Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 17
Þórlindur Kjartansson Í dag Við óskum starfsfólki Landsvirkjunar og Norðlendingum til hamingju með Þeistareykjastöð. Á ákveðnu tímabili í lífi mínu var ég mjög sannfærður um mikil-vægi þess að eiga góða óvini. Þar með var ég alls ekki að gera lítið úr kostum vináttunnar. Eiginlega þvert á móti. Mér fannst að ef ég væri góður óvinur þá gerði það vináttu mína dýr- mætari og sannari. Mér gekk líka býsna vel að eignast óvini, enda þarf ekki mikið til. En þó kemur óvináttan ekki af sjálfu sér. Það er nefnilega eins með hatrið og ástina; maður þarf að leggja rækt við það til þess að það fölni ekki og gleymist. Ólíkt vináttunni þá er ekki nauð- synlegt að óvinátta sé gagnkvæm. Hún getur verið einhliða og falin, meira að segja getur hún verið vafin í yfirborðs- kennd vingjarnlegheit þannig að hinn hataði óvinur er aldeilis grunlaus um heiftúðugt hugarþel í sinn garð. En því verður þó ekki neitað að það er meiri myndarbragur yfir óvináttu sem er opinber og gagnkvæm heldur en þeirri sem kraumar einmana og óséð í kvöldum og hefndarþyrstum hugar- fylgsnum eins manns. Nei, það borgar sig ekki að festast of lengi í einhliða óvináttu og hatri því slíkt er eitrandi fyrir sál og sinnu og verður því ekki mælt með henni hér. Erkióvinur Æðsta takmark þeirra sem kunna að meta góðan óvinskap hlýtur að vera að eignast verðugan erkióvin. Sá sem á erkióvin í lífinu þarf ekki að kvíða verkefnaleysi eða leiðindum. Barátta við góða erkióvininn hrekur burt loft- illa og dáðlausa lognmollu lífsins en fyllir tilveruna tilgangi og athafnaþrá. Það var ein af gæfum lífs míns að eignast ungur alveg sérdeilis góðan erkióvin. Óvinurinn var mörgum góðum kostum búinn. Hann var frem- ur ógnvænlegur í fasi og klæðaburði, og léði það óvináttu minni ákveðinn hetjuljóma þar sem ég var sjálfur fremur veimiltítulegur að burðum og lítt ógnandi. Segja má að óvinátta okkar hafi blómstrað frá því við fyrst fréttum hvor af öðrum, því alltaf virtumst við vera að eltast við sömu hlutina og þvælast fyrir fyrirætlunum hvor annars. Þetta var sönn óvinátta því ómengaður illvilji var á milli okkar, við gerðum hvor öðrum tjón við hvert tækifæri og falli spáðum. Ekki nóg með það; vinahópar okkar sköruðust sáralítið þannig að það reyndist mjög auðvelt að espa upp ágæta stemmningu í kringum þessa óvináttu. Við gátum stöðugt gert okkur í hugarlund hvers konar bölvanlegt ráðabrugg væri í uppsiglingu af hálfu erkióvinarins og hans hyskis og búið okkur undir það með ennþá djöfullegri ráðagerðum til gagnsóknar. Ég ræktaði þessa óvináttu um hríð af umtalsverðri natni og einlægni, en smám saman fór þó að halla undan fæti. Það er nefnilega ýmislegt ólíkt með hatrinu og ástinni. Ástin á það nefnilega til að dafna með nándinni, en fátt er eins hættulegt góðri óvináttu eins og að kynnast óvini sínum. Þess vegna er sú grunnregla óvinátt- unnar þyngdar sinnar virði í brenni- steini að eiga helst aldrei neitt saman að sælda með óvini sínum og vinum hans. Ef maður vill ekki stefna óvinátt- unni í voða þá þarf að ríkja algjör og einbeittur aðskilnaður. Það má aldrei leyfa sér þann grun að nokkur minnsti vottur af sæmilegum mannkostum fyrirfinnist í erkióvini. Þetta vita allir sem starfað hafa í stjórnmálum þar sem illdeilur, einkum innan flokka, leiða oft til ævintýralegr- ar vænisýki þar sem það eitt að deila Óvinamissir kaffibolla með einhverjum úr „öðru liði“ getur leitt til meiriháttar afleiðinga og jafnvel útskúfunar. Það flækir nefni- lega tilveruna umtalsvert ef maður tapar fullvissunni um ómennska illsku og heimsku andstæðingsins. „Rosalega fínn gaur“ Það var þess vegna mikið áfall þegar ég varð vitni að því að einn besti vinur minn átti í kumpánlegu spjalli við erkióvin minn. Þessi sami vinur minn var tekinn til bæna við fyrsta tækifæri og rukkaður um skýr- ingar á þessu fáránlega frumhlaupi. „Heyrðu, mér finnst hann bara alveg rosalega fínn gaur,“ var þá svarið. Þetta var einmitt það sem ég vildi ekki heyra. Eftir á að hyggja var þetta líklega upphafið að endinum á þessari fyrir- taksgóðu óvináttu. Stuttu síðar komst ég ekki sjálfur hjá því að kynnast erkióvini mínum. Og viti menn—það kom í ljós að þetta var alveg rosalega fínn gaur, eins og mér hafði verið sagt. Með okkur tókst fljótlega vinátta og fyrr en varir vorum við farnir að eignast nýja óvini í sameiningu, eins og ekk- ert hefði í skorist. Og til að bæta gráu ofan á svart urðu meira og minna allir vinir okkar að vinum líka. Þvílík endemis sóun á því sem hefði getað verið ævilangur fjandskapur. O g a u ð vi t a ð h e f ð i e k k- ert af þessu þurft að gerast. Ef við hefðum bara passað betur að kynnast aldrei mannkostum hvor annars, hugsunum og heimsmynd; heldur bara hangið hvor í sínu horni með okkar bjöguðu hugmyndir um innræti og skapgerð hins—þá værum við kannski ennþá óvinir í dag. Þeim sem er annt um hatrið er því hollast að forðast þessi mistök, ellegar eiga á hættu að glata óvináttunni en eignast óvænta og óumbeðna vináttu í staðinn. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 1 7 . n ó v e m B e R 2 0 1 7 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 3 E -0 9 E 0 1 E 3 E -0 8 A 4 1 E 3 E -0 7 6 8 1 E 3 E -0 6 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.