Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 22
Horfðu
á einkasýningu Margrétar
Bjarnadóttur í Listamenn
Galleríi. Verkin samanstanda
af ljósmyndum, skúlptúrum,
teikningum og textaverkum
auk útgáfu nýrrar bókar – Orðið
á götunni, safn setninga sem
Margrét heyrði á förnum vegi og
skrásetti. Sýningin verður opnuð
í dag.
Aðventan er í huga margra rómantískur tími en jafnframt tími hefða. Fyrsta sunnudag í aðventu ber upp á sunnudag-
inn 3. desember, aðventan hefst því
nokkuð seint í ár.
Aðventukransagerð er að margra
mati ómissandi hluti af tilverunni á
þessum tíma og sumir hafa sterkar
skoðanir á því hvernig kransinn eigi
að líta út. Útlit þeirra er ekki óháð
tískusveiflum frekar en annað. Á
tímabili var í tísku að vera með
könglakransa eða einungis kerti á
bakka með einhverju skrautlegu í
stíl en í huga margra er hinn hefð-
bundni grenikrans sá eini rétti –
helst heimagerður.
„Ég er enn að melta það hvernig
krans ég geri í ár,“ segir Ólafur
Stephensen, framkvæmdastjóri
Félags atvinnurekenda, en hann er
einn þeirra sem halda fast í þá hefð
að gera sinn eigin krans á aðventu.
„Ég hef gert minn eigin krans frá því
að ég flutti úr foreldrahúsum. Ég vil
gera þetta eins og mamma gerði, ég
vef hann sjálfur og nota þrjár gerðir
af greinum og fjóra klasa af kúlum.
Einfaldleikinn er ríkjandi hjá mér,
sjaldnast eitthvert dúllerí, mamma
var bara með greni en ég skreyti
minn aðeins. Fyrir tveimur árum
var ég með krans sem ég föndraði
inni í bílskúr og svo áttaði ég mig
á því þegar ég var búinn með hann
að hann var í litasjetteringu við fjöl-
skyldubílinn. Það var skemmtileg
tilviljun en ég fór hefðbundnari leið
í fyrra. Var með há hvít kerti og rauð
ber en plaststjaka og það endaði
ekki vel því á aðfangadag kviknaði
í kransinum.“
Á hverju ári er varað við eldhættu
þegar kertaskreytingar fylla stofur
landsmanna, það er greinilega aldr-
ei of varlega farið. „Ég fer praktísku
leiðina í þetta sinn, held mig við
eldhelda kramarhúsastjaka sem ég
hef oft verið með áður og skipti út
sprittkertum eftir þörfum.“
Margir eiga ljúfar æskuminningar
um notalega fjölskyldustund þegar
kveikt var á aðventukertunum.
„Eftir að börnin mín urðu eldri
er viðhöfnin minni, en þegar þau
voru yngri var oft lesin einhver við-
eigandi saga þegar kveikt var á kert-
inu.“ astahrafnhildur@frettabladid.is
Aðventukrans í stíl við bílinn
Ólafur Stephensen, framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda, er enn að ákveða hvernig aðventukransinn verður í
ár. Eitt árið gerði hann aðventukrans í bílskúrnum sem hann áttaði sig eftir á að var í stíl við bílinn.
Ólafur Stephensen framkvæmdastjóri í Blómavali að kanna hráefni í næsta aðventukrans. FréttaBlaðið/antonBrink
aðventukransinn sem var gerður í bílskúrnum reyndist vera í stíl við fjöl-
skyldubílinn.
Sigurborg Selma
blaðamaður.
Emmsjé Gauti rappari.
Hvað á að gera um helgina?
slökun í bústað
Ég er að opna veislusal
ásamt toppgengi í mið-
bænum! Erum á fullu
í því í dag. Svo ætla ég
upp í bústað með nánum
vinum að slaka aðeins á
þar sem þetta er afmælis-
helgin mín.
Grefur upp
jólaskraut
Ég ætla að eiga mjög
rólega og notalega
helgi. Planið er að
grafa upp eitthvað af
jólaskrautinu, fara í
bröns á The Coocoo’s
Nest og mögulega
kíkja á Jólabasarinn í
Lækjarbotnum.
lestu
Tvíflautuna
sem er fyrsta
skáldsaga Jóns
Sigurðar Eyj-
ólfssonar. Sagan
segir frá ungum
Vestfirðingi
sem freistar
gæfunnar í
Grikklandi.
Grískar dívur,
ástríðufullir
tónlistarmenn,
drykkfelldir
samstarfsmenn
og ráðríkir
Grikkir koma
æðandi inn í líf
hins óharðnaða
Íslendings.
ÉG Hef Gert minn eiGin
krans frá því að ÉG
flutti úr foreldraHús
um. ÉG vil Gera þetta
eins oG mamma Gerði.
Spennandi og fróðleg bók
Illugi Jökulsson
ÖRLAGASÖGUR FRÁ HAFINU
Í SÍÐARI HEIMSSTYRJÖLD
Margrét Bjarnadóttir
listamaður.
1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r22 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Helgin
1
8
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:3
7
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
4
0
-6
7
F
4
1
E
4
0
-6
6
B
8
1
E
4
0
-6
5
7
C
1
E
4
0
-6
4
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
1
7
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K