Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 84

Fréttablaðið - 18.11.2017, Side 84
Kannski þarf ekki að koma á óvart að Ítalía verði ekki með á Heimsmeistara-mótinu í Rússlandi. Frá því að liðið varð heimsmeistari árið 2006 hefur það farið heim eftir riðlakeppnirnar árin 2010 og 2014 og aðeins unnið einn leik. Stórkostlegir varnarmenn eru nú komnir á eftirlaun og einstakir sóknarmenn eru ekki að raða inn mörkum. Ítalskir leikmenn eru ekki lengur í heimsklassa og lélegur þjálf- ari, Gian Piero Ventura, gat ekki gert kjúklingasalat úr kjúklingaskít. Auðvitað var skrítið að velja Gian Piero Ventura sem þjálfara. Hann var áður með Tórínó og hafði gert það að góðu liði á þeim fimm árum sem hann var í borginni. En hann hafði aldrei unnið neitt. Þegar 41 árs ferill hans er skoðaður er hans helsta afrek að hafa komið Lecce upp úr Seríu C árið 1996. Auðvitað er það broslegt að hann hafi byrjað með Andrea Belotti, Stephan El Shaarawy og Lorenzo Insigne á bekknum í leiknum við Svía þar sem Ítalir þurftu að skora. Og auðvitað er það brandari sem nafni Ventura, Ace, hefði ekki getað skrifað betur, að hann vildi að Daniele De Rossi myndi hita upp þegar skammt var eftir. Sá er djúpur miðjumaður! De Rossi horfði eðli- lega furðu lostinn á starfsmanninn sem bar honum tíðindin og bað um að Insigne myndir frekar fara inn á enda sóknarmaður og það skrambi góður. De Rossi hætti eftir tapið gegn Svíum eins og hinir sem lyftu Heimsmeistarabikarnum árið 2006, Gianluigi Buffon og Andrea Barzagli. Fastlega er búist við að Giorgio Chiellini muni einnig leggja landsliðs- skóna á hilluna. Ventura er það lélegur þjálfari að eldri leikmenn ítalska landsliðsins héldu neyðarfund eftir jafnteflið við Makedóníu í riðlakeppninni og aftur eftir tapið í Stokkhólmi í fyrri umspilsleiknum. Ventura hlustaði ekki og spilaði 3-5-2 sem hentaði Svíunum stórkostlega en Ítölum hræðilega. Kannski var ástæðan fyrir því að Buffon grét í upphafi leiks sú að hann vissi að þetta yrði hans síð- asti leikur. Það munu margir sakna Ítalanna og sumir spekingar hafa bent á að þetta sé eins og pitsa án osts. Þeir hafa jú unnið þetta blessaða HM fjórum sinnum og eiga tvö silfur. Þetta verður ein mest áberandi fjar- vera frá upphafi HM. Englendingar misstu af tveimur, 1970 og 1994, en þeir hafa unnið HM einu sinni og eru ekki líklegir og hafa aldrei verið líklegir síðan. En Ítalir eiga ekkert að vera á HM af því bara. Þeir voru ekki nógu góðir, svo einfalt er það og Ítalir þurfa að finna sér eitt- hvað annað að gera í sumar en að horfa á fótbolta. Þótt liðið nú sé það lélegasta í glæstri knattspyrnusögu Ítala er framtíðin þokkalega björt sé haldið rétt á spilunum. Hinn 18 ára Gianluigi Donnarumma mun leysa Buffon af hólmi. Daniele Rugani, Alessio Romagnoli og Mattia Cald- ara eru fínir varnarmenn og hafa vakið athygli. Marco Veratti verður áfram á miðjunni, Jorginho spilaði sinn fyrsta landsleik gegn Svíum og Roberto Gagliardini lofar góðu. Þá er sonur Enrico Chiesa, Federico, orð- aður við PSG. Eitthvað þarf að geta til að vera orðaður við Parísarrisann. Ótrúlegt en satt, þá sagði Ventura ekki af sér strax eftir leik enda með samning til 2020 og vildi maka krók- inn eins vel og hann gat. Engar líkur eru á að hann fái annað starf, kom- inn á þennan aldur og er óvinsæl- asti maður Ítalíu þar að auki. Hann var þó rekinn á miðvikudag.  Ítalir munu missa af rúmum 100 milljónum evra vegna úrslitanna. La Repubblica hélt því fram að verg landsframleiðsla hefði aukist um eitt prósent þegar liðið varð heims- meistari. Það eru um 16 milljarðar evra. Carlo Tavecchio, formaður ítalska knattspyrnusambandsins, er eðlilega einnig undir mikilli pressu. Í grein BBC er sagt frá því að hann hafi ætlað að fara þýsku leiðina og byggja 200 knattspyrnuvelli. Þrjátíu hafa verið opnaðir. Hann lofaði líka að fækka liðum í ítölsku deildinni og hafa 18 lið í efstu deild. Það hefur ekki gerst. Fleiri loforð sem hann gaf eru tíunduð í greininni en lítið hefur verið um efndir. Ítalska deildin er að vakna til lífs- ins eftir nokkur mögur ár og þar eru margir góðir leikmenn. Verst er að þeir eru ekki margir ítalskir. Juvent- us hefur komist í tvo úrslitaleiki á síðustu þremur árum, miðað við að