Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 26
2 Í góðum málum Helgarblað 16. júní 2017KYNNINGARBLAÐ
Málarameistarafélagið var stofnað fyrir 89 árum. Stofnfundur félagsins var
haldinn í baðstofu iðnaðarmanna
við Vonarstræti í Reykjavík, þann
26. febrúar árið 1928. Tilgangur
félagsins var meðal annars sá
að efla samvinnu meðal málara
meistara og stuðla að menningu
og menntun stéttarinnar, gæta í
hvívetna hagsmuna félagsmanna
og vera málsvari félagsmanna
gagnvart almenningi og hinu
opinbera.
Óhætt er að segja að þessi
atriði séu í fullu gildi enn þann dag
í dag og afar mikilvægt er að gæta
að fagmennsku innan málarastétt
arinnar og stuðla að því að einung
is aðilar með tilskilin réttindi sinni
þessum mikilvægu verkefnum sem
svo mjög snerta hag almennra
borgara, fyrirtækja og stofnana.
Ötullega hefur verið unnið að
hagsmunamálum félagsins frá
upphafi og hafa margir lagt þar
hönd á plóginn í gegnum tíðina
í hinum ýmsu trúnaðarstörfum.
Mannaskipti í stjórn hafa ekki verið
mjög tíð í gegnum árin og má segja
að í þeim efnum hafi ríkt stöðugleiki
með hæfilegri endurnýjun.
Málarameistarafélagið hefur
unnið ötullega að verkmenntun
málarastéttarinnar í gegnum tíðina
og árið 1953 kom félagið því til
leiðar að málaradeild var stofnuð
innan Iðnskólans í Reykjavík.
Ábyrgðarsjóður MSI
Málarameistarafélagið er félagi
í Meistaradeild Samtaka iðnað
arins (SMI) og þar með aðili að
Ábyrgðarsjóði MSI. Tilgangur
ábyrgðarsjóðsins er meðal annars
sá að skapa traust á milli verk
kaupa og verktaka og tryggja
viðskiptavinum félagsmanna MSI
eins og kostur er að vinna sem
framkvæmd er af félagsmönnum
MSI sé í samræmi við skriflegt
samkomulag um verkið og góð
fagleg vinnubrögð. Standist vinna
af einhverjum ástæðum ekki þær
kröfur sem viðskiptavinur gerir til
verksins getur hann lagt málið fyrir
Úrskurðarnefnd MSI.
Mikilvægt að sniðganga
fúskara
Í langflestum tilfellum er íbúðar
húsnæði fjölskyldunnar stærsta
eign hennar og oft og tíðum það
sem allt fjármálakerfi fjölskyldunn
ar snýst um. Það er því mjög mikil
vægt fyrir þá sem ætla að sinna
viðhaldi og fá til þess utanaðkom
andi aðila, að þeir athugi vel hvort
þeir aðilar sem þeir eiga viðskipti
við séu þeir fagmenn sem þeir
segjast vera og uppfylli þær skyld
ur og ábyrgð sem fagréttindunum
fylgja. Því miður eru allt of mikil
brögð að sviksamlegum verkum
með afar slæmum afleiðingum
fyrir verkkaupa. Til að fyrirbyggja
slíkt er mikilvægt að eiga eingöngu
viðskipti við raunverulega fag
menn. Mikilvægt er að fá skrifleg
tilboð og ef um stærri fram
kvæmdir er að ræða, að gerður sér
skriflegur samningur þar sem fram
kemur um hvað er samið, verð og
svo framvegis.
Vantar fleiri í fagið
Már segir að miklir og góðir at
vinnumöguleikar séu í faginu og
skortur sé á málarameisturum.
Hvetur hann ungt fólk til að kynna
sér þessa iðngrein sem býður
upp á fjölbreytt og skemmtilegt
starfsumhverfi og góða framtíð
á vinnumarkaðnum. Sjá nánar
um nám í málaraiðn á vefnum
malarar.is undir liðnum Hagnýtar
upplýsingar.
Hægt að senda beiðni um tilboð
í verkefni í gegnum vef félagsins
Á heimasíðu Málarameistara
félagsins, malarar.is, er að finna
upplýsingar um málarameistara
sem eru með sín réttindamál á
hreinu og standa undir nafni með
vönduðum vinnubrögðum. Einnig
er þar að finna ítarlegar upplýs
ingar um hvernig best er að standa
að því að fara í verklegar fram
kvæmdir, hvað þarf að hafa í huga
og hvað ber að athuga.
Mögulegt er að setja inn beiðni
um tilboð í verkefni á heimasíð
unni og fá þá allir félagsmenn
tilkynningu þar um. Þetta getur því
sparað fólki tíma frá símhringing
um ásamt því að sjálfsögðu að það
tryggir sér áreiðanlegan verktaka
með reynslu og ábyrgð á sínum
verkum.
Málarameistarafélagið er
til húsa að Borgartúni 35, 105
Reykjavík. Skrifstofa félagsins er
opin á miðvikudögum frá kl. 10 til
16. Síminn er 5681165 og netfang
mmf@malarar.is Heimasíða:
malarar.is.
Mikilvægt
að leita til
fagmanna
HægT að SEnda BEIðnI uM
TIlBoð Í VERk Á MalaRaR.IS