Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Síða 41
 Vel mælt Afmælisbörn vikunnar Halldór Baldursson, skopmyndateiknari og myndskreytir. Fæddur 12. september 1965. 52 ára 43 ára 42 ára Þóranna Sigurðardóttir, leikstjóri. Fædd 14. september 1974. Barði Jóhannsson, tónlistar- og markaðs- maður. Fæddur 10. september 1975. Konur um konur frá konum „Svona norpuðum við um aldir, konur á Íslandi, eigandi varla nokkra bók, stundum ólæsar og dóu allar úr leiðindum sem hneigð- ar voru til lesturs en hinar tórðu og fylla nú landið.“ Málfríður Einarsdóttir – Samastaður í tilverunni „Allt sem konur gera verða þær að gera tvisvar sinnum betur en karlmenn til að fá helmingi minni viðurkenningu en þeir.“ Charlotte Whitton „Ég er ógift móðir þriggja barna og hreint alveg einstök í minni röð. Er mér sagt. Og svona einstök er ég: Ég er dugleg, ég er góð, ég er hugrökk og kjörkuð, ég er sterk, atorkusöm og þolinmóð, fórnfús, iðjusöm, indæl og alltaf í góðu skapi, þrátt fyrir allt. Ég er eins og óritskoðuð minningargrein.“ Auður Haralds – Hvunndagshetjan „Ég er alveg sannfærð um það að á 21. öld munu konur, með skynsemi og menntun að vopni, verða bjargvættir heimsins.“ Vigdís Finnbogadóttir Orðabanki Birtu Hreppsómagi Birta veltir fyrir sér íslenskum orðum og merkingu þeirra. Orð vikunnar er hreppsómagi en þetta uppnefni var notað yfir fólk sem var á framfærslu hreppsins á öldum áður. Í dag er þetta sérstaka orð, sem m.a. kemur af orðinu „ómegð“ gjarna notað af gárungum um þau sem starfa hjá ríki eða borg. Úr íslensku orðabókinni hrepps·ómagi KK • sá sem er á framfæri hrepps (að nokkru eða öllu leyti), sveitarlimur Samheiti hreppsómagi niðursetningur, sveitarlimur, sveitarómagi, þurfalingur Heimsljós - Kraftbirtíngarhljómur guðdómsins 24. kafli, síða 123 -Heyrðu, hvað sagði hann Reimar þér annars um mig á heiðinni í dag? -Hann sagði að þú hefðir feingið sex biðilsbréf frá mönnum. -O hann lýgur því, helvítis graddinn sá arna, sem er margfaldur hreppsómagi, með kellíngu og krakka á Sviðinsvík, fyrir nú utan öll lausa- leiksbörn. Það var hann sjálfur sem skrifaði öll bréfin til mín uppúr sjálfum sér, en honum skal ekki verða kápan úr því klæðinu, þó hann sé bæði frjálslyndur og geti hnoðað saman vísu, það skal þurfa meira skáld til að fara undir fötin við mig og hana Þórunni litlu í Kömbum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.