Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.10.2017, Qupperneq 96

Fréttablaðið - 21.10.2017, Qupperneq 96
Þetta er besta græna her­bergi heimi,“ segir enska óperusöngkonan Claire Rutter og horfir yfir úfið hafið og bætir við: „Mér líður eins og ég sé í hafinu sjálfu og það er engu líkt,“ og er greinilega heilluð af útsýninu fyrir utan gluggana í Hörpu þar sem Íslenska óperan frumsýnir í kvöld eina vinsælustu óperu allra tíma, Toscu eftir Giacomo Puccini, þar sem Claire Rutter fer með sam­ nefnt aðalhlutverk. Önnur ein­ söngshlutverk eru í höndum Krist­ jáns Jóhannssonar, Ólafs Kjartans Sigurðarsonar, Ágústs Ólafssonar, Bergþórs Pálssonar, Þorsteins Freys Sigurðssonar, Fjölnis Ólafssonar og Sigurbjarts Sturlu Atlasonar. Leik­ stjórn er í höndum Gregs Eldridge en hljómsveitarstjóri er Bjarni Frímann Bjarnason. En nú sest Claire Rutter með bakið í höfnina en sjórinn er enn í huga hennar. „Upprunalega er ég frá New­ castle, fædd í bænum South Shields, þannig að sjávarsíðan stendur mér nærri. Móðurættin mín er svo frá Shetlandseyjum og Færeyjum, þann­ ig að ég finn fyrir tengingu við bæði Ísland og fólkið. Og það sem gleður mig allra mest er að Íslendingar eru með sama húmor og ég og fólkið mitt.“ Stóra ástin „Ég byrjaði að syngja þegar ég var 12 ára gömul þegar móðir mín fór með mig í leikhús þar sem vantaði fleiri krakka í kórinn við látbragðs­ sýningu. Ég sagði að ég gæti hvorki leikið né sungið en væri alveg til í að koma með þrátt fyrir það og þarna komst ég að því að ég gat alveg sung­ ið. Í framhaldinu fór ég að sækja söngtíma og tók svo þátt í Gilbert og Sullivan uppfærslu, G&S eins og við köllum það heima, og það var þar sem ég byrjaði fyrir alvöru,“ segir hún og brosir við tilhugsunina. Claire Rutter stundaði síðan söng­ nám við Guildhall School of Music and Drama í ein sjö ár en skyldi hún hafa vitað það snemma að óperu­ söngurinn yrði hennar viðfangs­ efni? „Já, algjörlega, ég var fjórtán ára þegar ég tók þá ákvörðun. Ég ákvað reyndar þá að ég ætlaði að syngja Toscu eftir að ég heyrði upptöku af Renötu Scotto syngja þetta dásam­ lega hlutverk. Þá vissi ég reyndar ekki hvort ég væri með rödd sem hæfði Toscu en ég vonaði það svo innilega, enda var þetta þegar ég varð ástfangin af óperunni.“ En hvers vegna óperusöngur, var það alltaf draumurinn? „Nei, hreint ekki, fyrst ætlaði ég mér að vera í söngleikjatónlistinni, syngja West Side Story og My Fair Lady, en svo var mér sagt að ég væri með óperu­ rödd. Röddin var orðin þannig strax á táningsárunum að kennar­ arnir heyrðu að ég hljómaði eins og óperu­ en ekki söngleikjasöngkona. Það er í raun ótrúlega mikill munur á þessu tvennu og þó svo að það séu stöku hlutverk söngleikjamegin sem ég gæti sungið þá er þetta allt önnur ögun og ólík tækni þar sem er notast við hljóðnema sem er ekki í óperuheiminum. Ég elska samt að fara í leikhúsið og sjá góðar söng­ leikjauppfærslur en óperan er stóra ástin.“ Með James Bond Claire Rutter segir að hún hafi verið afar heppin að loknu námi og að þaðan hafi leiðin legið í The National Opera Studio en á námsárunum hafi hún verið til vara í nokkrum óperu­ hlutverkum. „Ég var svo heppin að af þeim fjórum hlutverkum þar sem ég var til vara þá kom til þess að ég fékk að syngja þrjú þeirra. Það allra besta fyrir ungan söngvara er að sjást á sviðinu og sumir lenda í því að vera alltaf til vara en koma aldr­ ei fram og það jafnvel árum saman. Í eitt skiptið var ég í hlutverki Alice Ford í Falstaff á Edinborgarhátíðinni og stjórnandinn, Sir Richard Arm­ strong, heyrði mig syngja og réð mig í framhaldinu til þriggja ára við The Scottish Opera.