Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 17
Þórlindur
Kjartansson
Í dag
Við óskum starfsfólki Landsvirkjunar
og Norðlendingum til hamingju
með Þeistareykjastöð.
Á ákveðnu tímabili í lífi mínu var ég mjög sannfærður um mikil-vægi þess að eiga góða óvini.
Þar með var ég alls ekki að gera lítið úr
kostum vináttunnar. Eiginlega þvert á
móti. Mér fannst að ef ég væri góður
óvinur þá gerði það vináttu mína dýr-
mætari og sannari.
Mér gekk líka býsna vel að eignast
óvini, enda þarf ekki mikið til. En þó
kemur óvináttan ekki af sjálfu sér. Það
er nefnilega eins með hatrið og ástina;
maður þarf að leggja rækt við það til
þess að það fölni ekki og gleymist.
Ólíkt vináttunni þá er ekki nauð-
synlegt að óvinátta sé gagnkvæm. Hún
getur verið einhliða og falin, meira að
segja getur hún verið vafin í yfirborðs-
kennd vingjarnlegheit þannig að hinn
hataði óvinur er aldeilis grunlaus um
heiftúðugt hugarþel í sinn garð. En því
verður þó ekki neitað að það er meiri
myndarbragur yfir óvináttu sem er
opinber og gagnkvæm heldur en
þeirri sem kraumar einmana og óséð
í kvöldum og hefndarþyrstum hugar-
fylgsnum eins manns. Nei, það borgar
sig ekki að festast of lengi í einhliða
óvináttu og hatri því slíkt er eitrandi
fyrir sál og sinnu og verður því ekki
mælt með henni hér.
Erkióvinur
Æðsta takmark þeirra sem kunna að
meta góðan óvinskap hlýtur að vera
að eignast verðugan erkióvin. Sá sem
á erkióvin í lífinu þarf ekki að kvíða
verkefnaleysi eða leiðindum. Barátta
við góða erkióvininn hrekur burt loft-
illa og dáðlausa lognmollu lífsins en
fyllir tilveruna tilgangi og athafnaþrá.
Það var ein af gæfum lífs míns að
eignast ungur alveg sérdeilis góðan
erkióvin. Óvinurinn var mörgum
góðum kostum búinn. Hann var frem-
ur ógnvænlegur í fasi og klæðaburði,
og léði það óvináttu minni ákveðinn
hetjuljóma þar sem ég var sjálfur
fremur veimiltítulegur að burðum
og lítt ógnandi. Segja má að óvinátta
okkar hafi blómstrað frá því við fyrst
fréttum hvor af öðrum, því alltaf
virtumst við vera að eltast við sömu
hlutina og þvælast fyrir fyrirætlunum
hvor annars. Þetta var sönn óvinátta
því ómengaður illvilji var á milli okkar,
við gerðum hvor öðrum tjón við hvert
tækifæri og falli spáðum.
Ekki nóg með það; vinahópar okkar
sköruðust sáralítið þannig að það
reyndist mjög auðvelt að espa upp
ágæta stemmningu í kringum þessa
óvináttu. Við gátum stöðugt gert okkur
í hugarlund hvers konar bölvanlegt
ráðabrugg væri í uppsiglingu af hálfu
erkióvinarins og hans hyskis og búið
okkur undir það með ennþá djöfullegri
ráðagerðum til gagnsóknar.
Ég ræktaði þessa óvináttu um hríð
af umtalsverðri natni og einlægni, en
smám saman fór þó að halla undan
fæti. Það er nefnilega ýmislegt ólíkt
með hatrinu og ástinni. Ástin á það
nefnilega til að dafna með nándinni,
en fátt er eins hættulegt góðri óvináttu
eins og að kynnast óvini sínum.
Þess vegna er sú grunnregla óvinátt-
unnar þyngdar sinnar virði í brenni-
steini að eiga helst aldrei neitt saman
að sælda með óvini sínum og vinum
hans. Ef maður vill ekki stefna óvinátt-
unni í voða þá þarf að ríkja algjör og
einbeittur aðskilnaður. Það má aldrei
leyfa sér þann grun að nokkur minnsti
vottur af sæmilegum mannkostum
fyrirfinnist í erkióvini.
Þetta vita allir sem starfað hafa í
stjórnmálum þar sem illdeilur, einkum
innan flokka, leiða oft til ævintýralegr-
ar vænisýki þar sem það eitt að deila
Óvinamissir
kaffibolla með einhverjum úr „öðru
liði“ getur leitt til meiriháttar afleiðinga
og jafnvel útskúfunar. Það flækir nefni-
lega tilveruna umtalsvert ef maður
tapar fullvissunni um ómennska illsku
og heimsku andstæðingsins.
„Rosalega fínn gaur“
Það var þess vegna mikið áfall þegar
ég varð vitni að því að einn besti
vinur minn átti í kumpánlegu spjalli
við erkióvin minn. Þessi sami vinur
minn var tekinn til bæna við fyrsta
tækifæri og rukkaður um skýr-
ingar á þessu fáránlega frumhlaupi.
„Heyrðu, mér finnst hann bara alveg
rosalega fínn gaur,“ var þá svarið.
Þetta var einmitt það sem ég vildi ekki
heyra. Eftir á að hyggja var þetta líklega
upphafið að endinum á þessari fyrir-
taksgóðu óvináttu.
Stuttu síðar komst ég ekki sjálfur
hjá því að kynnast erkióvini mínum.
Og viti menn—það kom í ljós að
þetta var alveg rosalega fínn gaur,
eins og mér hafði verið sagt. Með
okkur tókst fljótlega vinátta og fyrr
en varir vorum við farnir að eignast
nýja óvini í sameiningu, eins og ekk-
ert hefði í skorist. Og til að bæta gráu
ofan á svart urðu meira og minna
allir vinir okkar að vinum líka.
Þvílík endemis sóun á því sem hefði
getað verið ævilangur fjandskapur.
O g a u ð vi t a ð h e f ð i e k k-
ert af þessu þurft að gerast.
Ef við hefðum bara passað betur að
kynnast aldrei mannkostum hvor
annars, hugsunum og heimsmynd;
heldur bara hangið hvor í sínu horni
með okkar bjöguðu hugmyndir um
innræti og skapgerð hins—þá værum
við kannski ennþá óvinir í dag.
Þeim sem er annt um hatrið er því
hollast að forðast þessi mistök, ellegar
eiga á hættu að glata óvináttunni en
eignast óvænta og óumbeðna vináttu
í staðinn.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 17F Ö S T u d a g u R 1 7 . n ó v e m B e R 2 0 1 7
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-0
9
E
0
1
E
3
E
-0
8
A
4
1
E
3
E
-0
7
6
8
1
E
3
E
-0
6
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K