Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 18
18 sport Helgarblað 16. júní 2017
Sviss 4-4 Ísland (Undankeppni HM 2014)
Það er ógleymanlegt kvöldið í Bern í Sviss þar sem allt stefndi í að
Ísland yrði í raun niðurlægt en það átti eftir að breytast. Margir tala
um þennan leik sem upphafið að því magnaða gengi sem hefur verið
hjá íslenska landsliðinu síðustu fjögur ár. Svisslendingar komust í 4-1
snemma í fyrri hálfleik en Jóhann Berg Guðmundsson hafði komið
Íslandi yfir í upphafi leiks en síðan tóku heimamenn öll völd og skor-
uðu fjögur. Þarna voru allir Íslendingar búnir að tapa trúnni fyrir utan
11 stríðsmenn innan vallar. Kolbeinn Sigþórsson lagaði stöðuna á 56.
mínútu leiksins og síðan tók Jóhann Berg yfir sviðið. Hann minnkaði
muninn í 4-3 þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir. Í uppbótatíma
fullkomnaði svo Jóhann Berg þrennu sína í leiknum og jafnaði leikinn.
Úr varð kvöld sem er í raun ógleymanlegt í huga Íslendinga.
Ísland 2-0 Holland (Undankeppni EM 2016)
Það var troðfullur Laugardalsvöllur haustið 2014 þegar Hollendingar komu í heimsókn, flestir áttu von á sigri gestanna
sem höfðu nokkrum mánuðum áður endað í þriðja sæti á HM í Brasilíu. Það stoppaði þó Ísland ekki í því að sýna magn-
aða frammistöðu í leik sem gaf fólki von um að Ísland væri mögulega að fara á sitt fyrsta stórmót í karlafótbolta. Gylfi
Þór Sigurðsson var maðurinn sem stjórnaði umferðinni í þessum leik, hann skoraði bæði mörk liðsins. Það fyrra kom úr
vítaspyrnu en það síðara kom með mögnuðu skoti. Sigurinn var magnaður og frammistaða Íslands ein sú besta í sögunni.
6
Ísland 1-0 Króatía (Undankeppni HM 2018)
Þessi leikur er enn í fersku minni allra en á sunnudaginn síðasta vann Ísland sigur á einu
besta landsliði í heimi á Laugardalsvellinum. Íslenska liðið spilaði af aga með gríðarlegri
baráttu sem skilaði ótrúlegum sigri. Allt stefndi í
jafntefli eftir að Jóhann Berg Guðmundsson hafði
klikkað á dauðafæri seint í leiknum en nokkrum
sekúndum síðar skoraði Hörður Björgvin
Magnússon með öxlinni. Markið var ótrúlegt og
sigurinn kom Íslandi í frábæra stöðu til að koma
sér á Heimsmeistaramótið í Rússlandi næsta
sumar. Sjaldan eða aldrei hefur verið jafn mikil
stemming og á Laugardalsvellinum í þessum
eftirminnilega leik.
5
3
Ísland 1-1 Portúgal
(EM 2016)
Fyrsti leikur Íslands á stórmóti er
leikur sem er enn í fersku minni,
í iðnaðarborginni St-Etienne var
fjöldi Íslendinga mættur með
gleðina að vopni til að styðja
íslenska landsliðið. Flestir fengu
í magann þegar Nani, fyrrverandi
kantmaður, kom Portúgölum yfir
eftir hálftíma. Íslenska liðið gafst
hins vegar aldrei upp og á 50. mínútu
leiksins átti Jóhann Berg frábæra fyr-
irgjöf sem endaði hjá Birki Bjarnasyni
sem kom boltanum í netið og skoraði
þar með fyrsta mark íslenska karlalands-
liðsins á stórmóti í fótbolta. Leiknum lauk
með 1-1 jafntefli sem reyndust frábær úrslit.
4
Íslands 2-1 Austurríki (EM 2016)
Liðið spilaði ekki vel í þessum leik á EM þegar allt var undir
en ótrúleg samstaða og baráttuhugur hjá strákunum
skilaði mögnuðum úrslitum. Leikar stóðu 1-1 og allt
stefndi í að Ísland myndi spila við Króatíu aðeins nokkrum
dögum síðar, ef Ísland hefði fengið á sig mark og tapað
leiknum hefði liðið verið úr leik. Þess í stað skoraði Arnór
Ingvi Traustason sigurmarkið með síðustu spyrnu leiksins,
Stade de France í París fór yfir um. Eldri menn fóru að
gráta úr gleði því allir vissu að sigurinn tryggði Íslandi leik
á móti Englandi, draumur allra knattspyrnuáhugamanna
rættist á þessum sólríka degi í París.
Ísland 2-1 England (EM 2016)
Í Nice fór fram leikur sem enginn knattspyrnuáhugamaður á Íslandi mun
gleyma og líklega ekki á Englandi heldur. Í 16 liða úrslitum EM á fyrsta stórmóti
Íslands voru væntingarnar til íslenska liðsins ekki miklar, liðið fór pressulaust
inn í leikinn og hafðu engu að tapa. Englendingar byrjuðu vel og Wayne Rooney
skoraði mark úr vítaspyrnu snemma leiks. Adam var þó ekki lengi í Paradís en
Ragnar Sigurðsson jafnaði skömmu síðar og þá fóru Englendingar á taugum. Ís-
lenska liðið skoraði svo sigurmark leiksins á 18. mínútu þegar Kolbeinn Sigþórs-
son skoraði og tryggði Íslandi miða í 8 liða úrslitin. Magnað kvöld í Hreiðrinu í
Nice þar sem mikill fjöldi Íslendinga var á svæðinu, kvöld sem aldrei gleymist.
2 1