Fréttablaðið - 18.11.2017, Page 2
Þeir hafa séð
tækifæri í þeim
mikla fjölda sem fer í Costco
þarna.
Sigurður Guðmunds-
son, bæjarfulltrúi
og formaður
skipulagsnefndar
Garðabæjar
Veður
Í dag er útlit fyrir fallegt vetrarveður
víða á landinu en austast má búast
við norðvestan 8-13 m/s í fyrstu.
Léttskýjað verður víðast hvar, en
norðaustan til, austan Eyjafjarðar
verða él á stangli hér og þar.
sjá síðu 58
Nemendur í Hagaskóla mynduðu í gær keðju og létu ávísun ganga frá Hagaskóla á spítalann til Ólafs Ívars Árnasonar. Ávísunin var með söfnunarfé
sem safnaðist á góðgerðardeginum Gott mál. Söfnunardagurinn var 2. nóvember. Ólafur Ívar veiktist mikið í byrjun árs og hefur verið frá skóla
stærstan hluta ársins vegna þess. Peningarnir sem söfnuðust, tæpar 4 milljónir króna, munu nýtast í þágu endurhæfingar fyrir Ólaf. Fréttablaðið/Eyþór
skipulagsmál Skipulagsnefnd
Garðabæjar lýsir áhyggjum af auknu
umferðarálagi vegna fyrirhugaðrar
opnunar Vínbúðar í Kauptúni. For-
maður nefndarinnar segir opnunina
kalla á að framkvæmdum við breyt-
ingar á gatnakerfinu verði hraðað.
Sigurður Guðmundsson, bæjar-
fulltrúi og formaður skipulags-
nefndar Garðabæjar, segir ljóst
að flýta þurfi fyrirhuguðum fram-
kvæmdum. ÁTVR bíður enn leyfis
frá bænum til að opna eftir að hafa
neyðst til að fresta fyrirhugaðri
opnun verslunarinnar í Kauptúni á
miðvikudag.
„Þessar breytingar sem þarf að
ráðast í tengjast á sínum tíma komu
Costco, en það er alveg ljóst að með
því að Vínbúðin kemur þarna líka,
með sitt aðdráttarafl fyrir fólk, þarf
að fara í að breikka vegi og annað
sem við vorum búin að skipuleggja
þegar við heimiluðum Costco að
koma á svæðið,“ segir Sigurður.
Engin ákvörðun liggur fyrir um hve-
nær farið verði í framkvæmdirnar.
Ljóst er að Kauptún í Garðabæ
er orðinn mjög heitur reitur og
umferðarþunginn hefur aukist til
muna með komu Costco í sumar, en
fyrir var þar að finna IKEA, Bónus
og Toyota-umboðið svo dæmi séu
tekin.
„Svo er margt fólk að flytja í
hverfin þarna í kring. Þarna er að
byggjast upp 1.600 íbúða hverfi,“
bætir Sigurður við.
Fréttablaðið greindi frá því í síð-
ustu viku að bæjarstjórn Garðabæj-
ar teldi að ÁTVR þyrfti að sækja um
sérstakt leyfi fyrir opnun verslunar
sinnar í Kauptúni þar sem fyrra leyfi
fyrir Vínbúð, sem lokað var fyrir
þó nokkrum árum, var bundið við
Garðatorg. Sem fyrr segir varð ÁTVR
að fresta opnun Vínbúðarinnar en
afstaða til umsóknar fyrirtækisins
verður tekin í bæjarstjórn í næstu
viku.
Í bókun á fundi skipulagsnefndar
á fimmtudag eru áhyggjurnar af
umferðarálaginu viðraðar auk
þess sem nefndin furðar sig á því að
ÁTVR hafi ekki komið til móts við
óskir Garðabæjar um að Vínbúðin
yrði í miðbænum. Þótt nefndin
leggist ekki gegn því að Vínbúð
verði opnuð í bænum vonar hún
þó að önnur hugsanleg sérvöru-
verslun með áfengi verði opnuð í
miðbænum.
