Fréttablaðið - 21.10.2017, Blaðsíða 29
Fjölga þarf vel launuðum störfum
og auka fjölbreytni þeirra. Til
þess þurfum við sókn í mennta-
málum, lága vexti og stöðugan
gjaldmiðil. Við þurfum að dreifa
ferðamönnum betur um landið.
Standa við rammaáætlun um vernd
og nýtingu. Tryggja raforkuöryggi og
háhraðanet út um allt land.
Áhersla á þróttmikla starfsemi í
landbúnaði, sjávarútvegi og ferða-
þjónustu. Tryggja á að nýtingarrétt-
ur á fiskimiðunum glatist ekki frá
sjávarbyggðum. Þjóðin á að njóta
afraksturs af fiskimiðunum. Leggja
áherslu á nýsköpun sem forsendu
framfara og efla nýsköpunar- og
rannsóknastarf.
Fjölbreytni, framtak og sjálfbærni
atvinnulífs er forsenda framfara
og undirstaða velferðar. Við viljum
auka framlög til nýsköpunar og
rannsókna árlega um þrjá milljarða
á næstu árum sem rennur úr
Þjóðarsjóði. Við ætlum að lækka
tryggingagjald enn frekar, sem
gagnast ekki síst sprotafyrirtækjum.
Ótímabært er að hækka virðisauka-
skatt á ferðaþjónustu. Gistinátta-
gjald renni óskipt til sveitarfélaga.
Taka á upp komugjald á ferðamenn.
Leysa þarf vanda sauðfjárbænda
með auknum stuðningi. Sátt um
sjálfbært fiskeldi. Tryggja þarf af-
hendingu raforkuöryggis og flýta
þrífösun rafmagns um land allt.
Stytta vinnuvikuna í 35 stundir.
Tekjuskerðingar eldri borgara eru
óréttmætar og ber að afnema.
Píratar vilja auðvelda fólki að koma
hugmyndum sínum í framkvæmd
með því að gera það auðveldara og
ódýrara að stofna fyrirtæki og bæta
rekstrarumhverfi þeirra.
Öfluga, gjaldfrjálsa opinbera heil-
brigðisþjónustu sem er öllum
aðgengileg. Við höfnum einkavæð-
ingu heilbrigðiskerfisins og leggjum
höfuðáherslu á að bæta heilbrigðis-
þjónustu í almannaeigu. Við viljum
efla geðheilbrigðisþjónustu og
bæta við 100 sálfræðingum í heilsu-
gæsluna og skólana. Hafist verði
handa við byggingu nýs Landspítala
Flokkur fólksins vill að grunnheil-
brigðisþjónustan verði gjaldfrjáls.
Framlög til heilbrigðisþjónustu í
hlutfalli við landsframleiðslu verði
aukin eins og þjóðin hefur kallað
eftir. Nýr Landspítali rísi á nýjum
stað.
Efnahagur fólks má ekki vera hindr-
un í að leita sér lækninga og ná
bata. Lækka þarf kostnað sjúklinga
frekar. Tryggja þarf aðgengi allra að
sálfræðiþjónustu, fjölga hjúkrunar-
rýmum, efla heimahjúkrun, stytta
biðlista frekar, efla heilsugæsluna
sem fyrsta viðkomustað í heil-
brigðiskerfinu og nýta upplýsinga-
og samskiptatækni betur.
Framsókn vill fjárfesta í heilbrigðis-
kerfinu með því framtíðarmarkmiði
að veikir borgi ekki. Framsókn vill
að sálfræðiþjónusta verði hluti af
heilbrigðiskerfinu og fjölga sér-
fræðilæknum á geðsviði. Framsókn
vill hefja undirbúning að nýjum
Landspítala á betri stað.
Píratar ætla að auka fjárveitingar til
heilbrigðiskerfisins um 25 milljarða
árlega, og viðhalda þeirri hækkun.
Óásættanlegt er að um 50 manns
svipti sig lífi á hverju ári. Píratar vilja
draga geðheilbrigðismál inn í 21.
öldina með því að efla forvarnir
og fella sálfræðiþjónustu undir
almannatryggingar. Við viljum að
tannlækningar séu gjaldfrjálsar.
Ráðumst í stórsókn gegn ofbeldi.
Við ætlum að setja einn milljarð
króna árlega til að fjölga lögreglu-
þjónum og rannsakendum, auka
fræðslu og forvarnir og samræma
móttöku þolenda kynferðis- og
heimilisofbeldis um allt land.
Vinnum gegn launamun kynjanna.
Ísland á að vera í fararbroddi í rétt-
indabaráttu hinsegin fólks.
