Dagblaðið Vísir - DV - 08.09.2017, Page 45
HEITT
Glerkrukkur
Miklu þægilegri ílát og betri
fyrir heilsuna en plast.
Frönsku kartöflurnar á
Roadhouse
Þær albestu í borginni segja
hámenntaðir frönskufræðingar
Birtu.
Kíkt‘í kaffi Facebook
Kemur aldrei í staðinn fyrir
alvöru spjall við eldhúsborðið.
Kíkt‘í kaffi!
Díana prinsessa
Tuttugu árum eftir andlátið
er hún enn prinsessa fólksins.
Mögulega heimsins
KALT
Plast
Plastið er víst að kæfa jörðina.
Sniðgöngum þennan ófögnuð
eftir bestu getu.
Dab-pósan
Þetta er komið gott. Takk. Þið
megið hætta þessu.
Tinder
Íslendingar virðast halda að net-
stefnumót snúist bara um eitt.
Bláberjaseiður með kókosrommi og límónu
Nú fer berjatíð senn að ljúka og margir landsmenn búnir að fylla frystinn af dásamlegum eðal bláberjum. Margir nýta þessa dásamlegu afurð í bökur og sultur eða saft en hvers vegna ekki
að prófa eitthvað nýtt? Hér er uppskrift að ljúffengum kokteil sem gerð-
ur er úr Malibu-rommi, límónu og bláberjum. Þessi drykkur fer vel á
hausti. Er ljúffengur og frískandi og hentar mjög vel sem fordrykkur þar
sem fámennari hópur vinafólks kemur saman. Ef einhver kýs að sleppa
hananum úr stélinu má nota kókosbragðefni eða kókossafa í staðinn
fyrir Malibu-romm. Uppskriftin miðast við fjögur glös.
INNIHALD
700 ml kaldur
bláberjasafi
2,5 dl ískalt sódavatn
Sirka 2,5 dl af fro snum bláberjum og nokkur fersk
120 ml Malibu
Safi úr einni límónu Límónubátar til skrauts
AÐFERÐ
Byrjaðu á að setja botnfylli af frosnum berjum í hvert glas. Bættu við
bláberjasafa, sódavatni og einu skoti af Malibu; hrærðu varlega. Kreistu
límónusafa yfir og skreyttu með límónu. Skál!
Á laugardaginn mun ég stýra myndasögu-smiðjunni Skáldað í
eyðurnar í barnahelli Norræna
hússins. Viðburðurinn er á
vegum Bókmenntahátíðar og
IBBY. Þetta verður milli 13.30
og 15.30 og er öllum börnum og
þeirra fylgifiskum velkomið að
taka þátt í myndasögusmiðjunni.
Ég mun blaðra um myndasögur
og leiðbeina áhugasömum um
fyrirbærið. Um kvöldið ætlum
við poppar arnir í FM Belfast
að spila á 20 ára afmælishátíð
Októberfest SHÍ. Við höfum
verið að æfa okkur á Norðmönn-
um og meginlandsbúum í sumar
og erum þrautþjálfuð í alls konar
hundakúnstum skemmtikrafta.
Á sunnudaginn verð ég svo mjög
líklega á grúfu ofan í legókubba-
haug með syni mínum.“
Hvað ætlarðu að gera um helgina?
Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir teiknari, rithöfundur og poppari í FM Belfast: Ætlar að fjalla
um myndasögur, syngja og tralla og enda svo á grúfu ofan í legókubbahaug.