Fréttablaðið - 21.10.2017, Síða 80
Massimo Santan i c c h i a e r með aðstöðu á fimmtu hæð í húsnæði Listah á s k ó l a n s í
Þverholti. Á bókasafni skólans á
sömu hæð er gott útsýni yfir mið
borgina og ótal byggingarkranar
teygja sig til himins. Massimo telur
kranana, tólf, segir hann og brosir.
Honum finnst óþarflega mikil
áhersla á þéttingu í miðborginni.
„Sjáðu þessa byggingu hér,“ segir
hann og bendir á nýlega byggð fjöl
býlishús hinum megin við götuna.
Prýðilegar byggingar klæddar með
bárujárni og svalir fyrir hverja íbúð.
„Sérðu eitthvað athugavert?“ Eftir
stutta þögn bendir Massimo á að
engar dyr séu sýnilegar á bygging
unni frá götunni.
Byggingin sé þannig eins og virki
frá götunni. Inngangurinn varinn
og falinn. „Þannig verður mannlífið
minna. Þetta eru skilaboð. Hér erum
við og hér eruð þið. Mannlífið verður
minna á götunni. Öryggi íbúa eykst
ekki, það minnkar.“
Svona hugsar Massimo. Allt
umhverfi okkar er hannað og stund
um leiðir hönnunin til góðs, til vel
líðunar og farsældar, meira öryggis.
Stundum leiðir hún til inniveru,
minni samskipta, minna öryggis.
„Því eftir allt saman þá er það vera
fólks á götum sem eykur öryggi.“
Arkitektúr er pólitík
Blaðamaður beinir augum hans að
Hlemmi þar sem vinsæl mathöll í
evrópskum anda var nýverið opnuð.
Honum hugnast breytingarnar vel.
„Mjög þörf og góð breyting. Mann
lífið er meira og það er jákvætt. Svo
er næsta skref ef til vill að huga betur
að umhverfinu. Hér gleymist oft að
huga að umhverfinu á milli bygg
inga. Það hvernig pláss er hannað
og skipulagt fyrir almenning getur
haft mikil áhrif á líf fólks. Bara það
hvernig plássi er skipt á milli bíla og
gangandi vegfarenda, hvort það er
hugað að því að skýla fólki fyrir veðri
og vindum. Hvort það er gróður.
Hvort umhverfi er hannað af ábyrgð
með tilliti til mengunar og loftslags
breytinga. Þetta er pólitík,“ segir
Massimo. „Hönnun er ákvörðun og
því er hún alltaf ákveðin pólitík.“
Massimo er ítalskur. Hann er
menntaður í Feneyjum, Stokkhólmi
og London og hefur starfað sem arki
tekt á Íslandi, í Bretlandi, Ísrael og á
Ítalíu bæði á vegum hins opinbera og
í einkageiranum. Hann hefur starfað
hjá Listaháskólanum árum saman.
Fyrst sem stundakennari og nú sem
dósent og fagstjóri við Hönnunar og
arkitektúrdeild skólans.
Hann býr í miðborginni, nánar
tiltekið á Njálsgötunni, og er mjög
umhugað um skipulagsmál.
„Ég elska Reykjavík, mér er mjög
annt um þessa borg. Breytingar
í arkitektúr og hönnun geta haft
mikið að segja um almannahags
muni. Það hvernig hugsað er og fram
kvæmt í arkitektúr getur leitt til kerf
islægra breytinga. Orðið umhverfinu
til góðs. Eða til hins verra. Arkitektúr
getur leitt til ójöfnuðar eða meiri
jöfnuðar,“ segir Massimo sem eitt
sinn tók dæmi um ójöfnuð í bygg
ingu Skuggahverfisins í miðborginni.
Hann hefur sagt hverfið lúxussölu
vöru þar sem útsýnið og töfrar mið
borgarinnar hafi verið seldir fáum.
Stærðarhlutföll bygginganna skeri
á tengslin við borgina og náttúruna.
