Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Page 18
vikublað 7.–9. mars 2017
Heimilisfang
Kringlan 4-12
4. hæð
103 Reykjavík
fréttaskot
512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7000
512 7050
aðalnúmer
ritstjórn
áskriftarsími
auglýsingar
sandkorn
18 Umræða
Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson
Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson
Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur
Þingmenn girði sig í brók
Líkt og greint var frá í DV um liðna
helgi telja stjórnmálafræðingar
að sitjandi ríkisstjórn verði ekki
stjórn mikilla athafna. Til þess sé
hún einfaldlega of veik og of mikið
sundurlyndi innan hennar. Eirík-
ur Bergmann, prófessor í stjórn-
málafræði, sagði þar að besti vinur
ríkisstjórnarinnar væri núverandi
stjórnarandstaða. Sökum þess að
innan hennar sé algjör óeining,
einkum milli Framsóknarflokks
og hinna þriggja stjórnarandstöð-
uflokkanna, sé stjórnarandstað-
an algjörlega ófær um að bjóða
upp á raunhæfan valkost við rík-
isstjórnina. Af því leiði að stjórn-
in geti allt eins lullað í hægagangi
út kjörtímabilið. Ekki eru þetta
björgulegar lýsingar á stjórnmál-
um í landinu í dag. Veik og verk-
laus ríkis stjórn og sundruð stjórn-
arandstaða. Kjósendur hljóta að
gera kröfu á báðar hliðar að þar
hysji fólk upp um sig og sinni því
sem það var kosið til.
Maður margra andlita
Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannes-
son, maðurinn sem virðist ekkert
geta gert rangt, greinir frá því við-
tali að hann telji að afleggja beri
landsdóm. Fella
beri ákvæði um
hann úr stjórnar-
skrá sökum þess
að um fornt og
úrelt ákvæði sé
að ræða. Það hafi
enda sýnt sig að
niðurstaða dómsins eftir hrun hafi
fremur sundrað þjóðinni en hitt og
menn eigi að láta sér það að kenn-
ingu verða. Nú kann það allt að
vera rétt hjá forsetanum. Hitt er þó
áleitin spurning orðin hvers kon-
ar forseti Guðni ætlar sér að vera.
Er pláss fyrir alla þá persónuleika
sem Guðni bregður á loft í emb-
ætti forseta? Forsetann sem lætur
mynda sig með buff, forsetann
sem afþakkar launahækkun, for-
setann sem bannfærir ananas á
pítsur og forsetann sem beitir sér
varðandi lögskipan?
Magnús, eigandi United Silicon, var handtekinn. – DV
Ég bað lögregluna
um far í vinnuna
Þau hefðu ekki átt að deyja
J
óhannes Hilmar Jóhannesson,
34 ára. Berglind Heiða Guð-
mundsdóttir, 30 ára. Marínó
Nordquist, 37 ára. Alma
Þöll Ólafsdóttir, 18 ára. Guðrún
Pálsdóttir, 45 ára, og Linda Dröfn
Pétursdóttir, 54 ára.
Hvaða fólk er þetta sem hér er
talið upp? Jóhannesi Hilmari er m.a.
lýst sem glaðlyndum og jákvæðum
orkubolta. Hann eignaðist þrjú börn.
Afi Jóhannesar sagði þann 16. júlí í
fyrra:
„Það var ábyrgðarfullur en bjart-
sýnn ungur fjölskyldufaðir sem lagði
af stað að heiman til síðasta vinnu-
dags fyrir langþráð sumarfrí með
fjölskyldunni. Sólin brosti glatt og
engan grunaði að hamingjunni yrði
svipt í burtu á einu andartaki.“
Jóhannes er dáinn. Hann lést
í umferðarslysi á Reykjanesbraut.
Hin sem talin eru upp hér að fram-
an hvíla líka í kirkjugarði. Þetta er
ekki upptalning á öllum sem hafa
látist á Reykjanesbraut eða Grinda-
víkurvegi. Þau eru fleiri. Vinkona
Berglindar, Dagný Þórunn, segir að
Berglind hafi verið með stórt hjarta,
fallega sál og verið góð móðir. Linda
Dröfn átti eiginmann og þrjú upp-
komin börn og tvö barnabörn.
Alma Þöll lést þann 12. janúar á
Grindavíkurvegi. Guðrún Pálsdóttir
lést á þessum sama vegi þann 6.
mars síðastliðinn. Linda Dröfn
lést þann 24. febrúar eftir bílslys á
Reykjanesbraut. Á sunnudag varð
bílslys á svipuðum slóðum til móts
við Álverið í Straumsvík. Þá voru
fjórar manneskjur fluttar alvarlega
slasaðar á spítala. Ekki er vitað um
líðan þeirra á þessari stundu.
