viðhalds
vegakerfisins. Vegatollar eru auka
skattheimta og það að leggja vegatoll
á Reykjanesbraut
eða Suður
landsveg án þess að bera það
undir kjósendur í kosningum
er eignaupptaka gagnvart al
menningi.“
Sú eina sem lifði slysið af
Það er ekki hægt að skrifa
um Reykjanesbrautina eða
Grindavíkurveg án þess að
tala um þá miklu harmleiki
sem slysum á þessum vegar
köflum hafa fylgt. Ein kona
sem þekkir af eigin raun
hvernig er að missa ástvin í
bílslysi á þessum slóðum skil
ur ekki hvers vegna það tek
ur svona langan tíma að klára
tvöföldunina.
Hún heitir Sesselja Erna
Benediktsdóttir en hún lenti
í alvarlegu bílslysi ásamt föð
ur sínum þegar tvær bif
reiðar skullu saman á
Reykjanesbraut
inni. Fjórir voru
í bifreiðunum
tveimur og var
Erna sú eina
sem lifði bílslysið
af. Hún var þá
bundin í barna
bílstól, aðeins
fjögurra ára gömul.
Bílslysið varð til þess að
hópur íbúa á Suðurnesjum
lokaði Reykjanesbrautinni
fyrir allri umferð til þess að
þrýsta á úrbætur. Úr varð tvö
földun Reykjanesbrautarinnar
en aðeins að hluta.
„Ég skil ekki alveg af
hverju það tekur svona
langan tíma að klára að tvöfalda
Reykjanesbrautina. Ég get ekki hætt
að hugsa um það hversu margir
eigi eftir að láta lífið á þessum vegi
áður en stjórnvöld ráðast í úrbæt
ur. Hver dagur skiptir máli og það
er sárt að hugsa til þess að fólk þurfi
að missa ástvini sína svo embætt
ismenn átti sig á stöðunni,“ segir
Sesselja Erna sem steig fram í fyrra
sumar ásamt hópnum „Stopp, hing
að og ekki lengra“ en hann hefur
barist fyrir tvöföldun Reykjanes
brautarinnar frá því snemma á síð
asta ári. Í myndskeiði sem hópurinn
sendi frá sér segir Sesselja Erna frá
slysinu: „Árið 2000 lenti ég bílslysi
á Reykjanesbraut. Þar var ég í bíl
með pabba mínum og sofnaði hann
undir stýri. Lentum við á bíl með
öðrum hjónum. Ég kastaðist úr bíl
stólnum og var sú eina sem lifði af.
Stopp, hingað og ekki lengra.“
Sesselja Erna segir það blasa við
ef fólk skoðar umferðarslys á þessum
vegum að þeim hafi fækkað til muna
á þeim kafla sem nú þegar hefur ver
ið tvöfaldaður. Ekkert banaslys hafi
til að mynda átt sér stað. „Það hef
ur sýnt sig að þessi tvöföldun hefur
bætt öryggi til muna en samt er ekki
ráðist í það að klára að tvöfalda alla
leið? Hvar eru alvarlegustu slysin í
dag? Jú. Á þeim kafla sem ekki hef
ur verið tvöfaldaður. Ég verð bara
virkilega reið þegar ég frétti af þess
um slysum því ég veit hvað er hægt
að gera til þess að koma í veg fyrir
þau eða að minnsta kosti sporna við
þeim og fækka að miklu leyti. Það er
tvöföldun. Tvöföldun sem þarf að
koma strax. Ekki eftir ár eða tvö eða
þrjú, heldur strax í dag.“ n
Hafnarfjörður
Reykjanesbraut
n Fimm hafa látist og tuttugu og einn slasast alvarlega á einbreiðri Reykjanesbraut n Þrír látnir á Grindavíkurvegi n Þjóðhagslegur ávinningur að fækka slysum
m
y
n
d
l
a
n
d
m
æ
li
n
g
a
r
íS
la
n
d
S
Jóhannes Jóhannes lét eftir sig
sambýliskonu og þrjú börn. Honum er lýst
sem frábærum fjölskylduföður, dugnaðar
forki og það var alltaf stutt í brosið. Þá
var hann einlægur og hjálpsamur, sagði
Þorsteinn vinur hans í samtali við DV.
Berglind
Vinkona Berg
lindar lýsti henni
sem geislandi,
brosmildri og
fallegri konu.
„Berglind var ljúf
stelpa sem margir
koma til með að
sakna,“ sagði
vinkona hennar
eftir að Berglind
féll frá.
Sú eina sem lifði Sesselja var fjögurra ára þegar hún lenti í slysinu. Þrír létust.
8 DÁIÐ Á 9 Árum