“ Ferill Claire Rutter hefur vissulega verið glæsilegur allt síðan þá. Hún hefur sungið mikið í Bandaríkj­ unum, m.a. við óperuna í Dallas þar sem hún var tilnefnd til Mariu Callas verðlaunanna fyrir túlkun sína á Fiordiligi í Cosi fan tutte. Tosca hefur þó lengi verið eitt af hennar helstu hlutverkum og hún segir að þetta sterka samband hennar við þetta hlutverk snúist ekki einvörðungu um tónlistina. „Það er sú staðreynd að maður verður að vera jafn fær sem leikkona og söngkona til þess að takast á við þetta hlutverk. Þegar ég byrjaði að syngja þá lagði ég mikla áherslu á leiklistina og seinna tók ég mér reyndar árs frí frá söngnum og einbeitti mér að því að leika. Mig langaði til þess að vita hvernig það væri að vinna í sjónvarpi en svo sneri ég mér aftur að söngnum. Ég reyndar valdi mér skóla út frá því að geta lært hvort tveggja því þarna er afskaplega góð leiklistardeild og ég útskrifaðist þaðan 1998 með Daniel Craig, James Bond sjálfum, sem er mín besta atlaga að heimsfrægðinni,“ bætir hún við og skellihlær. Einstök uppfærsla Um hlutverkið sjálft segir hún: „Tosca er ástríðufull og kærleiksrík. Trygg­ lynd og afbrýðisöm. Sterk kona sem ég finn til samsvörunar með og nýt þess að takast á við.“ En hvernig er að fara með sama hlutverkið á milli uppfærslna þar sem er stundum mik­ ill áherslumunur á milli leikstjóra og hljómsveitarstjóra? „Að syngja Toscu er nánast fastmótað. Áherslur hljómsveitarstjóra varðandi hraða og styrk breyta í sjálfu sér ekki svo miklu hvað það varðar. En það sem nýr leikstjóri kemur með snýst um annað. Í þessu tilviki hér erum við með ungan og gríðarlega hæfileika­ ríkan leikstjóra, Greg Eldridge, sem hefur fengið mig til þess að velta Toscu meira fyrir mér en nokkru sinni áður. Greg gefur okkur frelsi og við leggjum áherslu á tilfinninga­ þáttinn og mögulega er þetta áhuga­ verðasta Tosca sem ég hef sungið á ferlinum. Greg er hæfileikaríkur og spennandi leikstjóri sem ég held að eigi eftir að ná langt. Ég held að íslensku áhorfendurnir geti leyft sér að hlakka til því að uppfærslan hér er einstök. Ég er líka þakklát fyrir að hafa unnið hér með dásamlegum kollegum því það gefur manni svo mikið. Kristján Jóhanns­ son kemur með alla sína reynslu, þekkingu og persónutöfra en er líka opinn fyrir hugmyndum og að þróa þetta áfram. Óli er líka yndislegur og í raun alltof góð manneskja til þess að syngja Scarpia en hann syngur einn allra fallegasta Scarpia sem ég hef heyrt. Það besta er að við erum öll samstíga í því að tónlistin og til­ finningarnar eru kjarninn í því sem við erum að gera og ég vona alveg heitt og innilega að íslensku áhorf­ endurnir eigi eftir að njóta sýn­ ingarinnar til fulls. Ef ég finn sanna ánægju koma frá salnum þá gefur það því sem maður er að gera gildi.“ Ein allra áhugaverðasta Tosca sem ég hef sungið Sópransöngkonan Claire Rutter hefur sungið fjölda hlutverka víða um heiminn við góðan orðstír. Hennar uppáhald er þó alltaf Tosca, hlutverkið sem kveikti ást hennar á óperutónlistinni strax á unga aldri. Claire Rutter óperusöng- kona er full eftirvæntingar að flytja Toscu fyrir íslenska áhorfendur í kvöld. FRéTTa- Blaðið/ERniR Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is ,,Svo öflugt er ljós einingarinnar að það getur upplýst alla jörðina.´´ -Bahá´u´lláh 200 ára 200 ÁRA FÆÐINGARHÁTÍÐ BAHÁ´U´LLÁH 1817-2017 Bahá´íar um allan heim fagna á þessu ári 200 ára fæðingarhátíð Bahá´u´lláh, Höfundar bahá´i trúarinnar. Við bjóðum þér/ykkur innilega að fagna með okkur. www.bahai.is 2 1 . o k t ó b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r52 m e n n i n G ∙ F r É t t A b L A ð i ð menning 2 1 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 0 7 -5 0 F 4 1 E 0 7 -4 F B 8 1 E 0 7 -4 E 7 C 1 E 0 7 -4 D 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 1 1 2 s _ 2 0 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.