Íbúar á Suðurnesjum hafa barist
fyrir úrbótum á báðum þessum
vegarköflum en Reykjanesbraut er
fjölfarnasti vegarkafli landsins. Eftir
að Reykjanesbrautin var tvöfölduð
að hluta hefur ekki orðið banaslys á
þeim kafla. Eftir stendur vegarkafli
hvor sínum megin við tvöföldunina
sem getur verið stórhættulegur við
ákveðnar aðstæður. Og ekkert er
gert þrátt fyrir mótmæli Suðurnesja-
búa sem hafa fengið nóg af því að
kveðja fólk sem hefði aldrei þurft að
láta lífið með þessum hætti ef ráða-
menn hefðu lagt við hlustir. Raddir
íbúa hafa orðið háværari með hverju
dauðsfallinu. En lítið hefur verið að-
hafst. Ásmundur Friðriksson, þing-
maður Sjálfstæðisflokksins, hefur
greint frá því að ekki sé fyrirhugað
að fara í vegaframkvæmdir á þessum
einbreiða vegarkafla við Straumsvík
fyrr en árið 2019. Ásmundur hefur
sjálfur sagt að þessu verði að breyta
og óhætt er að taka undir það. Allt of
margir hafa ekki skilað sér heim.
Samkvæmt upplýsingum frá Fé-
lagi íslenskra bifreiðareigenda eru
skatttekjur hins opinbera af bílum
og umferð gróflega áætlaðar um 70
milljarðar á þessu ári. Ef fjárlög fyrir
árið 2017 eru skoðuð kemur í ljós að
35 milljarðar fara til Vegagerðarinn-
ar. Það þýðir samt ekki að allar þess-
ar þrjátíu og fimm þúsund milljónir
fari í nýbyggingar og viðhald vega því
nýverið tók Vegagerðin við nokkrum
vitum á Íslandi auk þess sem ein-
hverjar hafnir voru færðar undir
stofnunina. Taka má dæmi um nýju
Vestmannaeyjaferjuna. Hún fellur
nú undir Vegagerðina. Ef þeir lið-
ir, sem ekki tengjast beint vegakerfi
landsins, eru teknir burt standa eftir
22 milljarðar. Þetta er tæpt eitt pró-
sent af vergri landsframleiðslu en
var í kringum tvö prósent fyrir hrun.
Þrátt fyrir aukna umferð samhliða
ferðamennsku virðist sú pólitíska
ákvörðun hafa verið tekin að skera
niður í samgöngum. En banaslys
valda ekki aðeins sorg og lama lítil
samfélög. Þau kosta tugi og oftar en
ekki hundruð milljónir þegar allt er
tínt til. Það mættu þeir ráðamenn
hafa í huga sem halda fast utan um
budduna.
Tekin var ákvörðun um að flýta
mislægum gatnamótum við Krísu-
víkurveg sem átti að fara í á næsta
ári. Þær framkvæmdir verða boðnar
út á næstu dögum. Jón Gunnars-
son samgönguráðherra hefur sagt
að hann vilji draga úr slysahættu á
Reykjanesbraut. Nú þarf hann að
bregðast við og flýta framkvæmdum
og helst hefjast handa á þessu ári. Ef
stjórnvöld gera það ekki verður það
á þeirra ábyrgð ef afi og amma skrifa
á svipaðan hátt og Guðmundur og
Guðmunda, afi og amma Ölmu Þall-
ar, skrifuðu þann 12. janúar síðast-
liðinn
„Hjá ömmu og afa hlaðast upp
minningar um yndislegt ömmu- og
afabarn okkar sem alltaf kom bros-
andi með faðminn opinn og geisl-
aði af gleði […] Amma og afi þakka
henni fyrir allar góðu stundirnar sem
hún gaf okkur með sinni fallegu nær-
veru. Megi ljós Guðs vaka yfir þér og
vera þér allt um kring á þeim stað
sem þú dvelur nú.“ n
Myndin Morgunkaffi Hópur manna á besta aldri hefur um langt árabil hist í morgunkaffi á Kaffivagninum við Grandagarð og rætt lífsins gagn og nauðsynjar. Mánudagsmorguninn var engin undantekning. Mynd SiGTryGGur Ari
Dóttir Elsabetar lést úr heilahimnubólgu. – DV
Ég trúði honum. Hann er
læknir, ekki ég
Axel ingvason er langþreyttur á seinagangi vegna Dettifossvegar. – DV
Það er allt í lausu
lofti
Leiðari
Kristjón Kormákur Guðjónsson
kristjon@dv.is