Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 28
Ragnheiður
Tryggvadóttir
heida@365.is
Þetta er mín fyrsta eigin lína í rúmlega tíu ár. Nú stíla ég inn á konur sem eru aðeins
mýkri í vexti og hanna flíkur í
stærðunum 40 til 50. Ég hef tekið
eftir því að úrvalið er ekki mikið í
fínni fatnaði í þessum númerum
þó nokkur merki séu að gera góða
hluti í hversdagsfatnaði fyrir
konur. Ég hef lengi horft á þetta
gat á markaðnum. Nú fannst
mér ég vera tilbúin í þetta,“ segir
Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri
og kjólameistari, en hún blæs til
tískusýningar í Oddsson á morgun
klukkan 18.
„Mín reynsla er sú að líkamar
kvenna eru svo misjafnir að það er
varla hægt að setja alla í staðlaðar
stærðir. Línur hverrar og einnar
eiga að fá að njóta sín og ég segi
að allar línur séu fallegar og allar
konur geta verið sexí ef þær eru
rétt klæddar.
Auðvitað er þetta meira krefj-
andi en að hanna á manneskju
með beinar línur. Þetta er ákveðin
skúlptúrvinna en mitt fag er að sér-
sauma á fólk í alls konar stærðum.
Ég starfaði lengi við framleiðslu á
fatnaði hjá Nikita, Cintamani og
Allar línur eru fallegar
Selma Ragnarsdóttir, klæðskeri og kjólameistari, blæs til sýningar í Oddsson á
morgun. Hún sýnir sína fyrstu fatalínu í áratug, spariföt í stærri stærðum.
Selma hannar undir merkinu ZELMA. Nýja línan kallast Z-shapes.
Ágústa Þóra Jónsdóttir.
Ágústa Þóra Jónsdóttir, prjóna-
hönnuður og stofnandi Gústu ehf.,
hönnunar- og prjónafyrirtækis,
flytur erindi í húsnæði Heimilis-
iðnaðarfélagsins, Nethyl 2e, í kvöld
klukkan 20. Aðgangur er ókeypis og
allir velkomnir.
Ágústa fjallar um það ferli að
stofna nýtt fyrirtæki á Íslandi og
hvernig hægt er að þróa vöru og
koma á markað án þess að byggja
eigin verksmiðjur eða framleiðslu-
tæki. Hún er mikil áhugamann-
eskja um umhverfismál og kemur
inn á ábyrgð fyrirtækja á markaði
varðandi efnisval og umhverfið og
áskoranir neytenda og framleiðenda
í fyrirlestri sínum.
Ágústa átti sér þann draum að
búa til íslenskt garn sem er mýkra en
venjulegt lopaband. Árið 2015 fékk
hún tækifæri til þess að þróa þessa
hugmynd og gera hana að veruleika.
Hún stofnaði fyrirtækið Gústa ehf. í
byrjun ársins 2016 og fyrsta varan,
Mosi mjúkull, sem er blanda af
íslenskri ull og alpakkaull frá Perú,
kom á markað í október 2016.
Fyrirlestur
prjónahönnuðar
fyrir þó nokkra íslenska hönnuði
en er að þreifa fyrir mér á öðrum
nótum með þessari fyrstu línu
sem ég kalla Z-shapes og hanna ég
undir merkinu ZELMA. Vonandi
er þetta byrjun á einhverju stærra.
Ég finn að konur eru spenntar fyrir
þessu,“ segir Selma.
„Ég geri sérstaka stíla sem ég
sýni á morgun en gef kost á því að
útfæra sérstaklega eftir óskum.
Eins og er er ég ekki að fara að
fjöldaframleiða og er að vinna
með Slow fashion, umhverfisvæna
nálgun og vinn allt hér á Íslandi. Ég
vil halda í persónuleika hverrar og
einnar konu sem kaupir flíkina.“
Sýningin á morgun verður á af-
slöppuðum og kósí nótum að sögn
Selmu.
„Margrét Eir og Börkur Rafn
verða með tónlistaratriði og þá
hef ég fengið til liðs við mig afar
skemmtilega flóru af módelum,
þekktar konur og flotta karakt-
era þó ég nefni engin nöfn. Þetta
verður skemmtilegur viðburður,
ekki hefðbundin tískusýning á
palli eða flugeldasýning. Þarna
eiga konur að hafa gaman og njóta
kvöldsins. Karlar eru auðvitað vel-
komnir líka til að kaupa eitthvað
fallegt á konurnar sínar. Það eru
allir velkomnir kl. 18 á laugar-
daginn í Oddsson.“
UMI HOTEL | 861 Hvolsvelli | +354 518 4001 | info@umihotel.is | umihotel.is | - - - Tripadvisor
UMI HOTEL
Pantanir sendist á info@umihotel.is eða í síma 518 4001
UMI HÓTEL er nýtt og stórglæsilegt hótel við rætur Eyjafjallajökuls. Frá hótelinu er tilvalið
að skoða margar af náttúruperlum suðurlands og eiga svo góða kvöldstund á UMI HÓTEL.
JÓLAMATSEÐILL
Frá 10. nóvember bjóðum við upp á ljúffengan
fimm rétta jólamatseðil.
9.800 kr. á mann
JÓLADVÖL Á UMI
Fimm rétta jólamatseðill fyrir tvo með gistingu í tveggja
manna herbergi og morgunverðahlaðborði.
39.600 kr.
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
E
-4
F
0
0
1
E
3
E
-4
D
C
4
1
E
3
E
-4
C
8
8
1
E
3
E
-4
B
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K