Fréttablaðið - 21.10.2017, Side 99
Tónlistamaðurinn Franz Gunnars-
son heldur útgáfutónleika vegna
plötunnar Kaflaskila í Norræna
húsinu á sunnudaginn. Franz vann
plötuna í nafni sólóverkefnisins
Paunkholm. Titill plötunnar vísar í
nýjan lífsstíl og uppgjör við fortíðina.
„Kaflaskil er þessi kynngimagn-
aða stund þegar þú ert búin/n með
einn kafla og ert að fara byrja á þeim
næsta,“ segir Franz spurður út í titil
nýjustu plötu sinnar, Kaflaskila.
Að sögn Franz er platan eins konar
persónulegt uppgjör við þann tíma
þegar hann glímdi við fíkn og fylgi-
fiska hennar. „Neyslumunstur mitt
var samofið vinnu minni sem tónlist-
armaður og þegar ég loksins losnaði
úr viðjum vanans, þá trúði ég því
blint að ferli mínum væri lokið, að ég
gæti hreinlega ekki unnið að listinni
edrú. Þessi útgáfa var því að hluta
til verkefni fyrir mig til að ganga úr
skugga um að ég gæti þetta alveg,“
útskýrir Franz.
Hann viðurkennir að það hafi
verið krefjandi viðfangsefni.
„Þetta er mjög persónulegt við-
fangsefni en ég ákvað strax að vera
ekkert að pukrast með mín mál og í
raun var það bara á endanum frels-
andi og uppbyggilegt að vinna þessi
lög. Erfiðast í ferlinu var að hlusta á
alls konar prufuupptökur þegar ég
var að velja lög úr sarpinum því þar
mátti greina mann í mjög annarlegu
ástandi og mikilli vanlíðan.“
En núna er Franz himinlifandi
með útkomuna. „Það var fallegur
dagur þegar ég fékk plötuna í hend-
urnar. Þetta var dagurinn sem ég átt-
aði mig á því að ég get gert þetta edrú
og þyrfti ekki að hætta að gera það
sem ég fæddist til að gera og virkilega
elska.“ – gha
„Dagurinn sem ég áttaði mig á því að ég get gert þetta edrú“
Franz heldur tónleika á sunnudaginn klukkan 21.00. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
bjóða gestum og gangandi að
bragða á ilmandi, heitri og bragð-
góðri súpu. Alls munu 1.500 lítrar af
súpu verða á boðstólum en það er
rík hefð fyrir því að hún klárist.
Hvað? Pitch-kvöld Gulleggsins
Hvenær? 19.00
Hvar? Marel, Garðabæ
Í kvöld verður Pitch-kvöld Gull-
eggsins haldið í höfuðstöðvum
Marel þar sem topp 10 teymin
kynna hugmyndir sínar.
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Sunnudagur
hvar@frettabladid.is
22. október 2017
Tónlist
Hvað? SunnuDjass – Gumbó og Steini
Hvenær? 20.00
Hvar? Bryggjan brugghús, Granda
Viðburðir
Hvað? Lokahelgi sýningar: Hrafn-
hildur Arnardóttir / Shoplifter –
Taugafold VII
Hvenær? 13.30
Hvar? Listasafn Íslands
Einn þekktasti sýningarstjóri
heims, Alanna Heiss, spjallar við
Hrafnhildi Arnardóttur / Shop-
lifter í Listasafni Íslands á lokadegi
sýningar hennar, Taugafold VII.
Hvað? Ísland í heiminum, heimurinn
í Íslandi
Hvenær? 15.00
Hvar? Þjóðminjasafnið
Þjóðminjasafnið býður þér að koma
og skoða sýninguna Ísland í heim-
inum, heimurinn í Íslandi. Jafnframt
býðst gestum tækifæri til að hitta þá
sem að sýningunni standa. Ókeypis
aðgangur og allir velkomnir.
Hvað? Sunnudagsleiðsögn: Tveir
samherjar – Asger Jorn og Sigurjón
Ólafsson.
Hvenær? 15.00
Hvar? Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Ný sýning í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar: Tveir samherjar - Asger
Jorn og Sigurjón Ólafsson. Sunnu-
dagsleiðsögn í fylgd Birgittu Spur
sýningarstjóra.
Hvað? Októberfest fyrir öll skiln-
ingarvitin
Hvenær? 15.00
Hvar? Gallerí Gátt, Kópavogi
Þrjár þýskar myndlistarkonur opna
sýningu á verkum sínun í Galleríi
Gátt, Kópavogi, undir heitinu Októ-
berfest fyrir öll skilningarvitin.
Opnunin verður á laugardaginn kl.
15-18 og stendur sýningin aðeins til
29. október. Listakonurnar Andrea
Bock, Heimgard Quinat og Viola
Taxis koma allar frá Suður-Þýska-
landi og eiga að baki fjölmargar
samsýningar og einkasýningar.
Flottur kaupauki!
Lyfja.isLágmúla Laugavegi Smáralind Smáratorgi Reykjanesbæ Húsavík Egilsstöðum Neskaupstað
Falleg snyrtitaska og ferðastærð af
Dr Irena Eris hreinsi og ampúlum
fylgir með kaupum á Clinic Way*
*Á meðan birgðir endast.
Dagana 21. - 26. október
Clinic Way hjálpar húðinni að endurnýjast og seinkar
öldrun hennar. Þróað og prófað af húðlæknum.
20%
afsláttur
25. október - Lyfja Reykjanesbæ
Clinic Way kynning
og tilboð í Lyfju!
26. október - Lyfja Smáralind
Sérfræðingur frá Dr Irena Eris verður á
staðnum eftirtalda daga:
21. október - Lyfja Húsavík
23. október - Lyfja Lágmúli
24. október - Lyfja Smáratorg
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 55L A U g A R D A g U R 2 1 . o k T ó B e R 2 0 1 7
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
0
7
-5
A
D
4
1
E
0
7
-5
9
9
8
1
E
0
7
-5
8
5
C
1
E
0
7
-5
7
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K