Flokkur fólksins leggur áherslu á
mannréttindaákvæði stjórnarskrár
og alþjóðlegra mannréttindasátt-
mála sem öðlast hafa lagagildi hér
á landi. Flokkurinn leggur áherslu á
að stjórnvöld virði mannréttinda-
ákvæði á hverjum tíma í hvívetna.
Trú-, tjáningar- og skoðanafrelsi
eru grundvallarmannréttindi sem
standa verður vörð um. Jafnframt
verður að gæta þess að allir virði
mannréttindi. Sporna verður við
hvers kyns ofbeldi, fagna fjölbreyti-
leikanum, tryggja jöfn tækifæri og
virða ólíkar lífsskoðanir.
Framsókn vill stuðla að samfélagi
þar sem allir geta verið virkir þátt-
takendur og hafi jöfn réttindi. Mikil-
vægt er að við móttöku útlendinga
sé unnið með mannréttindi að
leiðarljósi, að framkvæmd laga sé
skilvirk og vel sé staðið að skipulagi
hvort sem er vegna umsókna um
dvöl, atvinnuréttindi eða þjónustu
samfélagsins.
Píratar vilja efla borgararéttindi,
standa vörð um upplýsinga- og
tjáningarfrelsi, friðhelgi einkalífs og
berjast gegn allri mismunun gagn-
vart einstaklingum; hvort sem hún
er á grundvelli kyns, kynhneigðar,
kynvitundar, aldurs, trúarbragða,
uppruna, fötlunar o.fl.
Við ætlum ekki að hækka skatta
á lág- og millitekjufólk. Við viljum
færa skattbyrði til þeirra sem hana
geta borið. Við viljum réttlátan
arð af auðlindum í stað skatta á
almenning. Við ætlum að tryggja
öllum öruggt húsnæði – minnst
6.000 nýjar leiguíbúðir í félögum
sem eru rekin án hagnaðarsjónar-
miða.
Stokka ber upp fjármálakerfi
landsins, leggja af verðtryggingu og
lækka vexti. Húsnæðisliður verði
felldur úr vísitölu til verðtrygg-
ingar. Aðskilnaður fjárfestingar- og
viðskiptabanka. Samfélagsbanki
verði stofnaður. Komið verði á fót
félagslegu kaupleigukerfi og leigu-
markaði sem ekki hefur hagnað að
leiðarljósi.
Við viljum setja arðinn af orkuauð-
lindum landsins í Þjóðarsjóð og
nýta hann að hluta í aðkallandi
verkefni. Ljúka þarf endurskoðun
peningastefnunnar, halda verð-
bólgu og atvinnuleysi niðri, bæta
samkeppnisumhverfi fyrirtækja og
verja 100 milljörðum úr banka-
kerfinu í nauðsynlegar innviða-
fjárfestingar.
Einfalt og réttlátt skattaumhverfi
sem léttir skattbyrði á lágtekju-
hópa. Skattaeftirlit til að draga úr
svartri atvinnustarfsemi. Ísland á að
vera í fararbroddi í baráttunni gegn
lágskattasvæðum sem nýtt eru til
skattasniðgöngu. Bankarnir greiði
40 milljarða arð í ríkissjóð. Fram-
sókn vill að einn af stóru bönk-
unum verði samfélagsbanki.
Píratar vilja hækka persónuafslátt
strax á næsta ári um 7.000 kr. á
mánuði. Takmarkið er að við lok
kjörtímabilsins verði hann tæpar
78 þúsund krónur á mánuði.
Fjármál hins opinbera skulu vera
opin, tölvutæk, gagnsæ og sundur-
liðuð, og eignarhald lögaðila skal
vera opið og rekjanlegt.
Stórsókn í skólamálum er lykillinn
að betri lífskjörum. Meiri áhersla á
skapandi greinar, listir, rannsóknir
og nýsköpun. Aukum virðingu fyrir
kennurum og bregðumst við kenn-
araskorti. Fjármögnum háskóla til
jafns við það sem gerist annars
staðar á Norðurlöndum. Styðjum
betur við fjölbreytta framhalds-
skóla og vinnum gegn brottfalli.
Taka verður á skorti á kennurum.
Börnum tryggður gjaldfrjáls og
hollur matur í grunn- og leikskóla.
Efla iðnmenntun. Ungu fólki kynntir
atvinnumöguleikar og önnur
tækifæri sem iðnmenntuðu fólki
bjóðast. Leysa úr fjárhagsvanda há-
skólastigsins og efla rannsóknir og
nýsköpun í þágu atvinnulífsins sem
undirstöðu að hagsæld og velferð.
Við ætlum að taka upp náms-
styrkjakerfi að norrænni fyrirmynd
og auka framlög til háskólastigsins
til meðaltals OECD-landa. Endur-
skoða skólastarf og kennsluaðferðir
í góðri sátt, auka skilvirkni og gæði.
