Fréttablaðið - 21.10.2017, Blaðsíða 96
Þetta er besta græna herbergi heimi,“ segir enska óperusöngkonan Claire Rutter og horfir yfir úfið hafið og bætir við: „Mér líður eins og ég sé
í hafinu sjálfu og það er engu líkt,“
og er greinilega heilluð af útsýninu
fyrir utan gluggana í Hörpu þar
sem Íslenska óperan frumsýnir í
kvöld eina vinsælustu óperu allra
tíma, Toscu eftir Giacomo Puccini,
þar sem Claire Rutter fer með sam
nefnt aðalhlutverk. Önnur ein
söngshlutverk eru í höndum Krist
jáns Jóhannssonar, Ólafs Kjartans
Sigurðarsonar, Ágústs Ólafssonar,
Bergþórs Pálssonar, Þorsteins Freys
Sigurðssonar, Fjölnis Ólafssonar og
Sigurbjarts Sturlu Atlasonar. Leik
stjórn er í höndum Gregs Eldridge en
hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann
Bjarnason.
En nú sest Claire Rutter með bakið
í höfnina en sjórinn er enn í huga
hennar. „Upprunalega er ég frá New
castle, fædd í bænum South Shields,
þannig að sjávarsíðan stendur mér
nærri. Móðurættin mín er svo frá
Shetlandseyjum og Færeyjum, þann
ig að ég finn fyrir tengingu við bæði
Ísland og fólkið. Og það sem gleður
mig allra mest er að Íslendingar eru
með sama húmor og ég og fólkið
mitt.“
Stóra ástin
„Ég byrjaði að syngja þegar ég var
12 ára gömul þegar móðir mín fór
með mig í leikhús þar sem vantaði
fleiri krakka í kórinn við látbragðs
sýningu. Ég sagði að ég gæti hvorki
leikið né sungið en væri alveg til í að
koma með þrátt fyrir það og þarna
komst ég að því að ég gat alveg sung
ið. Í framhaldinu fór ég að sækja
söngtíma og tók svo þátt í Gilbert og
Sullivan uppfærslu, G&S eins og við
köllum það heima, og það var þar
sem ég byrjaði fyrir alvöru,“ segir
hún og brosir við tilhugsunina.
Claire Rutter stundaði síðan söng
nám við Guildhall School of Music
and Drama í ein sjö ár en skyldi hún
hafa vitað það snemma að óperu
söngurinn yrði hennar viðfangs
efni? „Já, algjörlega, ég var fjórtán ára
þegar ég tók þá ákvörðun. Ég ákvað
reyndar þá að ég ætlaði að syngja
Toscu eftir að ég heyrði upptöku af
Renötu Scotto syngja þetta dásam
lega hlutverk. Þá vissi ég reyndar
ekki hvort ég væri með rödd sem
hæfði Toscu en ég vonaði það svo
innilega, enda var þetta þegar ég
varð ástfangin af óperunni.“
En hvers vegna óperusöngur, var
það alltaf draumurinn? „Nei, hreint
ekki, fyrst ætlaði ég mér að vera í
söngleikjatónlistinni, syngja West
Side Story og My Fair Lady, en svo
var mér sagt að ég væri með óperu
rödd. Röddin var orðin þannig
strax á táningsárunum að kennar
arnir heyrðu að ég hljómaði eins og
óperu en ekki söngleikjasöngkona.
Það er í raun ótrúlega mikill munur
á þessu tvennu og þó svo að það séu
stöku hlutverk söngleikjamegin
sem ég gæti sungið þá er þetta allt
önnur ögun og ólík tækni þar sem
er notast við hljóðnema sem er ekki
í óperuheiminum. Ég elska samt að
fara í leikhúsið og sjá góðar söng
leikjauppfærslur en óperan er stóra
ástin.“
Með James Bond
Claire Rutter segir að hún hafi verið
afar heppin að loknu námi og að
þaðan hafi leiðin legið í The National
Opera Studio en á námsárunum hafi
hún verið til vara í nokkrum óperu
hlutverkum. „Ég var svo heppin að
af þeim fjórum hlutverkum þar sem
ég var til vara þá kom til þess að ég
fékk að syngja þrjú þeirra. Það allra
besta fyrir ungan söngvara er að
sjást á sviðinu og sumir lenda í því
að vera alltaf til vara en koma aldr
ei fram og það jafnvel árum saman.
