Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Blaðsíða 38
Plata undir
íslenskum áhrifum á
BillBoard-lista
Ísak Leví er ungur rokkaðdáandi
Fimmta plata blússöngkonunn-ar Karen Lovely, Fish Outta Water, situr nú í þrettánda sæti á
blúsplötulista Billboard, þrátt fyrir að
vera enn ekki komin út, en forpantanir
á plötunni koma henni inn á listann.
Plötuumslagið og lögin á plötunni eru
undir áhrifum frá Íslandi, enda hefur
Lovely heimsótt landið oftar en einu
sinni og er heilluð af landi og þjóð.
„Já, nýja platan mín er undir
miklum áhrifum frá Íslandi og
þeim tíma sem ég varði þar,“ segir
Karen. „Myndir á plötuumslaginu
eru myndir sem ég tók á Íslandi og
lagið „Under the Midnight Sun“ er
skrifað um Íslandsdvölina. Ég kom
þrisvar til Íslands í fyrra og vinirnir
sem ég eignaðist í þeim ferðum
breyttu lífi mínu. Ég var svo lánsöm
að koma fram á Blúshátíð í Reykja-
vík og það var einstök upplifun.“
Karen hóf söngferilinn árið
2007, þá komin vel á fimmtugs-
aldur. Hún hefur verið tilnefnd
til verðlauna fyrir söng sinn og
lagasmíðar, síðast í fyrra þegar hún
var tilnefnd sem besta samtímablús-
konan á Blues Music Awards.
Í fyrra, þegar hún var gestur á
Blúshátíð í Reykjavík, söng hún
meðal annars afmælissönginn fyrir
tónlistarmanninn Kristján Kristjáns-
son, KK, sem átti sextugsafmæli þá.
Einnig söng hún fyrir Robert Barber,
þáverandi sendiherra Bandaríkjanna,
sem gaf henni sendiherranælu sína
sem þakklætisvott fyrir frábæra
frammistöðu á sviðinu.
„Í maí í fyrra kom ég svo aftur og
söng fyrir þá sem höfðu komið að og
unnið við blúshátíðina og tónlistar-
mennirnir sem spiluðu með mér á
hátíðinni voru svo frábærir, að ég bauð
þeim að koma með mér og gítarleikara
mínum á stóra hátíð sem var í Póllandi
í júlí,“ segir Karen heilluð af landi og
þjóð og bætir við að sex vinir hennar
búsettir í Bandaríkjunum hafi bókað
ferðir til Íslands eftir að hafa séð mynd-
ir frá Íslandsferðum hennar.
Hljómsveitin Dimma á sér fjölmarga aðdáendur á öllum aldri og einn af þeim er hinn
sjö ára gamli Ísak Leví Daníelsson.
Hann hefur farið á tónleika með
sveitinni og nýlega varði hann kvöldi
við að hlusta á nýjustu plötu sveitar-
innar og skrifa upp lagatexta.
„Hann er forfallinn Dimmu-
aðdáandi frá fimm ára aldri og við
feðgar deilum lotningunni fyrir
Dimmu og mamma hans er líka
laumuaðdáandi eins og flestir,“ segir
faðir Ísaks Levís, Daníel Kjartan
Ármannsson.
Fjölskyldan hefur farið á fjöl-
skyldutónleika Dimmu, til dæmis á
Húrra, og í fyrra fór hún á Dimmu
og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í
Eldborgarsal Hörpu.
dimma í
uPPáhaldi
RokkaRi
Rokkarar eru
ekki alltaf
háir í loftinu.
ELdRauniR Ísak Leví að hlusta
á Eldraunir og textinn við lagið Í
auga stormsins kominn á blað.
karen Lovely heimsfræg
blússöngkona heilluð af Íslandi
ÞRjáR stóRgóðaR Söngkonurnar
Stefanía Svavarsdóttir, Karen og
Andrea Gylfadóttir á Hilton árið 2016.
gLatt á hjaLLa Karen og
vinir hennar fyrir utan hús Hrafns
Gunnlaugssonar í Laugarnesinu.
BLúsaRaR
Karen og rjómi
íslenskra blúsara
bíða eftir að
stíga á svið.
tRoðið upp Í CadiLLaC-kLúBBnum Karen steig á svið í
Cadillac-klúbbnum ásamt Hallóri Bragasyni (Dóra blús), Ásgeiri
Óskarssyni, Róbert Þórhallssyni og Guðmundi Péturssyni.