Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 63
menning 39Helgarblað 16. júní 2017
T
ónlistarhátíð Víkings
Heiðars Ólafssonar, Reykja-
vik Midsummer Music, verð-
ur haldin í sjötta sinn 22.–25.
júní í Hörpu og í Mengi verða
miðnæturtónleikar.
„Þetta er alþjóðleg tónlistarhátíð
þar sem saman koma ýmsir af allra
fremstu tónlistarmönnum heims í
klassískri tónlist og aðallega af yngri
kynslóð,“ segir Víkingur Heiðar sem
er listrænn stjórnandi hátíðarinnar.
„Í ár er þetta að takast betur en
nokkru sinni áður. Hingað koma
ótrúlegir listamenn og mér finnst
næstum óraunverulegt að það sé að
gerast.
Þessi hátíð er mikil veisla. Í að-
dragandanum getur manni fundist
nánast ógerningur að koma henni
saman. Það kostar átak en fyrir vikið
þykir manni ennþá vænna um þessa
hátíð. Það skapast líka gríðarleg sam-
staða meðal allra þeirra sem koma að
verkefninu og sú samstaða smitast
yfir í flutninginn á sviðinu.“
Tónleikarnir á hátíðinni verða
alls átta. „Fyrir mér er lykilatriði að
hátíðin sé ekki of stór. Ég vil ekki búa
til hátíð þar sem eru ótal tónleikar
og fólk er á stöðugum hlaupum á
milli,“ segir Víkingur Heiðar. „Ég er
hugsi yfir mörgum tónlistarhátíðum
úti í heimi þar sem keyrt er á risa-
prógrammi. Ég hef engan áhuga á að
búa til slíka hátíð. Ég vil búa til hátíð
þar sem er raunhæft að fólk geti kom-
ið á alla viðburði. Hátíðin er hugsuð
sem heild. Við reynum að gera um-
gjörðina eins góða og hægt er svo
þetta verði eins og ævintýri.“
Heimsklassa listamenn
Meðal tónlistarmanna á hátíðinni í
ár eru nokkrir af eftirsóttustu hljóð-
færaleikurum samtímans. „Þetta eru
listamenn sem eru að spila úti um
allan heim. Þeir hafa spilað eitthvað
af þessum verkum áður en flest verk-
in æfum við upp á þremur dögum
og þá verður til galdur. Þegar maður
er með heimsklassa listamenn getur
margt ótrúlegt gerst. Það kemur auk-
in spenna í flutninginn sem myndi
kannski ekki koma ef lengri tími væri
til æfinga.“
Erlendu tónlistarmennirnir eru
norski fiðluvirtúósinn Vilde Frang,
sem hefur farið eins og stormsveipur
um klassíska tónlistarheiminn frá
því hún kom fyrst fram sem ung-
lingur. Sömuleiðis kemur hinn úkra-
ínski Maxim Rysanov, sem er fræg-
asti víóluleikara sinnar kynslóðar.
Tveir fremstu sellóleikarar samtím-
ans, hinn þýski Nicolas Altstaedt og
ungverski virtúósinn István Várdai,
mæta til leiks, en báðir hafa hlotið
fjölda alþjóðlegra verðlauna. Einn
fremsti fiðluleikari Hollands, Ros-
anne Philippen, mætir og sömuleið-
is franski píanistinn Julien Quinten,
japanska fiðlustjarnan Sayaka Shoji
og norski víólumeistaranum Lars
Anders Tomter.
Lengsti strengjakvartett í heimi
Lokatónleikar hátíðarinnar verða í
Eldborg og eru með sérstöku sniði.
„Mig langaði til að brjóta upp form-
ið og dagskráin á þeim tónleikum
verður því ekki tilkynnt fyrirfram,“
segir Víkingur Heiðar. „Ég verð kynn-
ir á sviðinu og tala um músíkina og
hljóðfæraleikarana og það eina sem
tónleikagestir vita er að þarna eru
nokkrir af fremstu hljóðfæraleikurum
í heimi að fara að gera eitthvað frá-
bært.
Ég veit ekki hvort þetta er góð
eða slæm hugmynd, það kemur í
ljós. Ég gerði þetta sama þegar ég var
með útgáfutónleika fyrir Deutsche
Grammo phon í mars síðastliðnum.
