Fréttablaðið - 17.11.2017, Side 6

Fréttablaðið - 17.11.2017, Side 6
Á myndina vantar mömmu Útrýmum ótímabærum hjarta- og æðaáföllum 907 1502 2.000 KR 907 1505 5.000 KR 907 1508 8.000 KR Söfnunarþáur í opinni dagskrá á Stöð 2, 17. nóvember kl. 19.25 Samfélag „Enginn ætti að þurfa að sofa úti í frosti,“ segir Hjördís Diljá Bech. Í  vikunni varð hún vitni að því, þrjú kvöld í röð, að karlmaður lagðist til svefns á bekk við Austurbæ í Reykjavík. Hún segir manninn hafa litið snyrtilega út og ekki verið til vandræða. „Hann vantaði augljóslega næt­ urstað. Og þessi tiltekni bekkur varð fyrir valinu.“ Hjördís undrast aðgerðarleysið en það var ekki fyrr en maðurinn var sofnaður á bekkn­ um, þriðju nóttina í röð, að lögreglan hafði afskipti af honum. „Ég geri ráð fyrir því að lögreglan hafi fundið úrræði fyrir manninn þar sem ég hef ekki séð hann aftur.“ Hjördís birti mynd af manninum á samfélags­ miðlum sem vakti mikla athygli. Þór Gíslason, forstöðumaður Gisti­ skýlisins við Lindargötu, bendir á að í Gistiskýlinu sé pláss fyrir 25 ein­ staklinga. Ekki var fullt í Gisti skýlinu í vikunni. Þór segir það þó ekki koma sér sérstaklega á óvart ef maðurinn hefur kosið að leita ekki þangað. „Gistiskýlið er ekki notalegt athvarf sem hentar hverjum sem er. Hérna er fyrst og fremst fólk í neyslu. Fólk sem er ekki í neyslu á enga samleið með þeim hópi. Það skortir neyðarúrræði fyrir fjölbreyttari hóp. Þá vantar lang­ tíma úrræði fyrir heimilislausa.“ Ilmur Kristjánsdóttir, formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar, segir engan eiga að þurfa að sofa undir berum himni í borginni. „Við erum með gistiskýlið. En ég veit vel að fólk sem er ekki í neyslu vill ekki vera þar. Gistiskýlið er þó okkar neyðarúrræði.“ Ilmur undrast að maðurinn hafi sofið úti og bendir á að þegar starfsfólk Gistiskýlisins fái ábendingar um fólk sem sofi utandyra fari það, oftar en ekki, og athugi með viðkomandi. „Vanda­ mál fólks eru auðvitað af ýmsum toga. Við erum með mikið af lang­ tíma úrræðum fyrir utangarðsfólk. Þá erum við búin að tvöfalda áætlun um að fjölga félagslegu húsnæði á þessu ári. Vonandi horfum við fram á betri tíma.“ – kc Hreiðraði um sig í svefnpoka fyrir framan Austurbæ StjórnSýSla „Landhelgisgæslu Íslands hefur borist tilkynning frá Advanced Marine Services Ltd. um að á næstu dögum hefjist fram­ kvæmdir við skipsflakið Minden,“ segir í svari Landhelgisgæslunnar til Fréttablaðsins. Umhverfisstofnun veitti í gær lög­ manni breska félagsins Advanced Marine Services sjö daga frest til að færa rök fyrir því hvers vegna stofn­ unin eigi ekki að veita Fréttablaðinu aðgang að upplýsingum um hvenær félagið hyggst ná verðmætum úr flutningaskipinu Minden. Er spurst var fyrir hjá Umhverfis­ stofnun kom í ljós að umboðs­ maður AMS sendi stofnuninni bréf 9. nóvem ber um upphaf aðgerða. Er þar krafist að bréfið sé undanskilið upplýsingarétti upplýsingalaga. Umhverfisstofnun veitti í októ­ ber AMS starfsleyfi til að rjúfa gat á Minden og gildir leyfið til 1. maí á næsta ári. Þar sem AMS bar að til­ kynna með sjö daga fyrirvara um leiðangur sinn gæti aðgerðin hafa byrjað strax í gær og þar með verið lokið áður en Umhverfisstofnun næði að taka ákvörðun um aðgang að fyrrnefndu skjali. Engin svör fást frá umboðsmanni AMS hérlendis. „Já, samkvæmt ákvæði starfs­ leyfis sem gerir ráð fyrir tilkynn­ ingu að minnsta kosti viku fyrir er ljóst – þar sem við höfum þá skyldu að veita þeim sjö daga and­ mælafrest – að framkvæmdinni gæti verið lokið áður en við náum að taka ákvörðun,“ svarar Kristín Linda Árnadóttir, forstöðumaður Umhverfisstofnunar. „Það kemur fram í bréfinu hve­ nær þeir ætla að fara en bréfið sjálft í heild sinni telja þeir vera undan­ þegið upplýsingaskyldu og þar með getum við auðvitað ekki tjáð okkur um efni þess eins og sakir standa,“ útskýrir forstjórinn. Fram hefur komið að AMS telur að í skáp í Minden leynist gull. Gætu þar verið  gríðarleg auðævi. Þjóð­ verjar sökktu þessu flutningaskipi sínu sjálfir í september 1939 til að forða því undan  Bretum. Flakið liggur á yfir 2,2 kílómetra dýpi um 120 sjómílur undan strönd Íslands. Kristín Linda segir AMS skylt að gefa Umhverfisstofnun skýrslu og upplýsingar, meðal annars um magn og gerð þeirra hluta sem teknir verða úr Minden. „Og að sjálfsögðu verðum við í samstarfi við Landhelgisgæsluna sem verður með skipið í vöktun á framkvæmdatíma,“ segir forstjór­ inn. „Að svo stöddu áformar Land­ helgisgæslan ekki sérstakan við­ búnað, umfram þann sem kveðið er á um í starfsleyfi Umhverfisstofn­ unar frá því í október,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Frá því var greint í Fréttablað­ inu 5. október  að þýska skipa­ félagið Hapag­Lloyd AG hafði sent Umhverfisstofnun bréf og  lýst sig eiganda að flaki Minden og öllu sem í því kann að vera. gar@frettabladid.is Aðgerð gullleitarfélags að hefjast við Minden Advanced Marine Services er nú að hefjast handa við að ná gulli úr flaki þýska skipsins Minden. AMS hindraði að Umhverfisstofnun veiti Fréttablaðinu aðgang að bréfi um málið. Landhelgisgæslan staðfestir hins vegar upphaf aðgerða. SkipulagSmál Hæstiréttur hafnaði í gær kröfum Reykjavíkurborgar um að afrétti Seltjarnarneshrepps til forna, tæpum 8.000 hekturum, verði skipað innan staðarmarka borgar­ innar. Samkvæmt dómi réttarins er þjóðlendan því innan staðarmarka Kópavogs. Sveitarfélög á höfuðborgarsvæð­ inu hafa um áratugaskeið deilt um lögsögu á landsvæðinu en innan þess eru meðal annars Bláfjöll, Sand­ skeið og Vífilfell. Guðjón Ármannsson, lögmaður Kópavogs í málinu, bendir á að með dómi Hæstaréttar þurfi Reykjavíkur­ borg nú að sjá á eftir 3.000 hekturum af landsvæði sem hingað til hafi verið inni á aðalskipulagi borgar­ innar. Skipulagsvald færist samhliða yfir til Kópavogsbæjar. Þar að auki muni Suðvesturkjördæmi stækka. – hg Reykjavík missir 3.000 hektara Hin meinta fjársjóðskista í Minden var mynduð úr fjarstýrðum kafbát í apríl á þessu ári. Þilfar Meint fjársjóðskista Lokað rými Myndin sem gekk á samfélagsmiðlunum vakti mikla athygli þeirra sem áttu leið fram hjá Austurbæ í gær. Ekki er vitað hvers vegna maðurinn svaf úti. Framkvæmd gæti verið lokið áður en við náum að taka ákvörðun. Kristín Linda Árnadóttir, forstöðumaður Umhverfis­ stofnunar Sveitarfélög á höfuð- borgarsvæðinu hafa um áratugaskeið deilt um lögsögu á landsvæðinu, sem nær yfir Bláfjöll, Sandskeið og Vífilfell. 1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 f Ö S t u D a g u r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -1 D A 0 1 E 3 E -1 C 6 4 1 E 3 E -1 B 2 8 1 E 3 E -1 9 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.