Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 43

Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 43
Elsa M. Víðis, 37 ára gömul, sex barna móðir sem átti mjög lengi erfitt með svefn vegna veikinda hjá sér og syni hennar. Hún náði aldrei að sofa heila nótt og komst ekki út úr þeim vítahring en hún hefur þetta að segja um Melissa Dream: „Mamma mín kynnti mig fyrir Melissa Dream sem ég hafði enga trú á í byrjun. Ég ákvað engu að síður að slá til og prófa einn pakka. Því- líkur munur! Ég bæði sef fastar og sofna fyrr. Ég ligg ekki andvaka á koddanum og vakna endurnærð og úthvíld. Ég sef alla nóttina og er ekki sífellt að vakna upp eins og áður. Ég mæli hiklaust með Melissa Dream fyrir alla.“ Mæli með Melissa Dream Svefninn er okkur gríðarlega mikilvægur til þess að við getum tekist á við eril dagsins og staðist þá streitu sem fylgir dag- lega lífinu. Svefninn er að stærstum hluta eins uppbyggður og á sama formi hjá öllum sem sofa eðlilega og ótruflað. Álitið er að REM-svefn og djúpsvefn séu mikilvægustu svefnstigin en þau ættu að ná yfir u.þ.b. 45-50% af öllum nætursvefni. Fullorðinn einstaklingur þarf að meðaltali 7-8 klst. svefn og ef það gengur ekki eftir getur það haft neikvæð áhrif á almenna líðan, fjölskyldu-, félags- og atvinnulíf. Orsakir svefnleysis Af hverju sofnum við ekki, erum andvaka eða vöknum upp um miðjar nætur og getum ekki sofnað aftur? „Það eru fjölmargar ástæður fyrir því að við getum ekki sofnað eða sofið þannig að við hvílumst og vöknum endurnærð. Vakta- vinna, ferðalög, kvíði og áhyggjur er algeng orsök svefnleysis en ýmsir sjúkdómar geta einnig haft mikil áhrif á svefninn. Streita er mjög algeng orsök en það er allt of algengt að fólk vinni of mikið, sé með fjárhagsáhyggjur, vanti hreyfingu og/eða eigi í erfiðum samböndum, hvort sem er við maka, vini eða aðra. Mataræði og venjur geta líka átt stóran þátt í svefnleysi,“ segir Hrönn Hjálmars- dóttir, heilsuráðgjafi hjá Artasan. Einbeitingarskortur og offita Langvarandi röskun á svefni og svefnmynstri getur haft mjög alvarlegar heilsufarslegar afleið- ingar. Einkenni svefnleysis eru m.a. þreyta yfir daginn, skapsveifl- ur og jafnvel þunglyndi og kvíði. Einbeiting versnar, slysahætta eykst og ýmis andleg og líkamleg vandamál, eins og t.d. offita, verða algengari. Sum einkenni geta líka dregið þann dilk á eftir sér að þau ýti undir frekara svefnleysi sem þýðir að við erum komin í víta- hring sem þarf einhvern veginn að rjúfa. Vilt þú sofa betur? Það er ýmislegt sem hægt er að gera til að vinna bug á svefnleysi og gott að byrja á því að breyta einföldum hlutum í nærumhverfi okkar ef það á við. Við eigum ekki að borða á kvöldin og passa okkur á því að drekka ekki of mikið, bæði til að gefa meltingarfærunum pásu Vakna endurnærð og úthvíld Melissa Dream er vísindalega samsett náttúrulyf, hannað til að stuðla að djúpri slökun og værum svefni. Þessi blanda inniheldur ekki efni sem hafa sljóvgandi áhrif. Hrönn Hjálmarsdóttir heilsuráðgjafi. og að losna við klósettferðir. Ekki taka tölvur eða síma með í rúmið og lágmarka alla notkun rafmagns- tækja í svefnherberginu sem á að vera vel loftað, myrkvað og hljóð- látt. Náttúruleg bætiefni reynast mörgum vel og hefur Melissa Dream alveg slegið í gegn. Þetta bætiefni fékk um daginn viður- kenningu frá National Nutrition í Kanada í flokki bestu fæðubótar- efna gegn streitu. Amínósýra sem stuðlar að slökun Melissa Dream inniheldur sítrónumelissu sem hefur verið notuð í aldaraðir m.a. til að bæta svefn og draga úr kvíða. Þar er einnig að finna L-theanine, amínó- sýru sem finnst í svörtu og grænu tei og hafa rannsóknir sýnt að hún hefur bein áhrif á heilann þar sem hún stuðlar að slökun án þess að hafa sljóvgandi áhrif. Að lokum innheldur Melissa Dream B-víta- mín sem er gott fyrir taugakerfið og nægilegt magn af magnesíum sem er vöðvaslakandi og getur dregið úr óþægindum í hand- og fótleggjum. HAM Svefnleysi getur þó verið alvar- legra vandamál en svo að einföld ráð dugi. Þá er best að ráðfæra sig við lækni. Þess ber þó einnig að geta að rannsóknir hafa sýnt að bestur árangur næst með hug- rænni atferlismeðferð (HAM) sem er nokkurra vikna námskeið sem fólk getur sótt. Ég ligg ekki and- vaka á koddanum og vakna endurnærð og úthvíld. Elsa M. Víðis Góðgerlar sem styrkja meltinguna og vinna gegn fjölgun Candida sveppsins í meltingarvegi. Bio-Kult Candéa Bio-Kult góðgerlar styrkja meltinguna! Hágæða góðgerlar, heilbrigð bakteríuflóra. Fæst í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Bio-Kult Original Bio-Kult Pro-Cyan Bio-Kult Infantis Öflug blanda góðgerla sem byggir upp þarmaflóruna og styrkir varnir líkamans. Styrkir þvagrásina og virkar sem öflug vörn gegn þvagrásarvandræðum. Góðgerlar fyrir börn á öllum aldri. Eflir þarmaflóruna, án allra aukaefna og er bragðlaust. Bio-Kult-Hamingjan 5x10 copy.pdf 1 10/11/2017 14:30 FÓLK KYNNINGARBLAÐ 3 L AU G A R DAG U R 1 8 . n óv e M b e r 2 0 1 7 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 4 0 -A D 1 4 1 E 4 0 -A B D 8 1 E 4 0 -A A 9 C 1 E 4 0 -A 9 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.