Fjölga sjálfstætt starfandi skólum,
stemma stigu við brottfalli nem-
enda, efla verknám og styðja við
eflingu leik- og grunnskólastigsins.
Afborganir af námslánum verði
felldar niður í fimm ár fyrir þá sem
eru búsettir á skilgreindum svæð-
um á landsbyggðinni. Fjármunir
sem sparast við styttingu náms
verði nýttir til uppbyggingar fram-
haldsskólastigsins, m.a. í verknámi
og á landsbyggðinni. Hækka endur-
greiðslu í 25 prósent í tengslum við
nýsköpun og rannsóknir.
Við viljum að í menntakerfinu
sé jafnvægi milli bók-, list- og
verkgreina, með lítið heimanám,
smærri bekki og virðingu fyrir starfi
kennara sem endurspeglast í laun-
um. Námslán greiðist fyrirfram.
Með auknu alþjóðlegu samstarfi
í rannsóknum og þróun aukast
möguleikar á atvinnu, menntun og
tækniþróun innanlands.
Menning og listir munu leika enn
stærra hlutverk í framtíðinni. Styðja
þarf betur við menningarlíf og
nám í listum og skapandi greinum.
Aukum framlög í sjóði til stuðnings
menningu og listum. Afnemum
virðisaukaskatt á bækur og eflum
bókasöfn, sérstaklega í skólum.
Bætum rekstrarskilyrði Listaháskóla
Íslands.
Fella niður virðisaukaskatt á bækur.
Standa vörð um viðunandi starfs-
laun rithöfunda ásamt stuðningi
við þýðingar á erlendum bókum.
Efla íslenskunám á öllum skóla-
stigum. Átak í máltækni, t.d. að for-
rit séu gædd þýðingum á íslensku.
Hækka fjárframlög til bókasafna. Til
greina kemur að auka kröfur náms-
skráa um lestur bókmenntaverka.
Áfram verður stutt við þá miklu
grósku sem er í íslensku menn-
ingar- og listalífi. Verja þarf stöðu
tungunnar í heimi upplýsingatækni
og gervigreindar. Listnám verður
eflt á öllum skólastigum og nám á
sviði skapandi greina tekið upp á
almennu grunn- og framhaldsskóla-
stigi. Listir sem atvinnugrein ber að
efla.
Framsókn vill afnema virðisauka-
skatt á bókum og rafbókum til að
efla lestur og styrkja innlent fræða-
starf og auðga íslenska tungu sem á
undir högg að sækja. Framsókn vill
afnema virðisaukaskatt af tónlist.
Efla íslenskuna í stafrænum heimi,
m.a. með stuðningi við þróun op-
ins hugbúnaðar á íslensku. Einnig
þarf að skoða hvernig við tryggjum
að íslenskt efni sé aðgengilegt á
netinu þannig að listamenn og
neytendur njóti góðs af. Listahá-
skólinn hefur verið í óviðunandi
húsnæði frá stofnun. Fella á niður
virðisaukaskatt á bókum.
Stöndum við samgönguáætlun
sem Alþingi samþykkti rétt fyrir
síðustu kosningar. Aukum viðhald
vega. Eflum almenningssamgöngur
út um allt land og komum að upp-
byggingu Borgarlínu. Byrjum undir-
búningsvinnu vegna sjálfakandi bíla
og þeirra breytinga sem sú tækni
mun hafa í för með sér.
Gert verði átak til að efla samgöng-
ur og umferðaröryggi í landinu.
Flugvöllur verði áfram staðsettur í
Vatnsmýri.
Ráðstafa þarf auknum fjármunum
í uppbyggingu vegakerfisins. Fram-
kvæmdir eiga að stuðla að auknu
umferðaröryggi, aukinni burðar-
getu og styttingu vegalengda. Efla
þarf almenningssamgöngur, fækka
einbreiðum brúm, gera ferjuleiðir
að hluta þjóðvegakerfisins og taka
fleiri skref í að bæta aðgengi að
hagkvæmu innanlandsflugi.
Framsókn vill stórauka framlög
til viðhalds og nýbygginga vega.
Þetta er ein mikilvægasta fjár-
festing landsmanna. Framsókn
hafnar hugmyndum um vegtolla
og hækkun olíugjalds. Framsókn vill
efla almenningssamgöngur og taka
upp niðurgreiðslu á flugi innan-
lands fyrir íbúa á landsbyggðinni að
skoskri fyrirmynd.
Píratar vilja einblína á að bæta það
vegakerfi sem fyrir er, í stað þess að
lofa stórum framkvæmdum sem
verða ekki fjármagnaðar nema á
kostnað viðhalds. Stjórnvöld hafa
undanfarin ár leyft viðhaldi að
sitja á hakanum. Við viljum styrkja
innviði fyrir rafbíla, en á sama tíma
efla almenningssamgöngur og vist-
vænan samgöngumáta.