enska úrvalsdeildin átti síðast lið þar árið 2012. Þá er deildin komin upp fyrir þýsku Bundesliguna í styrk- leikaröðun UEFA og er nú sögð sú þriðja besta í Evrópu. Pepsi-deildin er sögð sú 34. besta. En vandamálin eru enn víða. Aðeins Juventus spilar á sínum eigin nýja velli. Önnur stórlið, AC Milan, Inter, Roma og Napólí, leika á hrör- legum völlum sem voru síðast endur- gerðir fyrir HM 1990. Eigandi Roma hefur reyndar kynnt fyrir borgaryfir- völdum plön fyrir nýjan völl en ekk- ert hefur gerst. Ítalir komust í undanúrslit á EM-U21 og HM-U20. Talað er um að 2001 kynslóðin sé næsta gullkynslóð Ítala en Pietro Pellegri var sá fyrsti úr þeirri kynslóð að fá leik í Seríu A með Genóa. Hann var 15 ára. Feder- ico Bernardeschi, efnilegasti leik- maður Ítala, var keyptur til Juventus frá Fiorentina, fyrir tímabilið á 40 milljónir evra. Hann hefur þó mest setið á bekknum það sem af er tíma- bilinu. Hans tími mun þó koma, það eru Ítalir sannfærðir um. Í leiðara Gazzetta dello Sport er bent á að spænsk félög séu skyldug tilt að eyða 10 prósentum af veltunni í yngri flokka. Á Ítalíu er ekkert slíkt til og lítið hefur breyst undanfarin ár enda var þess ekki þörf lengi vel. Evrópubikarar fóru á loft reglulega og bestu leikmenn heims vildu spila á Ítalíu. Kaká spilaði með AC Milan þegar hann var kosinn bestur í heimi árið 2007. Sá síðasti sem vann þessa kosningu áður en Messi og Ronaldo tóku hana yfir. „Það er kominn tími til að gera ákveðna hluti sem kannski forverar mínir þurftu ekki einu sinni að spá í,“ sagði íþróttamálaráðherra Ítalíu, Luca Lottio í vikunni. Ítalir eru á botninum og verða ekki með á HM. Slíku verður ekki tekið þegjandi og hljóðalaust. Það má því búast við að Ítalir spyrni frá sér og spyrnan frá botninum er alltaf best. Leikvangurinn Hnignun ítalska boltans Mikil reiði í bland við sorg ríkir nú á Ítalíu eftir að landsliðinu mistókst að komast á Heimsmeistaramótið í Rússlandi. Leikmenn brustu í grát á vellinum og vissu að þeir ættu erfiðar vikur framundan. Sé horft til framtíðar er þó ljós í göngunum því margir efnilegir leikmenn eru á leðinni. NoRdicPHotoS/Getty Hvað klikkaði? Elvar GEir MaGnússon ritstjóri fótbolti.net Úrslit liðsins á síðustu stór- mótum hafa í raun bent til þess að þetta gæti gerst. Síðan liðið vann mótið 2006 hefur það aðeins unnið einn leik á HM. Liðið er stórstjörnulaust að mestu og endurnýjunin innan hópsins virðist ekki hafa tekist. Þetta er áfall fyrir Ítalíu, sérstak- lega nú þegar deildarkeppnin þar í landi virðist vera að styrkjast og eflast eftir nokkra lægð. Margar af skærustu stjörnunum þar koma frá Suður-Ameríku svo plássið fyrir ítalska leikmenn er kannski ekki það sama og áður. Auk þess má setja stórt spurningamerki við þjálfara- valið hjá þeim. En þegar öllu er á botninn hvolft á Ítalía helling af ungum spennandi leikmönnum og mönnum á besta aldri. Ef rétt er tekið til þá mætir Ítalía sigur- strangleg á Evrópumótið 2020. Líklegir eftirmenn Ventura l Carlo Ancelotti l Antonio Conte l Roberto Mancini, l Massimiliano Allegri Heimsmeistaramótið í fótbolta verður án Ítalíu. Fjórfaldir heimsmeist- arar gátu ekki potað inn marki þegar þeir þurftu í umspilsleikjum gegn Svíum. Frá því að Ítalía lyfti bikarnum árið 2006 hefur ákveðin hnignun átt sér stað. Botninum var svo náð á mánudag. En spyrnan frá botn- inum er alltaf best segir máltakið og ferskir fætur bíða handan við hornið. Benedikt Bóas Benediktboas@365.is Stórlið sem verða ekki með á HM Ítalía Fjórfaldir heimsmeistarar Holland Þrefaldir silfurhafar og Evrópumeistarar 1988 chile Tvöfaldir Copa America meistarar Kamerún Fimmfaldir Afríkumeistarar Fílabeinsströndin Tvöfaldir Afríkumeistarar Gian Piero Ventura er óvinsælasti maður Ítalíu. Gianluigi Buffon grætur fyrir neðan. 1 8 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 L A U G A r D A G U r44 H e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð 1 8 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :3 7 F B 1 2 0 s _ P 0 8 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 4 0 -A 8 2 4 1 E 4 0 -A 6 E 8 1 E 4 0 -A 5 A C 1 E 4 0 -A 4 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 2 0 s _ 1 7 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.