Fréttablaðið - 21.10.2017, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 21.10.2017, Blaðsíða 24
ERTU LÖNGU HÆTTUR AÐ TAKA Í NEFIÐ EN SITUR UPPI MEÐ SKEMMDIRNAR! Hlíðasmára 9 • Kópavogi • S. 893 0098 • snyrt@snyrt.is • www.snyrt.is Snyrtistofan Ha lik Okkar sérsvið er háræðaslitsmeðferðir. Fyrir þá sem vilja alvöru árangur ! Hvernig get ég gert eitthvað til að þessi sirkus hætti?“ spyr S e l m a M a r g r é t Sverrisdóttir sem fékk kosningarétt árið 2008 og hefur tekið þátt í fleiri kosningum en hún hefur tölu á. Blaðamaður Fréttablaðsins ræddi við nokkra unga Íslendinga sem fengu kosningarétt á eftirhruns­ árunum. Öll eiga þau sameiginlegt að muna ekki hve oft þau hafa kosið, en segjast öll kjósa. Hvernig blasa stjórnmálin og stjórnmálamenningin við ykkur í dag? Íris: Það er kominn pirringur gagn­ vart stjórnmálum, finnst mér. Það er alveg sama hvað við gerum, við förum og kjósum og það gerist ekki neitt. Það endar allt í rugli. Það er ekkert tekið mark á því sem maður er að kjósa. Tinna: Það er náttúrulega óþolandi að það þurfi alltaf að kjósa aftur og aftur. Maður kýs flokk og svo er mynduð stjórn og svo fuðrar bara allt upp af því að einhver bara hættir. Segir bara upp! Það er alveg fárán­ legt. Það er svo mikið ábyrgðarleysi í stjórnmálunum. Baron: Mér finnst þetta svo oft líta út eins og skrípaleikur. Flokkarnir liggja í einhverjum dvala, og svo þegar fer að styttast í kosningar og enginn hefur staðið við loforðin þá kemur þetta „nú þurfum við að fara að vakna, það eru að koma kosningar. Nú þurfum við að fara að lofa aftur“. Þá koma loforðin og auglýsingaher­ ferðirnar og bjórkvöldin og leikurinn byrjar upp á nýtt. Þetta er bara enda­ laus þannig hringrás. Íris: Svo gerist aldrei neitt. Það eru allir flokkarnir búnir að vera með heilbrigðismálin á dagskrá í 10 ár og það lagast ekkert, heldur versnar bara og versnar. Baron: Einmitt, sem er mjög skrítið, því einkageirinn í heilbrigðiskerfinu er að blómstra. Íris: Er það kannski þess vegna sem þeir svelta heilbrigðiskerfið? Vilja þeir það ekki bara? Hvernig finnst ykkur viðhorfin til stjórnmálaflokka vera í dag? Egill: Við verðum eiginlega ekkert vör við þá, nema rétt fyrir kosningar og svo reyna þeir voða lítið að tala við fólk. Koma bara, eins og í skólana, og rétta fram lausnirnar og svo eru þeir farnir. Selma: Margir vanda sig og taka sér tíma í að kynna sér flokkana og áherslurnar til að taka upplýsta ákvörðun en svo fer allt í steik og maður hugsar með sér: Á ég að nenna að gera þetta allt aftur eða á ég bara að kjósa það fyrsta sem mér dettur í hug? Baron: Þegar þetta er orðið svona, þá náttúrulega minnkar áhuginn. Tinna: Mér finnst ekki rétt að fólk sé að kjósa einhvern flokk til að losna við vesen. Maður á alltaf að kjósa sinn flokk, sem maður hefur mesta trú á. Mér finnst við megum ekki gefast upp. Maður verður að hafa trú á að hlutirnir gangi upp frekar en að vera svartsýnn á stjórnmálin. Egill: Áherslurnar breytast líka svo rosalega fljótt, finnst mér. Flokkarnir eru ekki með sömu áherslur og þeir voru með bara fyrir ári. Þeir eru að leggja upp með allt aðrar áherslur en þeir voru fyrir ári síðan. Mér finnst það alveg steikt! Tinna: Er það ekki bara í takt við nútímann? Samfélagið er alltaf að breytast og áherslurnar í leiðinni. Mér finnst það alveg skiljanlegt. Hvernig ákveður fólk hver fær atkvæði þess í þessum kosningum? Íris: Það ætti að vera heilbrigðis­ kerfið, menntakerfið og flóttamanna­ vandinn. Þessi mál sem snerta okkur öll. En ég held það sé líka bara spurn­ ingin um hver er ekki að fara að skíta upp á bak og gera eitthvað heimsku­ legt til að allt hrynji aftur. Tinna: Mér finnst við megum ekki kjósa þannig, bara til að losna við vesen. Við þurfum að standa með málefnum og hafa trú á að fólk geti unnið saman. Við megum ekki vera svartsýn etc. … Baron: Það er alltaf verið að tala um stöðugleika og ég held að fólk sækist eftir stöðugleika frá spillingunni í rauninni og að við þurfum