Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 23
umræða 23Helgarblað 16. júní 2017 þúsund, gefur tilefni til. En í þessari gisnu, dreifðu og teygðu byggð eru almenningssamgöngur hins vegar mjög ófullnægjandi. Margir gagn­ rýna núverandi borgaryfirvöld fyrir stefnu sína um þéttingu byggðar og að standa ekki fyrir uppbyggingu ódýrra íbúða fyrir fyrstu kaupendur í útjaðri borgarlandsins. En ef við lít­ um á þá sem þurfa sitt fyrsta hús­ næði, segjum ung hjón með eitt til tvö börn, þá blasir einnig við að með núverandi ástandi almenningssam­ gangna þá þyrfti þannig fjölskylda í útjaðri byggðar trúlega að reka tvo bíla, og kostnaðurinn við þá útgerð vinnur margfalt upp á móti því hag­ ræði sem felst í einfaldara húsnæði á ódýrari lóð. Sömu gagnrýnendur borgaryfirvalda virðast að sama skapi andsnúnir hugmyndum um borgar­ línu, sem þó er trúlega eini raunhæfi kosturinn sem fram hefur komið um lausn á fjöldaflutningum fólks á höf­ uðborgarsvæðinu. Raunar var stór­ merkilegt að sjá að Sjálfstæðismenn í minnihluta borgarstjórnar og þeirra fylgismenn virtust ætla að gera harða atlögu að „ borgarlínuáætlunum Dags borgarstjóra“ eins og maður heyrði það kallað, en það var eins og sömu menn hefðu ekki áttað sig á því að þetta er engin einkahugmynd vinstri­ manna í borgarstjórn Reykjavíkur, heldur sameiginleg áætlun sveitar­ félaganna á höfuðborgarsvæðinu og þar með margra bæjarstjóra úr röðum Sjálfstæðismanna. Enda heyrði ég viðtal í útvarpi á dögun­ um við Ármann Kr. Ólafsson, bæjar­ stjóra í Kópavogi og fyrrverandi al­ þingismann, þar sem hann pakkaði saman röksemdum andstæðinga borgarlínunnar á sannfærandi hátt, og það sama myndu þeir eflaust fara létt með líka bæjarstjórarnir í Garða­ bæ og Mosfellsbæ, svo einhverjir séu nefndir. Sjálfkeyrandi apparöt í muggunni Nú heyrir maður málsmetandi menn gera því skóna að almenningssam­ göngur verði brátt úreltar því að sjálf­ keyrandi bílar muni sjá um að koma öllum til og frá. En satt best að segja á maður heldur bágt með að sjá slíkt fyrir sér. Ef við til dæmis hugsum um dimma vetrarmorgna í Reykjavík með snjó og hálku, en kannski 150 þúsund manns sem þurfa að komast á svip­ uðum tíma til skóla eða vinnu. Gatna­ kerfið er þegar sprungið á álagstíma og kannski erfitt að sjá hvernig það eigi að lagast mikið þótt þeir hund­ rað þúsund bílar sem verði á ferðinni í myrkrinu séu sjálfkeyrandi. Þessir sjálfkeyrandi bílar nema eða skynja auðvitað aðra bíla í kringum sig, og vegakanta og slíkt, en hversu næmir verða þeir á aðra hreyfingu? Hunda? Ketti? Allavega vildi ég ekki vita af straumi sjálfkeyrandi apparata hér um götur Hlíðanna í morgungráman­ um á meðan litlu krakkarnir eru á leið í fyrstubekki grunnskólanna. Og ekki verða allir bílar sjálfkeyrandi; hvað með sendiferðabíla, flutningabíla, öll þau ökutæki þar sem bílstjórar þurfa að sinna fleiru en því að stíga á bens­ íngjöf og snúa stýrinu? Fórna Elliðaárdalnum? Sjálfur er ég mikill aðdáandi bensín­ hreyfilsins eins og áður hefur komið fram á þessum vettvangi og fer minna ferða á amerískum Dodge Charger, „the rock‘n‘roll of cars“, en hins vegar verður maður að horfast í augu við að sá ferðamáti, að vera á einkabíl inni í miðjum borgum, er takmörkunum háður og mun auðvitað aldrei geta gengið almennilega til lengdar. Og því verður ekki breytt, eins og menn halda sumir hér, með því að koma upp umferðarslaufum og mislægum gatnamótum úti um allt. Þótt íslenski samgönguráðherrann virðist trúa á þannig forneskju þá er vonandi að hann fari ekki að breiða út þá visku sína á stöðum eins og Manhattan, París, Róm, Berlín eða London, því að hann yrði einfaldlega að athlægi. Hann vill ekki snerta á samvinnu um almenningssamgöngur við sveitar­ félögin á höfuðborgarsvæðinu vegna þess að borgaryfirvöld vilji ekki mis­ læg gatnamót á mótum Reykjanes­ brautar og Bústaðavegar, en síðast þegar ég sá þá framkvæmd útfærða þá fól hún í sér að slaufurnar tækju yfir drjúgan hluta Elliðaárdals og helst vestari kvísl árinnar líka. Þótt mönnum sem vilja að tekið sé mark á sér þyki það bera vott um sérstakt hatur á einkabílnum og frelsi fólks til að velja sér ferðamáta að yfir­ völd í Reykjavík vilji stemma stigu við óhóflegri umferð hér í þéttbýli, þá er það staðreynd að yfirvöld höfuð­ borga og stærstu borga í Frakklandi, Danmörku, Þýskalandi, Spáni, Belgíu og Kína, og jafnvel Banda­ ríkjunum vinna eftir svipaðri áætlun. Einfaldlega vegna þess að öll fræði og allar rannsóknir sýna að annað er glapræði. Járnhausar á íslenska hægri kantinum, þar á meðal hinir furðulegu „flugvallarvinir“, skilja þetta ekki. Einn úr röðum Sjálfstæðis­ manna, Gísli Marteinn Baldursson, var á þeirra línu þar til hann tók sig til, flutti til Bretlandseyja og nam þessi fræði í tvö ár. Þegar hann, eftir að hafa sökkt sér ofan í málin, skipti um skoðun, þá lögðu vinir hans og samherjar ekki við hlustir heldur út­ hrópuðu hann sem svikara og gott ef ekki vinstrimann og flæmdu úr sinni borgarstjórnarhreyfingu. Sinn klárasta mann. Vonandi renna bráðum upp þeir tímar að steinaldarmenn ráði sem minnstu um skipulag þéttbýlis hér á landi. n „Þótt íslenski sam- gönguráðherrann virðist trúa á þannig forn- eskju þá er vonandi að hann fari ekki að breiða út þá visku sína á stöðum eins og Manhattan, París, Róm, Berlín eða London. Gísli Marteinn Baldursson Flæmdur úr sinni borgarstjórnar­ hreyfingu. Ávaxtaðu betur H ö n n u n : I n g va r Ví ki n g ss o n www.avaxtabillinn.is • avaxtabillinn@avaxtabillinn.is • 517 0110 Gómsætir veislubakkar, sem lífga upp á öll tilefni. Er kannski heilsuátak framundan? saman Ávextir í áskrift kosta um 550 kr. á mann á viku og fyrirhöfn fyrirtækisins er engin. &
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.