Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 58
34 menning - hönnun Helgarblað 16. júní 2017
A
M. Concept Space er ný
konseptverslun og sýn-
ingarrými fata- og textíl-
hönnuðanna Anítu
Hirlekar og Magneu
Einarsdóttur. Í versluninni, sem
staðsett er í Garðastræti 2, fást fal-
legar flíkur frá þeim báðum. Hug-
myndin að baki versluninni byggist
á breytileika, fallegri útfærslu og
samrunaeiningu mismunandi lista-
og hönnunarvara.
Báðar leggja þær ríka áherslu á
textíl og áferðir í hönnun sinni þótt
nálgun þeirra sé gjörólík. Þær eiga
það sameiginlegt að hafa báðar
verið tilnefndar til Hönnunarverð-
launa Íslands fyrir verk sín.
Ekki hefðbundin fataverslun
Verslunin er ekki hin hefðbundna
fataverslun. Reglulega fá
hönnuðirnir til liðs við sig þriðja
listamanninn eða hönnuðinn til að
útfæra rýmið og flíkurnar á nýjan
hátt. Rýmið er hrátt og hugsað sem
tómur strigi fyrir listamanninn
hverju sinni. Þannig skapa þær
skemmtilegan og breytilegan heim
í kringum búðina og vörurnar og
auka jafnframt upplifun gesta. Þær
bjóða hvern listamann velkominn
með því að halda sérstakt opnunar-
hóf með mismunandi áherslum
eftir eðli samstarfsaðilans.
Þær hafa opið á hefðbundnum
búðartíma en bjóða einnig upp á
persónulegri þjónustu og heimsóknir,
þar sem einstaklingar eða hópar geta
bókað tíma utan opnunartímans, en
þessi kostur hefur verið vinsæll hjá
vinkonuhópum sem vilja koma saman
og fá nánari kynningu á hönnuðun-
um og vörunum sem í boði eru hverju
sinni, en heimsóknir geta verið sniðn-
ar að hverjum hóp fyrir sig.
Vel heppnaðri listsýningu með
Auði Ólafs lauk á dögunum þar sem
verk Auðar skreyttu búðina og voru
til sölu. Í framhaldinu fengu þær
stöllur, Aníta og Magnea, Angan
vörumerkið til liðs við sig. Fyrir þá
sem ekki vita er Angan íslenskt, sjálf-
bært og handgert húðvörumerki.
Íris Ósk Laxdal, stofnandi Angan,
hefur lagt sig fram við að skapa
hugarheim sem á að vera sannköll-
uð upplifun fyrir öll skilningarvit. Í
opnunarhófi á dögunum var sem
dæmi boðið upp á ginkokteil með
lavender og salti en húðvörurnar
eru búnar til úr íslensku sjávarsalti
og villtum jurtum. Nú er rýmið gjör-
ólíkt því sem var þegar listsýningin
fór fram fyrir örfáum dögum og
má sjá íslenskar jurtir í uppstilling-
um, gestir geta prófað íslensku húð-
vörurnar og mátað einstakar kven-
flíkur frá Magneu og Anítu.
Möguleiki á sýningaraðstöðu
Hvaðan kom hugmyndin um rýmið
í Garðastræti?
„Við höfðum verið að leita að sam-
eiginlegri vinnustofu með möguleika
á sýningaraðstöðu í svolítinn tíma
þegar Garðastrætið kom upp í hend-
urnar á okkur. Við sáum strax hvað
rýmið bauð upp á mikla möguleika.
Við erum sammála um að hug-
myndin um rými sem fataverslun ein
og sér sé dálítið einhæf og henti ekki
endilega okkar hönnun. Við viljum
bjóða upp á ákveðna heildarupplif-
un og nýja hugmyndafræði.“
Teljið þið ykkar búð hafa sérstöðu?
„Okkur hefur fundist vanta
ákveðinn skilning á fatahönnun sem
einhverju öðru en varningi sem hægt
sé að kaupa. Við viljum að fólk fái
tækifæri til að sjá vinnuferli okkar, að
sú vara sem við kynnum sé afrakstur
skapandi ferlis okkar. Hugmynda-
fræði verslunarinnar er því ákveðið
samtal, okkar á milli sem hönnuða
og við þriðja aðila úr öðrum skap-
andi greinum, en hugmyndin er að
reglulega fáum við inn nýjan aðila til
að kynna sín verk eða vöru og skapa
nýja upplifun í búðinni.“
Síbreytilegt rými
Hverjir fleiri koma í samstarf á
næstu mánuðum?
„Við erum búnar að bóka sam-
starf við ýmsa aðila út árið og
höfum ekki sett okkur neinar skorð-
ur þar sem við viljum ekki takmarka
okkur við eitthvert eitt listform
heldur þvert á móti að rýmið verði
síbreytilegt og því erum við opnar
fyrir öllum miðlum. Nafnið sem við
völdum á verslunina gefur þetta til
kynna, A. M. Concept Space stend-
ur fyrir Anita Hirlekar og Magnea
Concept Space og þýðir í raun að
vörur okkar séu þar til sölu en rým-
ið sé opið fyrir ýmsu samstarfi.
Þegar við opnuðum verslunina vor-
um við með verk til sýnis frá Auði
Ómarsdóttur myndlistakonu, mjög
litrík verk sem skreyttu veggina og
fataslárnar voru þá í miðjunni á
meðan núverandi samstarf við Írisi
Ósk hjá Angan leggur meiri áherslu
á búðargluggann og upplifun á
hennar vöru í gegnum önnur skyn-
færi en augun. Það er áhugavert að
sjá vörurnar okkar í nýju samhengi
þegar við vinnum með mismunandi
listamönnum.“ n
Magnea og Aníta saman
í skemmtilegri verslun
n A. M. Concept Space er ný konseptverslun og sýningarrými n Bjóða til sín listamönnum
Hönn-
unar-
Horn
Kolfinna Von Arnardóttir
kolfinna@artikolo.is
Magnea og
Aníta „Við
viljum bjóða
upp á ákveðna
heildarupplifun
og nýja hug-
myndafræði.“
Myndir Sigtryggur Ari