Í eitt skiptið var ég í hlutverki Alice
Ford í Falstaff á Edinborgarhátíðinni
og stjórnandinn, Sir Richard Arm
strong, heyrði mig syngja og réð mig
í framhaldinu til þriggja ára við The
Scottish Opera.“
Ferill Claire Rutter hefur vissulega
verið glæsilegur allt síðan þá. Hún
hefur sungið mikið í Bandaríkj
unum, m.a. við óperuna í Dallas þar
sem hún var tilnefnd til Mariu Callas
verðlaunanna fyrir túlkun sína á
Fiordiligi í Cosi fan tutte. Tosca hefur
þó lengi verið eitt af hennar helstu
hlutverkum og hún segir að þetta
sterka samband hennar við þetta
hlutverk snúist ekki einvörðungu
um tónlistina. „Það er sú staðreynd
að maður verður að vera jafn fær
sem leikkona og söngkona til þess
að takast á við þetta hlutverk. Þegar
ég byrjaði að syngja þá lagði ég mikla
áherslu á leiklistina og seinna tók ég
mér reyndar árs frí frá söngnum og
einbeitti mér að því að leika. Mig
langaði til þess að vita hvernig það
væri að vinna í sjónvarpi en svo
sneri ég mér aftur að söngnum. Ég
reyndar valdi mér skóla út frá því að
geta lært hvort tveggja því þarna er
afskaplega góð leiklistardeild og ég
útskrifaðist þaðan 1998 með Daniel
Craig, James Bond sjálfum, sem er
mín besta atlaga að heimsfrægðinni,“
bætir hún við og skellihlær.
Einstök uppfærsla
Um hlutverkið sjálft segir hún: „Tosca
er ástríðufull og kærleiksrík. Trygg
lynd og afbrýðisöm. Sterk kona sem
ég finn til samsvörunar með og nýt
þess að takast á við.“ En hvernig er
að fara með sama hlutverkið á milli
uppfærslna þar sem er stundum mik
ill áherslumunur á milli leikstjóra
og hljómsveitarstjóra? „Að syngja
Toscu er nánast fastmótað. Áherslur
hljómsveitarstjóra varðandi hraða
og styrk breyta í sjálfu sér ekki svo
miklu hvað það varðar. En það sem
nýr leikstjóri kemur með snýst um
annað. Í þessu tilviki hér erum við
með ungan og gríðarlega hæfileika
ríkan leikstjóra, Greg Eldridge, sem
hefur fengið mig til þess að velta
Toscu meira fyrir mér en nokkru
sinni áður. Greg gefur okkur frelsi
og við leggjum áherslu á tilfinninga
þáttinn og mögulega er þetta áhuga
verðasta Tosca sem ég hef sungið á
ferlinum. Greg er hæfileikaríkur og
spennandi leikstjóri sem ég held að
eigi eftir að ná langt.
Ég held að íslensku áhorfendurnir
geti leyft sér að hlakka til því að
uppfærslan hér er einstök. Ég er líka
þakklát fyrir að hafa unnið hér með
dásamlegum kollegum því það gefur
manni svo mikið. Kristján Jóhanns
son kemur með alla sína reynslu,
þekkingu og persónutöfra en er líka
opinn fyrir hugmyndum og að þróa
þetta áfram. Óli er líka yndislegur og
í raun alltof góð manneskja til þess
að syngja Scarpia en hann syngur
einn allra fallegasta Scarpia sem ég
hef heyrt. Það besta er að við erum
öll samstíga í því að tónlistin og til
finningarnar eru kjarninn í því sem
við erum að gera og ég vona alveg
heitt og innilega að íslensku áhorf
endurnir eigi eftir að njóta sýn
ingarinnar til fulls. Ef ég finn sanna
ánægju koma frá salnum þá gefur
það því sem maður er að gera gildi.“
Ein allra áhugaverðasta Tosca sem ég hef sungið
Sópransöngkonan Claire Rutter hefur sungið fjölda hlutverka víða um heiminn við góðan orðstír. Hennar
uppáhald er þó alltaf Tosca, hlutverkið sem kveikti ást hennar á óperutónlistinni strax á unga aldri.
Claire Rutter
óperusöng-
kona er full
eftirvæntingar
að flytja Toscu
fyrir íslenska
áhorfendur í
kvöld. FRéTTa-
Blaðið/ERniR
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
,,Svo öflugt er ljós
einingarinnar að það getur
upplýst alla jörðina.´´
-Bahá´u´lláh
200 ára
200 ÁRA FÆÐINGARHÁTÍÐ
BAHÁ´U´LLÁH
1817-2017
Bahá´íar um allan heim fagna á þessu ári
200 ára fæðingarhátíð Bahá´u´lláh,
Höfundar bahá´i trúarinnar.
Við bjóðum þér/ykkur innilega að fagna með okkur.
www.bahai.is
2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð
menning
2
1
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
0
7
-5
0
F
4
1
E
0
7
-4
F
B
8
1
E
0
7
-4
E
7
C
1
E
0
7
-4
D
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
2
0
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K