Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Síða 58

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2017, Síða 58
34 menning - hönnun Helgarblað 16. júní 2017 A M. Concept Space er ný konseptverslun og sýn- ingarrými fata- og textíl- hönnuðanna Anítu Hirlekar og Magneu Einarsdóttur. Í versluninni, sem staðsett er í Garðastræti 2, fást fal- legar flíkur frá þeim báðum. Hug- myndin að baki versluninni byggist á breytileika, fallegri útfærslu og samrunaeiningu mismunandi lista- og hönnunarvara. Báðar leggja þær ríka áherslu á textíl og áferðir í hönnun sinni þótt nálgun þeirra sé gjörólík. Þær eiga það sameiginlegt að hafa báðar verið tilnefndar til Hönnunarverð- launa Íslands fyrir verk sín. Ekki hefðbundin fataverslun Verslunin er ekki hin hefðbundna fataverslun. Reglulega fá hönnuðirnir til liðs við sig þriðja listamanninn eða hönnuðinn til að útfæra rýmið og flíkurnar á nýjan hátt. Rýmið er hrátt og hugsað sem tómur strigi fyrir listamanninn hverju sinni. Þannig skapa þær skemmtilegan og breytilegan heim í kringum búðina og vörurnar og auka jafnframt upplifun gesta. Þær bjóða hvern listamann velkominn með því að halda sérstakt opnunar- hóf með mismunandi áherslum eftir eðli samstarfsaðilans. Þær hafa opið á hefðbundnum búðartíma en bjóða einnig upp á persónulegri þjónustu og heimsóknir, þar sem einstaklingar eða hópar geta bókað tíma utan opnunartímans, en þessi kostur hefur verið vinsæll hjá vinkonuhópum sem vilja koma saman og fá nánari kynningu á hönnuðun- um og vörunum sem í boði eru hverju sinni, en heimsóknir geta verið sniðn- ar að hverjum hóp fyrir sig. Vel heppnaðri listsýningu með Auði Ólafs lauk á dögunum þar sem verk Auðar skreyttu búðina og voru til sölu. Í framhaldinu fengu þær stöllur, Aníta og Magnea, Angan vörumerkið til liðs við sig. Fyrir þá sem ekki vita er Angan íslenskt, sjálf- bært og handgert húðvörumerki. Íris Ósk Laxdal, stofnandi Angan, hefur lagt sig fram við að skapa hugarheim sem á að vera sannköll- uð upplifun fyrir öll skilningarvit. Í opnunarhófi á dögunum var sem dæmi boðið upp á ginkokteil með lavender og salti en húðvörurnar eru búnar til úr íslensku sjávarsalti og villtum jurtum. Nú er rýmið gjör- ólíkt því sem var þegar listsýningin fór fram fyrir örfáum dögum og má sjá íslenskar jurtir í uppstilling- um, gestir geta prófað íslensku húð- vörurnar og mátað einstakar kven- flíkur frá Magneu og Anítu. Möguleiki á sýningaraðstöðu Hvaðan kom hugmyndin um rýmið í Garðastræti? „Við höfðum verið að leita að sam- eiginlegri vinnustofu með möguleika á sýningaraðstöðu í svolítinn tíma þegar Garðastrætið kom upp í hend- urnar á okkur. Við sáum strax hvað rýmið bauð upp á mikla möguleika. Við erum sammála um að hug- myndin um rými sem fataverslun ein og sér sé dálítið einhæf og henti ekki endilega okkar hönnun. Við viljum bjóða upp á ákveðna heildarupplif- un og nýja hugmyndafræði.“ Teljið þið ykkar búð hafa sérstöðu? „Okkur hefur fundist vanta ákveðinn skilning á fatahönnun sem einhverju öðru en varningi sem hægt sé að kaupa. Við viljum að fólk fái tækifæri til að sjá vinnuferli okkar, að sú vara sem við kynnum sé afrakstur skapandi ferlis okkar. Hugmynda- fræði verslunarinnar er því ákveðið samtal, okkar á milli sem hönnuða og við þriðja aðila úr öðrum skap- andi greinum, en hugmyndin er að reglulega fáum við inn nýjan aðila til að kynna sín verk eða vöru og skapa nýja upplifun í búðinni.“ Síbreytilegt rými Hverjir fleiri koma í samstarf á næstu mánuðum? „Við erum búnar að bóka sam- starf við ýmsa aðila út árið og höfum ekki sett okkur neinar skorð- ur þar sem við viljum ekki takmarka okkur við eitthvert eitt listform heldur þvert á móti að rýmið verði síbreytilegt og því erum við opnar fyrir öllum miðlum. Nafnið sem við völdum á verslunina gefur þetta til kynna, A. M. Concept Space stend- ur fyrir Anita Hirlekar og Magnea Concept Space og þýðir í raun að vörur okkar séu þar til sölu en rým- ið sé opið fyrir ýmsu samstarfi. Þegar við opnuðum verslunina vor- um við með verk til sýnis frá Auði Ómarsdóttur myndlistakonu, mjög litrík verk sem skreyttu veggina og fataslárnar voru þá í miðjunni á meðan núverandi samstarf við Írisi Ósk hjá Angan leggur meiri áherslu á búðargluggann og upplifun á hennar vöru í gegnum önnur skyn- færi en augun. Það er áhugavert að sjá vörurnar okkar í nýju samhengi þegar við vinnum með mismunandi listamönnum.“ n Magnea og Aníta saman í skemmtilegri verslun n A. M. Concept Space er ný konseptverslun og sýningarrými n Bjóða til sín listamönnum Hönn- unar- Horn Kolfinna Von Arnardóttir kolfinna@artikolo.is Magnea og Aníta „Við viljum bjóða upp á ákveðna heildarupplifun og nýja hug- myndafræði.“ Myndir Sigtryggur Ari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.