Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Qupperneq 24
vikublað 7.–9. mars 201720 Skrýtið
Tölvuleikir sem
voru bannaðir
n margir þóttu of ofbeldisfullir n battlefield var bannaður Íran n Wolfenstein í Þýskalandi
T
ölvuleikjaiðnaðurinn hefur
verið í mikilli sókn á undan-
förnum árum og veltir þessi
iðnaður nú milljörðum á
milljarða ofan á ári hverju.
Eins og gengur og gerist teljast sumir
þessara leikja til meistaraverka á
meðan aðrir falla í gleymsku og dá
af ýmsum ástæðum. Svo eru til þeir
leikir sem ekki komust í dreifingu í
nokkrum löndum af ýmsum ástæð-
um, til dæmis þeirri að þeir þóttu of
ofbeldisfullir. DV tekur hér saman
nokkra leiki sem hlutu þau örlög. n
Wolfenstein Castle Wolfenstein kom fyrst út árið 1981, en leikurinn markaði í raun straumhvörf í útgáfu tölvuleikja, þá
einna helst ofbeldisfullra tölvuleikja. Eins og flestir sem spila tölvuleiki vita koma nasistar nokkuð við sögu í Wolfenstein-leikjunum –
og það þykir Þjóðverjum ekki sérlega sniðugt. Í Þýskalandi er allt sem við kemur nasistum – gott og slæmt – bannað og var Wolfenstein
ekki aðgengilegur í Þýskalandi lengi vel. Það var ekki fyrr en árið 2014 að leikurinn var fyrst leyfður, en þá var búið að afmá allt sem við
tengdist nasistum úr leiknum.
Bully Bully er leikur sem var gefinn út árið 2006 af Rockstar Games, fyrst fyrir
Playstation 2-leikjatölvuna en síðan fyrir aðrar tölvur. Í leiknum er sjónum beint að einelti í
skólum en spilarar fara í hlutverk hins 15 ára gamla Jimmy sem lendir í ýmsum uppákomum í
skólanum. Þvert á það sem einhverjir kynnu að halda dásamar leikurinn ekki ofbeldi, heldur
er spilurum refsað ef þeir fara yfir strikið. Leikurinn var bannaður í Brasilíu, þegar stóð til að
markaðssetja hann þar árið 2008, vegna einhverra ótilgreindra áhrifa sem börn gætu orðið
fyrir. Þess má geta að Bully hlaut mjög góða dóma á sínum tíma.
Left 4 Dead 2 Rétt eins og með Fallout 3 var Left 4 Dead 2 bannaður
í Ástralíu. Leikurinn segir frá uppvakningum og baráttu manna gegn þeim – með öllum
þeim vopnum sem hugurinn girnist. Eins og að framan greinir var það lengi vel þannig að
tölvuleikir, sem ekki þóttu hæfa einstaklingum 15 ára eða yngri, voru bannaðir í Ástralíu.
Þetta kerfi var hins vegar tekið í gegn ekki alls fyrir löngu og er Left 4 Dead – og fleiri
ofbeldisfullir tölvuleikir – leyfðir fyrir einstaklinga sem eru orðnir 18 ára.
MadWorld Þessi leikur var framleiddur af PlatinumGames fyrir Wii-leikja-
tölvuna og kom hann fyrst út árið 2009. Leikurinn er býsna ofbeldisfullur og segir í stuttu
máli frá manni sem gengur berserksgang og byrjar að stráfella samborgara sína. Þetta féll
í grýttan jarðveg víða, til dæmis í Þýskalandi þar sem leikurinn var bannaður. Þá var útgáfu
í Japan seinkað og bresk yfirvöld voru nálægt því að banna leikinn. Þá var kallað eftir því að
leikurinn yrði bannaður í Bandaríkjunum en það náði ekki fram að ganga.
Fallout 3 Fallout-leikirnir hafa
notið gríðarlegra vinsælda á undanförnum
árum og það ekki að ástæðulausu. Fyrir-
tækið Bethesda stendur að baki leikjunum
sem þykja, á köflum allavega, nokkuð
ofbeldisfullir. Þegar til stóð að gefa Fallout
3 út árið 2008 var leikurinn bannaður í
Ástralíu. Ástralir þykja nokkuð strangir
þegar ofbeldi í tölvuleikjum er annars vegar
og lengi vel voru allir leikir bannaðir sem
ekki voru taldir hæfa einstaklingum sem
voru 15 ára eða yngri. Fallout 3 féll í þann
flokk vegna þess að það var mat manna að
fíkniefnum væri gert hátt undir höfði. Þess
má geta að fulltrúar Bethesda settust aftur
að teikniborðinu og breyttu innihaldinu fyrir
Ástralíumarkað.
Battlefield 3 Líkt og
Fallout-leikirnir hafa Battlefield-leikirnir
notið mikilla vinsælda. Í leikjunum bregða
leikmenn sér í hlutverk hermanna frá mis-
munandi tímum í heimssögunni. Battlefield
3 gerist að hluta til í Teheran í Íran þar sem
ráðist er á borgina. Þetta fór ekki vel í írönsk
stjórnvöld sem brugðust við með því að
banna leikinn. Lögreglumenn sáu til þess
að banninu yrði framfylgt og þeim refsað
grimmilega sem brutu gegn því. EA, framleið-
andi leiksins, brást ekki sérstaklega við þessu
enda hafði fyrirtækið aldrei selt leiki sína til
Írans, meðal annars í ljósi viðskiptaþvingana.
Þau eintök sem komust í dreifingu í landinu
voru því svokölluð sjóræningjaeintök.
Manhunt og
Manhunt 2
Árið 2004 var Rockstar, eða öllu
heldur leikurinn Manhunt, sem
fyrirtækið framleiddi, sakað um
að hafa stuðlað að dauða 14 ára
pilts á Bretlandseyjum. Stefan
Pakeerah var barinn til dauða
með hamri af 17 ára vini sínum
sem varði stærstum hluta síns
frítíma í spilun leiksins. Móðir hins
látna fór í herferð gegn leiknum
og brugðu fjölmörg fyrirtæki á það
ráð að taka leikinn úr sölu. Þremur
árum síðar, þegar Manhunt 2 kom
út, var ákveðið að leikurinn færi
ekki í dreifingu í Bretlandi. Írar
bönnuðu einnig leikinn sem þykir
afar ofbeldisfullur.