Þá hélt ég Philip Glass-tónleika og
það var ekki gefin út prentuð dagskrá.
Mín hugsun er sú að fólk komi, hlusti
og sé frjálst.“
Þema hátíðarinnar í ár er einmitt
frelsi. „Við erum að skoða hefðina
og samtal tónskálda við hana,“ seg-
ir Víkingur Heiðar. „Við erum með
mörg óvenjuleg verk. Þar á meðal
er Ímyndað landslag nr. 4 eftir John
Cage sem er fyrir tólf útvörp. Það
verk er eins og gjörningur. Það er
skemmtileg tilhugsun að sjá hljóð-
færaleikara sem hafa eytt lífi sínu í að
ná færni á hljóðfæri sitt koma og leika
á viðtæki.
Á efnisskránni er síðasta sinfónía
Shostakovich, sú 15. Þar erum við að
skoða mann sem var kannski sá tón-
listarmaður 20. aldar sem var hvað
mest pólitískt þjakaður og uppgjör
hans við hefðina og stjórnvöld er að
finna í þessari síðustu sinfóníu hans.
Þetta er ótrúlegt verk. Þar er ískaldur
harmur og brennandi hjarta.
Við erum með tónleika þar sem
þekktustu og flottustu kammerverk
Arvo Part eru sett á móti verkum
Mozart og Stravinsky. Það eru alls
konar þræðir í því prógrammi sem
tengja þau saman. Við erum líka
með tónleika þar sem eru verk fyrsta
Vínar skólans, Franz Schubert og fé-
laga, og svo verk annars Vínarskólans
sem er Arnold Shoenberg sem var
að reyna að afbyggja allt sem fyrsti
Vínar skólinn hafði gert.
Eitt verkanna hefur aldrei verið
spilað áður á Íslandi og það er lengsti
strengjakvartett í heimi eftir Morton
Feldman, fimm klukkutíma langur
og óhemju fallegur. Feldman var
alltaf að skoða kvarða og hvernig við
skynjum tímann og hvernig við get-
um frelsast undan honum. Ég spilaði
einu sinni verk eftir Feldman sem var
einn og hálfur klukkutími og það var
ansi langt, en ekkert miðað við þetta
fimm tíma verk. Hinn frábæri íslenski
strengjakvartett, Strokkvartettinn
Siggi, flytur verkið. Þau léku einnig
með mér á Philip Glass-geisladiskin-
um. Ég bað þau um þetta og átti allt
eins von á að þau myndu segja nei
og álíta mig brjálaðan, enda aug-
ljós klikkun og bara masókismi að
leika svo langt verk án hlés. En þau
sögðu já! Ég ætla að hafa góð verð-
laun fyrir þá áheyrendur sem sitja í
fimm klukkutíma. Ég er ekki viss um
að þeir verði margir en eitthvað segir
mér samt að það verði einhverjir. En
þetta verður verulega fallegt og eitt-
hvað sem líklega verður seint endur-
tekið á Íslandi.“
Nýr diskur hjá Deutsche
Grammophon
Víkingur Heiðar er eftirsóttur píanó-
leikari og spilar úti um allan heim.
„Ég er alltaf á ferðalagi þannig að fyrir
mér er þessi hátíð í ár ennþá meira
ævintýri en áður, enn meiri spenna
að koma heim og láta þetta allt gerast
einhvern veginn,“ segir hann.
Spurður hvað sé framundan hjá
honum segir hann: „Það er svo ótal-
margt. Lokatónleikar Midsummer
Music eru sunnudagkvöldið 25. júní í
Eldborg og klukkan sjö á mánudags-
morgun flýg ég út til að vera á nýrri
og metnaðarfullri hátíð í Noregi. Þar
spila ég á tónleikum með einum allra
fremsta píanóleikara í heimi, Norð-
manninum Leif Ove Andsnes. Við
erum ágætis vinir en höfum aldrei
spilað saman. Hann er fimmtán árum
eldri en ég. Ég fylgdist með honum í
gamla daga leika með hljómsveitun-
um sem mig dreymdi um að spila
með. Mér finnst mjög spennandi að
spila með honum konsert fyrir tvö
píanó eftir Stravinsky.