ekki alltaf að hafa áhyggjur af því hvað er verið að gera á bak við tjöldin, hvaða ,við­ skipta‘­vinir eru núna að hafa áhrif á pólitíkina okkar. Íris: Það er eitt sem ég skil alls ekki. Við erum með spillta stjórnmála­ menn, en samt eru stjórnmálin eins og trúarbrögð. Fólk bara tilheyrir sínum flokki og fjölskyldan er öll þar og gefur sér ekkert svigrúm til að breyta. Jóhann: Ég held að þessi flokksholl­ usta sé á undanhaldi. Margt eldra fólk lætur eins og þetta sé fótboltaliðið þess og stendur með sínum flokki í gegnum súrt og sætt. Þá er alveg sama þótt það rigni eldi og brennisteini, það kýs samt sinn Framsóknar­ flokk, Sjálfstæðisflokk eða kratana. Og hugsar svona „ég er nú búinn að leggja svo mikið í þetta að ég get ekki farið að yfirgefa flokkinn“. Ég held samt að þetta sé að breyt­ ast. Yngri kynslóðirnar eru upplýstari og fylgja ekki endilega skoðunum foreldra sinna eins og áður. Tinna: Það eru örugglega margir sem verða fyrir áhrifum frá foreldr­ um sínum. En það skiptir líka máli hvernig maður er alinn upp. Það er ekki endilega þannig að foreldrar manns segi manni hvað maður á að kjósa en lífsviðhorf mótast líka af uppeldinu. Er eitthvað í kerfinu sem má laga? Íris: Mér finnst við ættum að kjósa fólk frekar en flokka. Það meikar miklu meiri sens. Ég veit til dæmis alveg hvern ég myndi vilja sem for­ sætisráðherra. En ég veit ekkert hvort ég vil endilega kjósa þann flokk. Tinna: Mér finnst það ekki. Ég held að það myndi allt lenda í kaos og leiðindum og skapa miklu meira rifrildi ef við kysum bara fólk. Fólk vill fá að vinna í hópi og gefa kost á sér saman. Egill: Fólkið þarf að geta sagt nei og á ekki að þurfa að treysta bara á að for­ setinn geri það. Það er ákvæði í nýju stjórnarskránni um að fólkið geti lagt fram frumvörp og sett ákveðna umræðu í gang á Alþingi. Það þarf að neyða þingið til að hlusta á þjóðina. Íris: Það þarf að virkja þjóðina betur. Til dæmis með netkosningum. Mér finnst Alþingi vera bara orðið ein­ hvern veginn fyrir ofan okkur og við erum ekki í neinu sambandi við Alþingi. Jóhann: Vandamálið við þjóðar­ atkvæðagreiðslur, eins og í Sviss, er að þar er hræðilega léleg kjörsókn og þar geta hagsmunaöflin heldur betur látið til sín taka. Baron: Okkur vantar samt leiðir til að láta fulltrúa almennings hlusta betur á almenning og kjósendur. Egill: Annað sem má laga er að þótt þessi fimm prósent regla sé alveg góð þá myndi ég vilja geta kosið annan flokk til vara ef minn kæmist ekki á þing. Finnst ykkur þið nægilega inni í öllum málum? Baron: Pólitíkin er eiginlega þannig að þú þarft að demba þér alveg inn í hana til að geta skilið þetta. Þetta er svo sérhæft. Pólitíkin notar allt annan orðaforða heldur en almenn­ ingur. Þetta er allt annað tungumál. Við viljum bara fá að vera samfélags­ Kynslóðin sem hefur kosið of oft Blaðamaður Fréttablaðsins hitti nýja kjósendur eftirhrunsáranna á Alþingi til að ræða stjórnmálin. FréttABlAðið/Ernir Kynslóðin sem fékk kosningarétt á ár- unum eftir hrun er þreytt á sirkusnum í stjórnmálunum. Mál- efnin eru á undan- haldi, það vantar mannamál í stjórn- málin, betri forgangs- röðun og minna rugl. Kosningar undan- farinn áratug l Alþingiskosningar 2007 l Alþingiskosningar 2009 l Sveitarstjórnarkosningar 2010 l Ríkisábyrgð vegna Icesave 2010 l Stjórnlagaþingskosningar 2010 l Ríkisábyrgð vegna Icesave 2011 l Forsetakosningar 2012 l Tillögur stjórnlagaráðs 2012 l Alþingiskosningar 2013 l Sveitarstjórnarkosningar 2014 l Forsetakosningar 2016 l Alþingiskosningar 2016 l Alþingiskosningar 2017 Af hverju erum við Að leggjA endAlAusA hjólreiðAstígA þegAr spítAlinn er Að myglA? Af hverju eru þeir í forgAngi? Tinna, 22 ára Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur@frettabladid.is 2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r24 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 7 -9 1 2 4 1 E 0 7 -8 F E 8 1 E 0 7 -8 E A C 1 E 0 7 -8 D 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.