„Við leggjumst ekki gegn því að
opnaðar verði fleiri en ein Vínbúð
í bænum. En við höfum haft mik-
inn áhuga á fá hana á miðbæjar-
svæðið. En þeir hafa séð tækifæri í
þeim mikla fjölda sem fer í Costco
þarna.“
mikael@frettabladid.is
Óttast að Vínbúðin
sprengi gatnakerfið
Flýta þarf framkvæmdum við breytingar á gatnakerfinu við Kauptún í Garðabæ
til að bregðast við auknu umferðarálagi sem fylgja mun opnun Vínbúðar. Bæjar-
yfirvöld vildu Vínbúð í miðbæinn. ÁTVR sá tækifæri í Costco-traffík.
Ekki var hægt að opna verslun ÁtVr í Kauptúni í vikunni þar sem leyfi frá
bæjarstjórn lá ekki fyrir. breyta þarf gatnakerfinu þar. Fréttablaðið/Eyþór
TENERIFE
22. nóvember í 14 nætur
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
Frá kr.
129.995
m/allt innifalið
Sólarferð til
Dómsmál Mannréttindadómstóll
Evrópu dæmir í máli Geirs Haarde
gegn íslenska ríkinu næsta fimmtu-
dag.
Geir höfðaði málið á þeim grund-
velli hann hafi ekki fengið réttláta
málsmeðferð í Landsdómsmálinu.
Hann byggir meðal annars á því
að ákvörðun Alþingis um ákæru á
hendur honum hafi verið tekin á
pólitískum forsendum en ekki með
hlutlausu mati. Þá hafi alvarlegir
gallar verið á undirbúningi máls-
meðferðarinnar og Landsdómur
hafi hvorki verið óvilhallur né sjálf-
stæður.
Geir telur einnig að lagaákvæði
sem sakfelling byggist á séu skýr og
ótvíræð. – aá
Dómur felldur á
fimmtudaginn
Geir H. Haarde í landsdómi.
Fréttablaðið/VilHElm
Orkumál Sautjánda aflstöð Lands-
virkjunar að Þeistareykjum var
gangsett í gær við hátíðlega athöfn.
Um er að ræða þriðju jarðvarma-
stöð fyrirtækisins, en fyrir eru
Kröflustöð og gamla gufustöðin í
Bjarnarflagi. Þeistareykjastöð er
fyrsta jarðvarmastöðin sem Lands-
virkjun byggir frá grunni.
Þeistareykjastöð verður 90 mega-
wött. Í tilkynningu frá Landsvirkj-
un kemur fram að stöðin er reist í
tveimur 45 megawatta áföngum og
var vélasamstæða 1 gangsett í dag
og tengd við flutningskerfi Lands-
nets. Benedikt Jóhannesson, fjár-
mála- og efnahagsráðherra, og Þór-
dís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir,
ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, gangsettu virkjunina
í sameiningu.
Upphaf byggingaframkvæmda
við virkjunina var á vormánuðum
2015. – jhh
Vélarnar ræstar
fyrir norðan
stjórnmál Stuðningur við Vinstri
græn hefur dalað um 3,9 prósentustig
frá alþingiskosningunum í október
og mælist nú 13%. Á sama tíma hefur
stuðningur við Samfylkingu aukist
úr 12,1% í 16,0%. Þetta sýna niður-
stöður nýrrar könnunar MMR.
Sjálfstæðisflokkurinn mælist
stærstur í könnuninni með 24 pró-
sent, Miðflokkurinn er með 10,5 pró-
sent, Píratar með 9,9 prósent, Fram-
sóknarflokkurinn með 9,5 prósent,
Flokkur fólksins með 8,4 prósent og
Viðreisn með 6,5 prósent. – jhh
Samfylkingin
stærri en VG
Fékk góða vini á spítalann
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 l a u g a r D a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-3
6
9
4
1
E
4
0
-3
5
5
8
1
E
4
0
-3
4
1
C
1
E
4
0
-3
2
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K