Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Qupperneq 33
2 Sjávarútvegur Helgarblað 8. september 2017KYNNINGARBLAÐ
Úr bátasmíði í margháttaða
þjónustu við smábátaútgerð
Baldur Halldórsson
Árið 1953 hóf Baldur Hall-dórsson smíði
trillubáta á Hlíðarenda
við akureyri eftir að
hafa lokið meistara-
prófi í skipasmíðum.
Tæplega aldarfjórðungi
síðar hóf hann innflutn-
ing á vörum og vélbún-
aði fyrir minni fiskiskip.
Á seinni árum hefur
starfsemin þróast yfir í
viðgerðir og breytingar
á bátum, margháttaða
þjónustu við eigend-
ur minni fiskiskipa og
sölu á vélbúnaði
og margvíslegri
vöru fyrir báta
frá mjög þekkt-
um og virtum
erlendum fram-
leiðendum.
Baldur Hall-
dórsson er nú
látinn en fyrir-
tækið, með nafni
hans, er í eigu
systkinanna sig-
urðar Hólmgeirs
Baldurssonar og
Ingunnar Kristínar
Baldursdóttur, sem halda
merki föður síns á lofti með
því að þróa starfsemina
áfram.
„Í dag erum við sáralítið í
nýsmíði báta en við gerum
við báta, gerum þá upp,
lengjum þá og breytum
gömlum bátum,“ segir sig-
urður. umfangsmikill hluti af
starfseminni er sala á ýmiss
konar vöru og vélbúnaði fyrir
báta og minni fiskiskip.
Helsti birgirinn er hið
þekkta og virta hollenska
fyrirtæki Vetus B.V. sem er
eitt af stærstu fyrirtækjum
í Evrópu á sviði vélbúnaðar
og vöru fyrir minni fiskiskip.
samstarfið við Vetus hófst á
miðjum áttunda áratugnum.
„Gamli maðurinn hitti þá á
sýningu í london fyrir ríflega
40 árum og upp úr
því hófst þetta langa
og gæfuríka sam-
starf,“ segir sigurður.
„Við erum auk þess
með skipalakk og
botnmálningu frá
ítalska fyrirtækinu Veneiani,
Patey-handdælur frá Pump
International og mikið úrval
af rafmagnsdælum frá TMC-
In,“ bætir hann og nefnir
einnig til sögunnar alls konar
„sportvörur“ eða aukabúnað,
s.s. bjargvesti, árar og fleira.
„Við erum með gríðarstóran
lager af vörum og sendum í
pósti um allt land,“ segir hann
enn fremur.
Fyrirtækið Baldur Hall-
dórsson leggur mikla áherslu
á góða og persónulega þjón-
ustu og sömu aðilarnir leita
aftur og aftur til fyrirtækisins
um þjónustu. sigurður hefur
starfað í fyrirtækinu í um þrjá
áratugi og segir að tíminn
hafi liðið hratt: „Mér finnst ég
stundum vera orðinn gamall
þegar hingað leita til mín
kornungir menn og segja: afi
sagði mér að koma til þín,“
segir hann og hlær.
Þrjár manneskjur eru í fullu
starfi hjá Baldri Halldórssyni
og einn í hlutastarfi en fyrir-
tækið á auk þess í miklu sam-
starfi við járnsmíðaverkstæði
og rafvirkja til að veita við-
skiptavinum sínum þá þjón-
ustu sem þeir þurfa. Baldur
Halldórsson er enn til húsa á
sínum upphaflega stofnstað,
að Hlíðarenda, sem er í um
2,5 kílómetra fjarlægð frá
miðbæ akureyrar – við veg-
inn upp að skíðasvæðinu.
Nánari upplýsingar er
að finna á vefsíðunni
baldurhalldorsson.is.