Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Qupperneq 22
vikublað 7.–9. mars 20174 Gæðakaffi - Kynningarblað
„Allt hið góða sem getur
gerst, það mun gerast“
Álftanes Kaffi: Líffræðingurinn sem fór að reka kaffihús
M
örgum þykir gott að
geta haft það huggulegt
á kaffihúsi í göngufæri
við heimilið. Að sama
skapi þykir fólki gott eft-
ir langan vinnudag að geta tekið
heim með sér tilbúinn mat á stað
sem er skammt frá heimilinu, það
er óneitan lega heppilegra en að aka
í korter með pítsuna í bílnum.“ Þetta
segir Skúli Guðbjarnarson sem rek-
ur kaffihúsið Álftanes Kaffi ásamt
eiginkonu sinni, Sigrúnu Jóhanns-
dóttur. Staðurinn hefur fengið afar
góðar viðtökur allt frá því hann var
opnaður síðla árs 2015.
Skúli er líffræðingur að mennt og
áður var fátt sem benti til að hann
ætti eftir að reka kaffihús. En þar
spilar inn í að fyrir nokkrum árum
fékk hann brennandi áhuga á brauð-
bakstri. Á Álftaneskaffi baka þau
hjónin brauð, pítsur, sítrónukökur,
súkkulaðikökur, vöfflur og fleira.
„Það sem við seljum mest af eru
pítsur, súpur og brauð sem við bök-
um sjálf. Einhverra hluta vegna þykir
fólki brauðmetið okkar einstaklega
gott. Ég skil stundum ekkert í því, af
því ég er ekki lærður bakari heldur
líffræðingur að mennt. En ég fékk á
sínum tíma mikinn áhuga á brauð-
bakstri og það vill oft verða þannig
að það sem maður sinnir af ástríðu
heppnast vel. Ég hef alltaf gaman af
því sem ég geri hverju sinni og sökkvi
mér niður í það. Við notum súrdeig í
brauð og pítsur en þurrger í snúðana.
Í súrdeigsbrauðinu erum við bæði
með spelt og hveiti, graskersfræ,
hörfræ og Nigella-fræ. Þessi brauð
eru bara skrambi góð. Svo erum við
með þetta fína kaffi frá Kaffitári og
fólk er mjög ánægt með það. Í síð-
ustu viku kom til dæmis hópur af
Bandaríkjamönnum sem langaði í
latte og þeir sögðu að þetta væri besti
latte sem þau hefðu bragðað.“
Að sögn Skúla voru það fyrst og
fremst Álftnesingar sem sóttu kaffi-
húsið í fyrstu en fljótlega fór orðspor
þess að berast til nágrannabyggð-
anna og gestum fjölgaði mjög þaðan.
En fjölmargir erlendir ferðamenn
koma líka á Álftanes Kaffi enda hefur
staðurinn fengið frábærar umsagnir
á TripAdvisor og pítsurnar á staðn-
um, sem þykja einstakar, eru orðnar
frægar. Sagan á bak við staðinn er
ævintýri.
Skúli hefur kynnst því á
lífsleiðinni að lífið getur verið mjög
ófyrirsjáanlegt og það er til lítils að
ætla að skipuleggja starfsferil sinn í
framtíðinni þegar maður er ungur.
Hann leggur áherslu á það í sam-
ræðum við ungt fólk að aðalatriðið
sé að gera vel það sem maður gerir
hverju sinni, þá muni lífsins straum-
ur bera mann sjálfkrafa á réttu stað-
ina. Hann lifir eftir spakmælinu „Allt
hið góða sem getur gerst, það mun
gerast“ því það hefur sannað gildi sitt
hvað hann snertir:
„Ég var í útlegð í Noregi og stýrði
fiskeldisfyrirtæki uppi í fjöllum
skammt frá skíðastaðnum Geilo. Við
vorum að rækta urriða til að sleppa
í ár og vötn. Síðan fór það svo fjár-
festingarverkefni í fiskeldi, sem ég
hafði verið beðinn um að taka þátt
í, varð ekki að veruleika og í kjölfarið
bauð aðalfjárfestirinn mér að hann
tæki þátt í einhverju verkefni með
mér heima á Íslandi því hann taldi
sig greina að mig langaði heim. Ég
sagði að vissulega væri ég með mikla
heimþrá því konan mín var á Íslandi
og mig langaði til að vakna aftur við
hliðina á henni á morgnana. Þessi
fjárfestir á núna 25% í Álftanes Kaffi
en án hans hefði ég aldrei getað farið
út í þetta. Þegar ég og konan mín fór-
um að skoða fjárfestingarmöguleika
þá var ég búinn að vera að fást við
brauðgerð í frístundum í þó nokkuð
langan tíma og hafði til dæmis próf-
að mig áfram með aðferðir sem líkj-
ast steinbakstri, með búnaði sem ég
hafði keypt mér. Ég sagði við kon-
una mína: Hvað með húsið þarna
á Álftanesi sem stendur alltaf autt?
Það er til sölu en kostar ekki mikið.
Mér virtist að þetta gæti gengið.
Ég gerði nokkra útreikninga sem
stóðust nokkurn veginn. Maður
myndi vinna þarna nánast einn til að
byrja með en ráða starfsfólk ef salan
færi að aukast. Og nákvæmlega það
hefur gengið eftir en við erum með
starfsfólk núna. Við keyptum síðan
húsið vorið 2015 en opnuðum ekki
fyrr en í nóvember. Þetta urðu meiri
viðgerðir en við höfðum reiknað
með og auk þess tók sinn tíma að
finna réttu rýmislausnirnar.“
Ævintýrið heldur áfram því vel-
gengni Álftanes Kaffis er sívaxandi.
Staðurinn er opinn frá þriðjudegi til
föstudags, annars vegar frá 11 til 14
og hins vegar frá 17 til 21. Um helgar
er opið óslitið frá 11 til 21. Afgreiðslu-
tíminn er hins vegar sveigjanlegur
því ef nægilega margt fólk situr inni á
staðnum klukkan níu á kvöldin er því
velkomið að sitja lengur og stundum
er glatt á hjalla allt til 11 á kvöldin.
Nánar má lesa um Álftanes Kaffi á
Facebook-síðunni Álftanes Kaffi.
Staðurinn er til húsa að Breiðumýri,
Álftanesi. Símanúmer er 777-8844. n