Framkvæmdin hafi einkennst af
ójöfnuði á aðgangi að rými og sé brot
á jöfnum rétti allra til borgarinnar.
Hverfið sé áþreifanleg framsetning
þess að sumir borgarar hafi meiri
rétt en aðrir.
Borgir snúast um fólk
„Reykjavík á marga góða möguleika.
Í því samhengi þá verðum við að
muna að borgir snúast um fólk. Ég er
nýkominn frá Sviss og þar eru marg
ar borgir að breytast hratt. Þar er
áherslan á umhverfisvernd, að horfa
til framtíðar. Við verðum líka að
hugsa fram á veginn, hvernig ætlum
við að búa saman, hvernig verður
Reykjavík ríkari félagslega og hvernig
ætlum við að huga að umhverfinu?
Það besta sem við getum gert til að
vernda umhverfið er að hanna borgir
þar sem við getum sinnt okkar dag
legu verkefnum fótgangandi eða
með því að nota almenningssam
göngur,“ segir Massimo sem segir að
til þess að það takist þurfi að vera um
það sátt í samfélaginu.
„En við þurfum líka að tryggja að
samfélög okkar séu friðsöm, styðji
við fólk og félagslíf. Það er hægt
að gera með því að hanna borgir
betur,“ segir Massimo og segir fjöl
margt hægt að gera annað en það að
minnka umferð bíla. Hann bendir
á að það sé hægt að gera kröfu um
umhverfisvænni efni og gróður og
græn svæði tengd byggingum og
hanna svæði sem laða að mannlíf.
„Ábyrgð arkitektsins er að hanna
byggingu sem felur í sér þessa ábyrgð.
Það þarf líka að huga að almanna
rýminu, að fólki líði vel í því. Það er
í erfðaefni okkar að við þörfnumst
annarra. Við viljum geta verið með
fólki. En það þýðir ekki að við eigum
að byggja hverfi af skýjakljúfum. Eða
að þétta byggð í hverfi 101 meira en
hefur verið gert. Ég held að íbúar
annarra hverfa í Reykjavík myndu
aldrei sætta sig við þann yfirgang
sem íbúar miðborgarinnar verða
fyrir,“ segir Massimo og tekur sem
dæmi byggingaframkvæmdir og rask
vegna þeirra, fjölda framkvæmda og
bílastæðagjöld sem íbúar og gestir
þeirra eru rukkaðir um.
„Ég nefni þetta bara sem dæmi, til
að fá fólk til að setja sig í spor mið
borgarbúa. Myndu íbúar í úthverfum
sætta sig við þetta?“
Hann segir mikilvægt að finna leið
til að tengja betur saman íbúa borg
arinnar. Hann greini á Íslandi, rétt
eins og í Bretlandi og Bandaríkjun
um, ákveðinn klofning. „Það verður
sífellt meiri gjá á milli fólks. Þetta er
vandi sem arkitektúr og hönnun geta
átt þátt í að leysa,“ bendir hann á.
Meira samtal, meiri upplýsingar
En hvað um húsnæðisvandann í
Reykjavík – skort á húsnæði? Hefur
hann skoðun á því hvernig mætti
leysa vandann?
„Húsnæðisskortur er víða í borg
um, ekki bara í Reykjavík. Hér er
leigumarkaður ótryggur og dýr. Ég
var í Ástralíu nýverið og þar er líka
dýrt að kaupa fasteign. Spurningin
er, hvernig getum við hannað gott
hús sem fólk hefur ráð á? Í Ástralíu
er verkefni í gangi þar sem á sér stað
samtal á milli hugsanlegra kaupenda
og hönnuðar mjög snemma í ferlinu
þannig að notendurnir sjálfir geta
haft eitthvað um hönnunina að
segja. Þetta sýnist manni vera aug
ljóst. Að það þurfi að hlusta á þarfir
fólks. Hér á landi er það oftast þannig
að það er ákveðið að byggja, svo eru
byggingarnar hannaðar og byggðar.