Ég mun spila á flottri hátíð í
Austur ríki og á einleikstónleikum á
helstu píanóhátíð Frakklands og síð-
an eru þrennir tónleikar í New York
í ágúst og opnunartónleikar starfs-
ársins í nýja tónlistarhúsinu í Ham-
borg sem er örugglega umtalaðasta
tónleikahús í heimi. Beint þaðan ligg-
ur svo leiðin til Mílanó þar sem ég leik
á MITO-tónlistarhátíðinni og þannig
heldur þetta áfram. Svo hef ég áfram
listræna umsjón með tónlistarhátíð-
inni Vinterfest í Svíþjóð sem fram fer
í febrúar, og er því eins og andstæða
við mína björtu Reykjavik Midsum-
mer Music.
Svona er þetta viku eftir viku, það
eru alltaf nýir tónleikar og oft nýtt
prógramm. Það er mjög krefjandi
að spila mikið af ólíkri tónlist. Ég er
mikill fullkomnunarsinni í mér og hef
stundum áhyggjur af þessum mörgu
ólíku heimum sem ég þarf að geyma
innra með mér. Ég þarf að vera gríðar-
lega skipulagður þegar ég undir-
bý mig. Ég verð að búa yfir aga til að
æfa mig í allt að tvö ár fram í tímann
á sama tíma og ég er að glíma við verk
sem ég á að flytja eftir þrjá daga.“
Á dagskrá Víkings Heiðars er
einnig nýr diskur hjá Deutsche
Grammophon en þar sem efni þess
disks er leyndarmál getur hann ekki
rætt meir um það að sinni.
Þarf tíma til að anda
Hann er spurður hvort mikil og löng
ferðalög vegna vinnu séu ekki slít-
andi. „Þetta er það sem mig dreymdi
alltaf um og núna hefur sá draumur
ræst. Það er nokkuð yfirþyrmandi.
Ég hef ekki átt frídag í langan tíma,
sennilega ekki síðan ég gekk í
hjónaband! Við Halla erum loksins
að fara í brúðkaupsferð, ári of seint,
í júlí til Grikklands. Það verður ör-
ugglega nokkuð óraunverulegt að
vera án píanós í heila sex daga, með
ströndina og alla fegurðina á Krít.
Ég eyði miklum tíma í flugvélum
og maður finnur út úr því hvernig
best er að nýta hann. Í síðasta
mánuði var ég í tíu tíma flugi til
Peking. Ég las þvílíkt og hlustaði á
tónlist og heyrði mikið af skemmti-
legum hlaðvarpsþáttum. Stundum
getur verið gott að vera fangi flug-
vélanna. Maður gefur sér tíma í hluti
sem maður leyfir sér ekki annars.
Það eru kostir í öllum aðstæðum ef
maður horfir á hlutina út frá réttu
sjónarhorni.“
Tilboðin streyma til Víkings
Heiðars. Þarf hann ekki oft að segja
nei? „Stundum hitti ég tónlistar-
menn sem eru í fremstu röð og
hafa verið það í áratugi en eru enn
hræddir við að segja nei af því að
þeir óttast að þá muni þeir gleym-
ast og tilboðin hætta að koma. Ég
vil þekkja sjálfan mig og vita hvar
mörk mín liggja. Það er mikið mál
að finna þetta jafnvægi og hlusta á
sjálfan sig. Ég vil gefa mér tíma svo
hverjir tónleikar verði einstakir, þeir
mega ekki verða fjöldaframleiðsla.
Þótt tónleikar séu fyrst og fremst
skemmtilegir þarf líka að vernda
og rækta og viðhalda viðhorfinu
til þeirra sem algjörlega einstakra,
næstum heilagra, viðburða. Það er
svo dýrmætt og má ekki gleymast í
öllu annríkinu.
Bransinn vill að maður spili eins
mikið fyrir eins marga og hægt er
á jafn skömmum tíma og mögu-
legt er. Allt á að gerast hratt. Ég þarf
tíma til að anda í því sem ég geri og
það er eitthvað sem enginn ákveð-
ur fyrir mig. Ég þarf að ákveða það
sjálfur.“ n
Eftirsóttur
listamaður
„Þetta er það sem
mig dreymdi alltaf
um og núna hefur
sá draumur ræst.“
MyND SiGtryGGur Ari
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@dv.is
Víkingur Heiðar
MyND DV EHf / SiGtryGGur Ari