Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —2 7 1 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F ö s t u d a g u r 1 7 . n ó v e M b e r 2 0 1 7 FrÍtt Fréttablaðið í dag sKOðun Verður framtíðinni slegið á frest? spyr Þorsteinn Víglundsson. 18 spOrt Breytingar á körfubolt- anum hjálpa landsbyggðinni. 24 lÍFið Jóhanna Gísladóttir, sóknarprestur í Langholts- kirkju, er reglulega beðin um aðstoð vegna reimleika. 42 plús 2 sérblöð l FólK l  KOnur Í Ferðaþjónustu *Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015 Það leynir sér ekki að vel fer á með þeim Bjarna Benediktssyni og Katrínu Jakobsdóttur þrátt fyrir að þau séu í forystu fyrir flokka sem staðsettir eru sinn hvorum megin á hinu pólitíska litrófi. Þau tvö funduðu ásamt Sigurði Inga Jóhannssyni í Ráðherrabústaðnum í gær, um málefnin og verkaskiptingu flokkanna í þeirri stjórn sem er í fæðingu. Fréttablaðið/Eyþór viðsKipti Öryggisfyrirtækið 115 Security sætir nú rannsókn af hálfu skattrannsóknarstjóra vegna gruns um aðild að meintum skattsvikum undirverktaka fyrirtækisins á árun- um 2011 til 2014. Um er að ræða samninga sem fyrirtækið hafði gert við undirverk- takana um mönnun öryggisgæslu upp á allt að 700 milljónir króna. 115 Security er eitt af fjórum dóttur- félögum Öryggismiðstöðvarinnar, en er rekið sem sjálfstætt fyrirtæki. Framkvæmdastjóri 115 Security segir fyrirtækið hafa verið dregið inn í rannsóknina að ósekju. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins leikur grunur á að um hafi verið að ræða svarta starfsemi og svokallaða gerviverktöku, þar sem starf launamanns er gert að verktakastarfi, og að rúmlega 400 milljónum króna hafi verið stungið undan skatti. Er meðal annars til rannsóknar hvort öryggisfyrirtækið hafi átt þátt í meintum skattsvikum, en undirverktakarnir, sem eru níu talsins, eru allir komnir í gjaldþrot og hafa hætt starfsemi. Friðrik Sverrisson, framkvæmda- stjóri 115 Security, segir það af og frá að fyrirtækið hafi átt nokkurn þátt í meintum svikum og furðar sig á því að það sé dregið inn í rannsóknina – enda hafi það ávallt staðið í skilum. Verktakasamningum hafi sömuleið- is verið rift um leið og fyrirtækinu hafi verið gert viðvart um hugsanleg skattsvik. „Þetta er mjög skrítið mál og for- dæmalaust með öllu. Það er verið að rannsaka skattskil hjá undirverk- tökum fyrirtækisins, og verið að blanda okkur inn í málið algjörlega að ósekju. Þeirra skattskil eru okkar félagi algjörlega óviðkomandi, en þegar við fengum ábendingu um að skattskil þessara undirverktaka væru í ólestri þá hættum við strax viðskiptum við þá,“ segir Friðrik. Aðspurður segir Friðrik rann- sókn hafa hafist árið 2014 en hann viti ekki hve langt hún  er komin. Bryndís Kristjánsdóttir skattrann- sóknarstjóri vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað, en að rannsókn lokinni mun embættið meta hvort tilefni sé til að senda málið áfram til héraðssaksóknara, sem getur svo gefið út ákæru. Móðurfélag 115 Security, Örygg- ismiðstöð Íslands, var sett í sölu- ferli í lok apríl. Hætt var við söluna um þremur mánuðum síðar þegar eigendurnir fengu ekki þau tilboð sem þeir vonuðust eftir – rúmlega þrjá milljarða króna. sunnakaren@frettabladid.is Grunur um stórfelld undanskot frá skatti Dótturfyrirtæki Öryggismiðstöðvarinnar sætir rannsókn vegna gruns um skatt- svik undirverktaka sinna. Grunur leikur á að 400 milljónum hafi verið stungið undan. Framkvæmdastjórinn segir fyrirtækinu blandað í málið að ósekju. GJAFA KORT BORGAR LEIKHÚSSINS GJÖF SEM LIFNAR VIÐ 568 8000 • BORGARLEIKHUS.IS Ferðaþjónusta Tekjur Hallgríms- kirkju af seldum ferðum upp í útsýnispall kirkjuturnsins námu 238 milljónum króna á síðasta ári. Það er tekjuaukning um ríflega 77 milljónir króna á milli ára. Fram- kvæmdastjóri Hallgrímskirkju segir það fjölgun ferðamanna að þakka. Hallgrímssókn skilaði 81 milljón í tekjuafgang á síðasta ári. Ríkisendurskoðun birti á þriðju- dag yfirlit úr ársreikningum sókna fyrir árið 2016. Þar má sjá að heildar tekjur Hallgrímssóknar námu 334,7 milljónum króna á síð- asta ári, þar af voru 33,6 milljónir í sóknargjöld frá ríkinu, 29 milljónir í önnur framlög og styrki en mest munar um liðinn „aðrar tekjur“ sem námu rúmum 272 milljónum króna, samanborið við 195 milljónir árið 2015. – smj / sjá síðu 2 Tekjur jukust um tugi milljóna 700 milljóna króna samningar voru gerðir við undirverk- taka. stjórnMál Rætt er um lækkun neðra tekjuskattsþreps einstaklinga og hækkun á fjármagnstekjuskatti í stjórnarmyndunarviðræðum for- manna VG, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Formenn flokkanna, þau Katrín Jakobsdóttir, Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, hittust í Ráðherrabústaðnum í Tjarnargötu í gær til að halda áfram viðræðum sínum. – aá / sjá síðu 8 Ræða lækkun á neðra þrepi 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 D -F 1 3 0 1 E 3 D -E F F 4 1 E 3 D -E E B 8 1 E 3 D -E D 7 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.