Íbúarnir koma ekki inn í ferlið fyrr
en í lok þess.
Auðvitað er hlutverk arkitektsins
að sjá þarfir fólks fyrir. Skapa eitt
hvað nýtt. En mér sýnist að það megi
hlýða betur á almenning. Hvað hann
skortir. Hvað hann þarf. Þetta skort
ir. Það er líka skortur á upplýsingum
um þær framkvæmdir sem eru í
gangi í borginni nú þegar.
Það þarf líka að bæta samgöngur
í borginni. Fjölga valkostum, það er
ekki nóg að bjóða bara upp á wifi
í strætó,“ segir hann og brosir og
minnist á framkvæmdir við Miklu
braut þar sem er verið að fjölga
akreinum. Þar hafa einnig verið
byggðir skjólveggir sem aðgreina
gangandi vegfarendur frá götunni.
„Hönnunin er skilaboð til öku
manna um að þetta sé þeirra svæði.
Hér geti þeir keyrt hratt. Ég er ekki
viss um að það sé rétt leið. Og ekki
viss um að það auki öryggi eða bæti
borgarlífið,“ segir Massimo. „Það eru
líka vegaframkvæmdir við Hörpu
þar sem götum hefur verið lokað
tímabundið. Það er merkilegt að
fylgjast með því. Það hefur hægt á
umferðinni töluvert og gangandi
vegfarendum líður betur á svæðinu
þrátt fyrir framkvæmdirnar,“ segir
Massimo.
Hann segir fagið hafa breyst síð
ustu ár.
„Arkitektúr getur verið svo margt.
Fagið hefur breyst mikið síðustu ár
vegna þess að mikið af þekkingu
okkar hefur runnið til verkfræðinga.
Eftir stendur að fagið snýst meira
um kjarnann, fegurðina. Ef fegurðin
byggir ekki á ákveðnum gildum, þá
er hún merkingarlaus,“ bætir hann
við og bendir á velheppnaða fram
kvæmd í Reykjavík sem er endur
hönnun Marshall hússins á Granda.
„Það er ekki bara fallegt, það hefur
þýðingu og er mikilvægt. Er vett
vangur listamanna.“
Endalaus leit og ferðalag
Hann segir mikilvægt að arkitektar
muni að þegar þeir eru beðnir um að
hanna byggingu eða svæði séu þeir
að breyta heiminum lítið eitt. Ásýnd
og hönnun muni hafa áhrif á líf fólks,
til hins betra. Eða til hins verra.
Massimo finnst mikilvægt að nem
endur hans haldi áfram að læra þegar
þeir útskrifast og að þeir beri þessa
miklu ábyrgð sem hann nefndi.
„Það er mjög mikilvægt að nem
endum finnist þeir aldrei hafa lært
eitthvað endanlegt. Ég vil að nem
endur læri að læra. Að þeir viti að
þetta er endalaus leit og ferðalag og
svo auðvitað að arkitektúr er póli
tískur.“
Arkitektúr getur
breytt heiminum
Massimo Santanicchia, dósent í arkitektúr við LHÍ, segir arkitektúr
geta breytt heiminum. Arkitektúr og hönnun geti leitt til jöfnuðar og
farsældar og sé mikilvægt vopn í baráttu gegn loftslagsbreytingum.
Massimo Santanicchia arkitekt segir borgir snúast um fólk og vill Reykjavík félagslega ríkari. FRéttABlAðið/Anton BRink
Það Þarf líka að bæta
SaMgöngur í borginni.
fjölga valkoStuM,
Það er ekki nóg að
bjóða bara upp á wifi í
Strætó.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r36 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
6
9
K
_
N
Ý.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
7
-9
6
1
4
1
E
0
7
-9
4
D
8
1
E
0
7
-9
3
9
C
1
E
0
7
-9
2
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K