Fréttablaðið - 21.10.2017, Síða 22

Fréttablaðið - 21.10.2017, Síða 22
Gríma Katrín Ólafs-dóttir er einn af fjölmörgum sjálf-boðaliðum Jóla í skókassa. Hún segir að vinna við verk- efnið sé besti tími ársins og að hún, eins og margir, geti ekki beðið, enda eru þau allan ársins hring að undirbúa og redda öllu mögu- legu. „Það eru ófáir sem kaupa inn fyrir verkefnið þegar þeir rekast á útsölur, þótt þær séu í janúar. Einn- ig eru saumaklúbbar og hópar sem hittast allt árið og t.d. prjóna sokka eða húfur. Fullt af fólki stendur að verkefninu, t.d. með því að útvega styrki, sníkja tóma skókassa, elda og baka fyrir sjálfboðaliða og auglýsa og kynna verkefnið. Ballið er byrjað, þar sem fólk er nú þegar byrjað að skila inn kössum,“ segir Gríma en um hundrað kassar eru nú þegar komnir í hús á Holtavegi 28, hús- næði KFUM. Skókassarnir eru sendir til barna í Úkraínu sem búa við bág kjör. „Megintilgangur verkefnisins er að gleðja börn sem annars fengju ekki jólagjöf. Þau búa við sára fátækt og eiga sum enga að. Flestir pakkarnir fara á munaðarleysingjaheimili. Aðrir fara á sjúkrahús og til ein- stæðra mæðra,“ segir Gríma frá. Gríma fer til Úkraínu í ár til að fylgja verkefninu eftir. „Þetta er í fyrsta sinn sem ég fer með. En ég hef heyrt frá fólki sem hefur farið að það geisli ólýsanlegt þakkæti og gleði úr augum barnanna. Þau hafa sum aldrei fengið gjafir og skilja hrein- lega ekki af hverju fólk einhvers staðar á Íslandi sé að gefa þeim gjafir. Aðstandendur barnanna eru líka mjög þakklátir, eiga ekki til orð og trúa þessu varla.“ Verkefnið hefur gengið vel á Íslandi. Þetta er í fjórtánda sinn sem gjafir eru sendar til bágstaddra barna með þessum hætti. Fyrsta árið, 2004, söfnuðust 500 kassar. Verkefnið vatt upp á sig smám saman og seinustu tíu ár hafa safn- ast u.þ.b. 5.000 kassar á ári. Í fyrra voru 5.429 kassar sendir út. Það er nóg pláss í gámunum svo að þessi tala verður vonandi hærri í ár,“ segir Gríma frá en tekið verður á móti kössum víðsvegar um landið til 11. nóvember. Upplýsingar um móttökustaði má finna á heimasíðu KFUM. kristjanabjorg@frettabladid.is Gleðja börn sem fá annars ekki jólagjöf Verkefnið Jól í skókassa er farið af stað. Sjálf- boðaliðar verkefnisins taka á móti gjöfum í kassa víðsvegar um landið. Gjafirnar fá börn í Úkraínu sem búa við fátækt og eiga fáa að. Gríma Katrín Ólafsdóttir hefur starfað sem sjálfboðaliði í verkefninu Jól í skókassa síðustu þrjú ár. Fréttablaðið/SteFán Hvað eru „Jól í skókassa“? „Jól í skókassa“ er verkefni sem hefur verið í gangi síðan 2004. Það felst í því að börn og full- orðnir búa til jólagjafir fyrir börn sem lifa við fátækt, sjúkdóma og erfiðleika. Gjafirnar eru settar í skókassa sem pakkað er inn og í þeim eru leikföng, sælgæti, skóla- dót, föt og hreinlætisvörur. Hvert fara skókassarnir? Skókassarnir eru sendir til Úkraínu. Í Úkraínu búa um 46 milljónir manna en þar er mikið atvinnuleysi og fátækt. Íslensku skókössunum er meðal annars dreift á munaðarleysingjaheimili, barnaspítala og til barna ein- stæðra mæðra sem búa við sára fátækt. Hvernig á að búa til kassa? 1. Pakkið tómum skókassa inn í jólapappír. Athugið að pakka lokinu sérstaklega inn þannig að hægt sé að opna kassann. 2. Ákveðið fyrir hvaða aldur og kyn pakkinn sé. Aldurshóp- arnir eru eftirfarandi; (3-6), (7-10), (11-14) og (15-18). Skrifið kyn og aldur á miða og límið á kassann. 3. Setjið 500 - 1.000 krónur í umslag og leggið efst í kass- ann. Peningurinn er fyrir kostnaði sem fylgir verkefninu. 4. Lokið kassanum með því að setja teygju utan um hann. Um helgina Lestu Nýjustu bók Gerðar Krist­ nýjar, Smartís. Sagan gerist á á níunda áratug liðinnar aldar og segir frá unglingsstúlku sem er að reyna að átta sig á framtíð­ inni. Í heim­ inum geisar kalt stríð og heimsendir virðist jafn raun­ verulegur og ný peysa úr Ping Pong við Laugaveg. Horfðu á Kvikmyndina We are X með aðal­ hetju myndarinnar, Yoshiki, í Bíói Paradís. Tónlistarmaðurinn Yoshiki sjálfur verður viðstaddur sýninguna og eftir myndina gefst gestum tæki­ færi til að spyrja hann spjörunum úr. Hann er ein skærasta stjarna Japana og er í hljóm­ sveitinni X Japan sem hefur selt yfir 30 milljónir platna. sLagga og njódda Ég ætla að fagna því að vera búin með meistaranámið mitt. Kannski leyfir 10 mánaða sonur minn mér að sofa smá út, jafnvel til 7.00 ef heppnin er með mér. Annars bara slagga og njódda og lifa! Anna Margrét Gunnarsdóttir, markaðs- og upplýsingafulltrúi H&M á Íslandi skoðaðu Sýninguna Stór­Ísland í Hafnarhúsinu. Á henni eru sýnd verk sjö listamanna sem koma frá Svíþjóð, Þýskalandi, Ítalíu, Hollandi, Bandaríkjunum, Finnlandi og Danmörku en hafa búið og starfað á Íslandi um lengri eða skemmri tíma. Dæmi um innihald skókassa. til að kassarnir séu svipaðir skal setja einn hlut úr eftirtöldum flokkum. leikföng, skóladót, hreinlætisvörur, sælgæti, föt. ekki má setja illa farna hluti, stríðsdót, vökva, lyf, brothætta hluti og spilastokka í kassana. Fréttablaðið/SteFán ég Hef Heyrt frá fóLki sem Hefur farið að það geisLi óLýsanLegt þakkLæti og gLeði úr augum barnanna. þau Hafa sum aLdrei fengið gjafir. 2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É t t A b L A ð i ð helgin 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 0 7 -7 D 6 4 1 E 0 7 -7 C 2 8 1 E 0 7 -7 A E C 1 E 0 7 -7 9 B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.