Fréttablaðið - 18.10.2017, Page 32
Oddný á sér nokkra uppá-haldshluti í eldhúsinu. Hún þarf ekki að hugsa sig lengi
um þegar hún nefnir KitchenAid
hrærivélina, steypujárnspönnuna,
mortélið og gömlu góðu kaffikönn-
una. „Ég er engin græjukona,“ segir
hún. „Hrærivélin mín er tuttugu
ára og mikið notuð. Ég gæti ekki án
hennar verið. Kaffikannan mín Lucy
er 11 ára kaffihúsavél. Hún malar
baunirnar og dagurinn hjá mér er
ónýtur ef ég fæ ekki góðan latte á
morgnana. Þetta er það tæki í hús-
inu sem heldur heimilinu gangandi.
Mortélið mitt er þungt og
verklegt. Ég nota það til að búa til
kryddblöndur, guacamole, myl
pipar ásamt mörgu öðru. Ég var
einu sinni á mexíkóskum stað í New
York og þar gerði kokkurinn einmitt
guacamole á borðinu hjá okkur í
mortéli. Hann notaði ekki hvítlauk
frekar en ég. Það á nefnilega ekki að
vera hvítlaukur í guacamole eins og
margir halda,“ segir Oddný. „Eftir að
ég horfði á mortélið notað á þennan
hátt hef ég ekki gert guacamole
öðruvísi,“ bætir hún við.
Fjórða áhaldið sem Oddný nefnir
er steypujárnspanna. „Hún kemur úr
gömlu sænsku fjölskyldufyrirtæki.
Vinur minn sem er matreiðslumaður
í Svíþjóð sendi mér pönnuna en ég
þarf að halda á henni með báðum
höndum, svo þung er hún. Ég er búin
að elda á gasi í tuttugu ár og nota
pönnuna í alls konar eldun, steiki
bæði fisk og kjöt eða baka ítalskt
focaccia-brauð. Þegar ég elda góða
steik hita ég pönnuna fyrst í ofninum
í hálftíma svo hún verði sjóðheit en
þá verður kjötið fallega eldað.
Pannan fékk sérstaka meðhöndlun
þegar hún var ný. Ég bar olíu á hana
og hitaði í ofninum þangað til húð
myndaðist á hana, síðan var hún
kæld og þerruð með eldhúspappír.
Síðan er meðferðin endurtekin. Hún
fær ákveðna vörn með þessari aðferð
en það má aldrei sápuþvo svona
pönnu.“
Oddný hefur mikla ánægju af
því að vera í eldhúsinu en segist
ekki safna áhöldum. „Ég fer oft í
bús áhaldaverslanir þegar ég er á
ferðalagi. Verslanir eins og William
Sonoma í New York og Sur la table.
Ég kaupi aðallega viskustykki og jafn-
vel einhverja matvöru sem fæst ekki
hér heima, pasta eða kryddblöndur.
Stundum kaupi ég bolla eða kopar-
könnur. Annars er ég ekki mikið
Gæðastundir við matargerðina
Oddný Magnadóttir er ástríðukokkur sem leggur mikla áherslu á góðan mat og að hafa fjöl-
skylduna í kringum sig. Hún er nýtin í eldhúsinu og kaupir vandaða hluti sem endast lengi.
Dagurinn byrjar á kaffi latte hjá Oddnýju og þess vegna er kaffivélin í miklu uppáhaldi. MYNDir/EYÞÓr
Steikarpannan góða á fínu gaseldavélinni.Oddný gerir guacamole í mortélinu.
Hrærivélin góða gerir enn sitt gagn þótt hún sé orðin gömul. Brauðristina við
hliðina er hægt að nota í samlokugerð.
fyrir að sanka að mér hlutum, nota
til dæmis 30 ára gamlan ostaskera.
En þegar gamli handþeytarinn minn
gaf upp öndina keypti ég auðvitað
nýjan,“ segir Oddný en henni finnst
vera mikil hvíld að standa í elda-
mennsku. „Við erum tvö í heimili en
ég elda engu að síður á hverju kvöldi.
Mér finnst mikil gæðastund þegar
sest er niður yfir kvöldmatnum,
hvort sem við erum bara tvö eða öll
stórfjölskyldan. Það hefur lengi verið
draumur minn að fara á kokka-
námskeið til Ítalíu, Marokkó eða
Grikklands. Ég læt kannski verða af
því einhvern tíma enda finnst mér
svo óendanlega gott að borða. Það
er eitthvað sérstakt tilfinningasam-
band milli mín og matarins,“ segir
Oddný sem segist líka vera dugleg
að fara út að borða bæði hér á landi
og erlendis. „Ég veit ekkert skemmti-
legra en að taka langar máltíðir með
góðum mat.“
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
SÆBJÚGNAHYLKI FYRIR HEILSUNA
Arctic star sæbjúgnahylki
innihalda yfir fimmtíu tegundir af
næringarefnum, og eru þekkt fyrir:
• Hátt próteininnihald og lágt fituinnihald
• Að minnka verki í liðum og liðamótum
• Að byggja upp brjósk og draga úr tíðni
liðskemmda
• Að bæta ónæmiskerfið
• Að auka blóðflæði
• Að koma í veg fyrir æðakölkun
• Að auka orku líkamans, stuðla að
myndun húðpróteins og insúlins
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA, Framleiðandi er
Arctic Star ehf. Allar nánari upplýsingar
fást á www.arcticstar.is
Arctic Star sæbjúgnahylki
Varan fæst í flestum apótekum,
heilsubúðum og hagkaupum.
Hrein húsgögn fyrir jólin
Hreinsum stóla, sófa, dýnur, rúm,
mottur og margt fleira.
FYRI
R
EFTI
R
Mygluþrif og lyktareyðing á öllum ökutækjum
og oson-meðferð ef þess þarf.
Eldshöfði 8, 110 Rvk. S: 577-5000
Við erum á facebook
Verum tímanlega í ár
4 KYNNiNGArBLAÐ FÓLK 1 8 . O K tÓ B E r 2 0 1 7 M I ÐV I KU DAG U R
1
8
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:3
3
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
0
-E
6
0
0
1
E
0
0
-E
4
C
4
1
E
0
0
-E
3
8
8
1
E
0
0
-E
2
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
7
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K