Tvöföldum barnabætur þannig að
þær hækki og nái til fleiri barnafjöl-
skyldna. Aukum húsnæðisstuðning
og horfum sérstaklega til ungs
fólks, leigjenda og fyrstu kaupenda.
Hækkum ellilífeyri og fjórföldum
frítekjumark. Bætum kjör og
aðstæður öryrkja. Við viljum 12
mánaða fæðingarorlof og hærri
greiðslur.
Hækkun persónuafsláttar og
tryggja 300.000 kr. skattfrjálsa fram-
færslu á mánuði með hliðsjón af
opinberum framfærsluviðmiðum.
Löggildingu á samningi SÞ um
réttindi fatlaðs fólks. Afnema ber
skerðingar greiðslna milli almanna-
trygginga og lífeyrissjóða, lífeyris-
sjóðskerfið verði endurskoðað og
frítekjumark afnumið.
Við ætlum að hækka frítekjumark
eldri borgara í 100 þúsund krónur.
Styrkja þarf heimaþjónustuna,
byggja ný hjúkrunarheimili með
árlegum 3 milljarða framlögum úr
Þjóðarsjóði, hækka hámarksgreiðsl-
ur úr Fæðingarorlofssjóði, taka upp
starfsgetumat, lögfesta NPA og
jafna stöðu ungmenna í námi sem
búa hjá foreldrum á örorkulífeyri.
Ungu fólki verði heimilt að taka út
iðgjald í lífeyrissjóð og nýta sem
útborgun við íbúðarkaup. 300 nýjar
þjónustuíbúðir og hjúkrunarrými
fyrir aldraða á ári. Afnema frítekju-
markið af atvinnutekjum eldri
borgara. Framsókn vill tryggja að ör-
orkulífeyrir fylgi lágmarkslaunum.
Barist gegn kynbundnu ofbeldi.
Fæðingarorlof verði 12 mánuðir.
Píratar vilja leggja 11 milljarða til
byggingar íbúða á næsta ári. Við
þurfum íbúðir handa ungu fólki,
fjölskylduvænar íbúðir og íbúðir
til langtímaleigu. Lögfestum NPA.
Bætum meðferð kynferðisbrota-
mála í samráði við þolendur.
Gefum þolendum aukna aðkomu
að kærumálum sínum og eflum
sálrænan og félagslegan stuðning.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um fram-
hald aðildarviðræðna við ESB.
Upptaka evru samhliða inngöngu í
ESB mundi auka stöðugleika, lækka
vaxtakostnað og auðvelda litlum
sem stórum alþjóðafyrirtækjum
að hafa starfsemi sína hér á landi.
Við viljum taka á móti fleiri flótta-
mönnum og betur á móti hælisleit-
endum, sérstaklega börnum.
Flokkurinn styður aðild Íslands að
NATO, er fylgjandi EES-samningnum
en hafnar aðild að ESB. Flokkur
fólksins styður endurskoðun á
Schengensamkomulaginu líkt og
aðrar eyþjóðir hafa gert með því að
herða á landamæraeftirliti landsins
með auknu vegabréfaeftirliti.
Endurskoða skal þátttöku Íslands í
viðskiptabanni gegn Rússlandi.
Við viljum aukna fríverslun í við-
skiptum okkar við umheiminn.
Treysta þarf tengslin við Bretland
og brýnt er að leita eftir fríversl-
unarsamningi við Bandaríkin og
víðar um heim. Hagsmunir Íslands
eru best tryggðir utan Evrópu-
sambandsins og við eigum að
hafa forystu um samstarf þjóða á
norðurslóðum.
Framsókn hafnar aðild að ESB. EES
er mikilvægasti efnahagssamningur
Íslands og tryggja þarf skilvirka
framkvæmd hans. Framsókn vill
efla viðskipti og samvinnu við
önnur ríki. Ísland verði í fremstu röð
í baráttu gegn skattaskjólum. Ísland
verði áfram í fararbroddi í mann-
réttindum.
Lögfestum alþjóðasamninga
um réttindi barna og um rétt-
indi fatlaðs fólks. Fylgjum eftir
þingsályktun um IMMI og gerum
Ísland að miðstöð tjáningar- og
upplýsingafrelsis. Efnum svikin lof-
orð um þjóðaratkvæðagreiðslu um
aðildarumsókn að ESB og fylgjum
vilja þjóðarinnar í þeim málum.
h e l g i n ∙ F R É T T A B l A ð i ð 29l A U g A R D A g U R 2 1 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
7
-6
9
A
4
1
E
0
7
-6
8
6
8
1
E
0
7
-6
7
2
C
1
E
0
7
-6
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K