Dagblaðið Vísir - DV - 07.03.2017, Page 26
vikublað 7.–9. mars 201722 Sport
„Maður er ekkert að
leita eftir vorkunn“
n Jóhann Berg Guðmundsson hefur glímt ítrekað við meiðsli í vetur n Ánægður hjá Burnley
Þ
að getur tekið á að vera at-
vinnumaður í knattspyrnu
þegar á móti blæs, meiðsli
eru því miður hluti af leikn-
um og landsliðsmaðurinn
Jóhann Berg Guðmundsson, kant-
maður Burnley í ensku úrvals-
deildinni, hefur fengið að kynnast
þeim á þessu tímabili. Kantmaður-
inn knái gekk í raðir Burnley í fyrra-
sumar og hafði stimplað sig hressi-
lega inn hjá félaginu þegar fyrsta
bakslagið kom í lok nóvember.
Dagarnir hjá atvinnumanni verða
öðruvísi og þyngri þegar meiðsli
herja á leikmanninn. Jóhann hef-
ur í þrígang á þessu tímabili meiðst
nokkuð alvarlega.
Fer í ræktina meðan
félagarnir æfa fótbolta
,,Maður þarf að vera mættur
snemma alla morgna og fer í sjúkra-
þjálfun. Maður nær síðan að taka
morgunmatinn með strákunum. Á
meðan þeir skella sér svo út á æf-
ingu er ég bara í ræktinni til að halda
mér við. Eftir það tekur við meiri
meðhöndlun,“ sagði Jóhann í samtali
við DV þegar hann var á leið heim af
æfingu.
Dagarnir á skrifstofunni verða
lengri þegar leikmaður glímir við
meiðsli og það getur verið erfitt and-
lega að fylgjast með liðsfélögum sín-
um spila knattspyrnu á meðan það
eina sem bíður þín er harðhentur
sjúkraþjálfari og köld lóð.
„Það getur tekið verulega á að sjá
strákana skokka út á æfingasvæði,
þar vill maður vera. Það er samt
mikilvægt að halda haus og vera já-
kvæður, meiðsli eru bara hluti af
þessu. Þetta hefur hins vegar verið
gríðarleg óheppni á þessu tímabili,“
segir Jóhann sem hefur spilað 16
leiki Burnley í deildinni í vetur; hann
hefur byrjað tíu leiki og komið inn
sem varamaður í sex leikjum og sam-
tals spilað 923 mínútur.
Hefði getað verið skynsamari
„Ég byrjaði á að rífa aftan í lærinu
vinstra megin gegn Manchester
City í lok nóvember, ég var búinn
að tryggja mitt sæti í liðinu á þess-
um tímapunkti og þetta leit vel út.
Tveimur dögum fyrir þann leik fékk
ég högg á hægra lærið og harkaði af
mér í gegnum þá æfingu. Ég var al-
veg að drepast en lét reyna á þetta
og kláraði æfinguna daginn fyrir
leik líka. Ástæðan fyrir þeim meiðsl-
um getur verið sú að ég fór að beita
mér eitthvað öðruvísi en ég er vanur
út af þessu höggi sem ég fékk og það
getur sett meira álag á vinstra lær-
ið. Kannski hefði maður átt að vera
skynsamari þar en maður veit það
aldrei fyrirfram.“
Erfitt og langt ferli
Jóhann var þónokkuð fljótur að koma
til baka eftir þessi meiðsli en hann var
að komast á fullt skrið þegar honum
var kippt aftur niður á jörðina.
„Það sem er aðallega erfitt við
þetta er að ferlið við að koma sér
aftur í gírinn er erfitt og leiðinlegt.
Manni er skellt út á völl og þarf að
hlaupa og hlaupa til að vinna upp
þolið sem tapast. Það getur verið
leiðinlegt en maður er nú ekkert að
leita eftir vorkunn, ég vinn við það
sem ég elska að gera og maður á svo
sem ekkert að vera að kvarta.“
Óvíst hvenær hann snýr aftur
Jóhann sem er 27 ára gamall reif svo
upp úr liðbandi í hné á dögunum og
er óvíst hvenær hann getur farið aft-
ur út á völlinn.
„Það var áfall að lenda í þessu í
þriðja sinn á tímabilinu að vera frá
í einhvern tíma. Ég hef yfirleitt ekki
verið í svona miklum pakka á einu
tímabili. Ég gat ekkert gert í þessum
meiðslum, þetta var bara tækling.
Núna er maður bara á fullu að byggja
sig upp til að komast sem fyrst aftur
út á völl.“
Jóhann er á sínu fyrsta tímabili í
ensku úrvalsdeildinni sem er deildin
sem alla unga krakka dreymir um að
spila í. Honum hefur líkað vel og er
spenntur fyrir komandi áskorunum.
„Þetta er búið að vera frábært,
okkur hefur gengið vel og þá sér-
staklega á heimavelli. Þetta var auð-
vitað skemmtilegast þegar mað-
ur var lykil maður í liðinu og með
fulla heilsu. Núna er bara að koma
sér á þann stað aftur og ná síðustu
mánuðum tímabilsins. Ég hef notið
þess að vera hérna og ef við höldum
okkur uppi, sem við erum allir von-
góðir um að takist, þá eru bara bjart-
ir tímar framundan,“ sagði þessi geð-
þekki kantmaður að lokum, en hann
var að renna í hlaðið heima hjá sér
eftir æfingu dagsins. n
„Það sem er aðal
lega erfitt við
þetta er að ferlið við að
koma sér aftur í gírinn er
erfitt og leiðinlegt.
Öflugur Jóhann Berg
hefur komið sterkur inn í
lið Burnley þó meiðsli hafi
sett strik í reikninginn.
Lykilmaður Jóhann Berg
er mikilvægur fyrir íslenska
landsliðið sem býr sig nú
undir leik gegn Kosóvó þann
24. mars næstkomandi.
Óvíst er með þátttöku
Jóhanns í þeim leik. Mynd EPA
Hörður Snævar Jónsson
hoddi@433.is