Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Side 26
2 Í góðum málum Helgarblað 16. júní 2017KYNNINGARBLAÐ Málarameistarafélagið var stofnað fyrir 89 árum. Stofnfundur félagsins var haldinn í baðstofu iðnaðarmanna við Vonarstræti í Reykjavík, þann 26. febrúar árið 1928. Tilgangur félagsins var meðal annars sá að efla samvinnu meðal málara­ meistara og stuðla að menningu og menntun stéttarinnar, gæta í hvívetna hagsmuna félagsmanna og vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opinbera. Óhætt er að segja að þessi atriði séu í fullu gildi enn þann dag í dag og afar mikilvægt er að gæta að fagmennsku innan málarastétt­ arinnar og stuðla að því að einung­ is aðilar með tilskilin réttindi sinni þessum mikilvægu verkefnum sem svo mjög snerta hag almennra borgara, fyrirtækja og stofnana. Ötullega hefur verið unnið að hagsmunamálum félagsins frá upphafi og hafa margir lagt þar hönd á plóginn í gegnum tíðina í hinum ýmsu trúnaðarstörfum. Mannaskipti í stjórn hafa ekki verið mjög tíð í gegnum árin og má segja að í þeim efnum hafi ríkt stöðugleiki með hæfilegri endurnýjun. Málarameistarafélagið hefur unnið ötullega að verkmenntun málarastéttarinnar í gegnum tíðina og árið 1953 kom félagið því til leiðar að málaradeild var stofnuð innan Iðnskólans í Reykjavík. Ábyrgðarsjóður MSI Málarameistarafélagið er félagi í Meistaradeild Samtaka iðnað­ arins (SMI) og þar með aðili að Ábyrgðarsjóði MSI. Tilgangur ábyrgðarsjóðsins er meðal annars sá að skapa traust á milli verk­ kaupa og verktaka og tryggja viðskiptavinum félagsmanna MSI eins og kostur er að vinna sem framkvæmd er af félagsmönnum MSI sé í samræmi við skriflegt samkomulag um verkið og góð fagleg vinnubrögð. Standist vinna af einhverjum ástæðum ekki þær kröfur sem viðskiptavinur gerir til verksins getur hann lagt málið fyrir Úrskurðarnefnd MSI. Mikilvægt að sniðganga fúskara Í langflestum tilfellum er íbúðar­ húsnæði fjölskyldunnar stærsta eign hennar og oft og tíðum það sem allt fjármálakerfi fjölskyldunn­ ar snýst um. Það er því mjög mikil­ vægt fyrir þá sem ætla að sinna viðhaldi og fá til þess utanaðkom­ andi aðila, að þeir athugi vel hvort þeir aðilar sem þeir eiga viðskipti við séu þeir fagmenn sem þeir segjast vera og uppfylli þær skyld­ ur og ábyrgð sem fagréttindunum fylgja. Því miður eru allt of mikil brögð að sviksamlegum verkum með afar slæmum afleiðingum fyrir verkkaupa. Til að fyrirbyggja slíkt er mikilvægt að eiga eingöngu viðskipti við raunverulega fag­ menn. Mikilvægt er að fá skrifleg tilboð og ef um stærri fram­ kvæmdir er að ræða, að gerður sér skriflegur samningur þar sem fram kemur um hvað er samið, verð og svo framvegis. Vantar fleiri í fagið Már segir að miklir og góðir at­ vinnumöguleikar séu í faginu og skortur sé á málarameisturum. Hvetur hann ungt fólk til að kynna sér þessa iðngrein sem býður upp á fjölbreytt og skemmtilegt starfsumhverfi og góða framtíð á vinnumarkaðnum. Sjá nánar um nám í málaraiðn á vefnum malarar.is undir liðnum Hagnýtar upplýsingar. Hægt að senda beiðni um tilboð í verkefni í gegnum vef félagsins Á heimasíðu Málarameistara­ félagsins, malarar.is, er að finna upplýsingar um málarameistara sem eru með sín réttindamál á hreinu og standa undir nafni með vönduðum vinnubrögðum. Einnig er þar að finna ítarlegar upplýs­ ingar um hvernig best er að standa að því að fara í verklegar fram­ kvæmdir, hvað þarf að hafa í huga og hvað ber að athuga. Mögulegt er að setja inn beiðni um tilboð í verkefni á heimasíð­ unni og fá þá allir félagsmenn tilkynningu þar um. Þetta getur því sparað fólki tíma frá símhringing­ um ásamt því að sjálfsögðu að það tryggir sér áreiðanlegan verktaka með reynslu og ábyrgð á sínum verkum. Málarameistarafélagið er til húsa að Borgartúni 35, 105 Reykjavík. Skrifstofa félagsins er opin á miðvikudögum frá kl. 10 til 16. Síminn er 568­1165 og netfang mmf@malarar.is Heimasíða: malarar.is. Mikilvægt að leita til fagmanna HægT að SEnda BEIðnI uM TIlBoð Í VERk Á MalaRaR.IS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.