Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 27
Í góðum málum 3Helgarblað 16. júní 2017 KYNNINGARBLAÐ
Fyrirtak málningarþjónusta ehf. hefur þjónað fyrirtækj-um, stofnunum, húsfélög-
um og heimilum til margra ára.
Fyrirtækið tekur að sér öll helstu
verkefni sem snerta viðhald og
breytingar á fasteignum, jafnt
að innan sem utan. Ámundi S.
Tómasson er framkvæmda- og
verkefnastjóri Fyrirtaks en hann
hefur rekið fyrirtækið með góðum
árangri í mörg ár í viðhaldi húsa.
Málning á bæði að verja og
fegra
Reglulegt viðhald á fasteignum
borgar sig. Málning er oftar en ekki
eina vörnin fyrir veðri og vindum.
Málning á bæði að verja og fegra.
Utanhúss veðrast fletir hratt fyrir
áhrif sólar, veðurs og vinds. Með
reglulegu viðhaldi er hægt að verja
fasteignina og koma í veg fyrir
dýrar framkvæmdir eins og t.d.
gluggaviðgerðir, viðgerð á steini og
þaki. Fyrirtak vinnur eingöngu upp
úr góðum málningarkerfum og far-
ið er eftir þeim kerfum sem reynst
hafa best í íslenskri veðráttu.
Fagmenn í öllum verkhlutum
„Hjá fyrirtækinu starfa reyndir
iðnaðarmenn sem leggja metnað
sinn í fagmennsku, snyrtimennsku
og áreiðanleika. Einnig starfa þar
múrarar og smiðir og saman geta
þeir leyst öll helstu verkefni sem
varða viðhald húsa,“ segir Ámundi.
„Við hjá Fyrirtaki tökum að okkur
allt almennt viðhald á fasteignum
eins og t.d. gluggaviðgerðir og
glerísetningu. Ef glugginn er farinn
að fúna er nauðsynlegt að laga
fúann áður en málað er. Við gerum
við glugga með því að saga fúa í
burt og setja nýtt fúavarið timbur
í staðinn (sponsa glugga). Glugga-
viðgerðir og glerísetning krefst
mikillar nákvæmni og rétts hand-
bragðs. Við bjóðum upp á þessa
þjónustu og getum líka leiðbeint og
aðstoðað.“
Þjónum fyrirtækjum,
stofnunum og húsfélögum
Fyrirtak málningarþjónusta ehf.
hefur þjónað fyrirtækjum, stofn-
unum, húsfélögum og heimilum til
margra ára. Fyrirtækið tekur að
sér öll helstu verkefni sem koma að
viðhaldi og breytingum á fasteign-
um, jafnt að innan sem utan,“ segir
Ámundi.
Fyrirtak málningarþjónusta ehf.
Sími: 770-7997. fyrirtak@fyrirtak.is
www.fyrirtak.is
Fyrirtak þjónar
fyrirtækjum, stofn-
unum og húsfélögum
AllT AlMEnnT FASTEiGnAViðHAld