Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 30

Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 30
Það er stórt skref að takast á við óttann við að fara fram af brúninni. Það er eitthvað sem gerist þegar fæturnir sleppa jörðinni. Starri Freyr Jónsson starri@365.is Sumarið 2012 var Alda Björk Óskarsdóttir stödd á Seyðis­firði þar sem hún sá til svif­ vængjaflugkappa sem svifu yfir bænum og lentu loks í honum miðjum. „Þá var námskeið í gangi og ég vissi um leið að þetta væri eitthvað sem ég yrði að prófa. Tíminn leið en loks lét ég af því verða og sótti námskeið vorið 2016 hjá Fisfélagi Reykjavíkur. Ég flýg helst á sumrin í öruggum aðstæðum og alltaf með reyndara flugfólki þannig að ég telst í hópi þeirra sem eru minnst „extreme“ í sportinu.“ Það er margt sem heillar við svif­ vængjaflugið að sögn Öldu Bjarkar. „Það er stórt skref að takast á við óttann við að fara fram af brúninni. Það er eitthvað sem gerist þegar fæturnir sleppa jörðinni. Síðan verður tilfinningin að fljúga svo raunveruleg og náttúran fær svo fal­ legt sjónarhorn. Það er t.d. geggjað að fljúga yfir Reynisfjall við Vík í Mýrdal og horfa niður í Reynis­ fjöruna og yfir svæðið.“ Hópurinn í kringum svifvængja­ flugið er einnig mjög fjölbreyttur að hennar sögn enda eru meðlimir hans langt yfir meðallagi skemmti­ legir. „Svo má einnig nefna einn kost við íþróttina sem er að hún er hugarsport en ekki kraftasport og því hægt að stunda fram eftir öllum aldri.“ Námskeið nauðsynleg Fisfélag Reykjavíkur heldur nám­ skeið hvert ár sem byrja yfirleitt í maí. „Ég mæli með þeim fyrir þá sem vilja fljúga sjálfir. Þar er farið yfir ýmislegt sem gefur fólki þá þekkingu og viðeigandi æfingu sem er nauðsynleg til fljúga á ábyrgan og öruggan hátt. Fyrir hin sem langar að prófa en eru tvístígandi má prófa svokallað tandem flug hjá sérhæfðum fyrirtækjum en þá stýrir annar meðan farþeginn nýtur útsýnisins.“ Í upphafi þarf engan sérstakan búnað annan en þann sem flestir eiga heima segir Alda Björk, t.d. gönguskó, hjálm, hlý föt og þægi­ lega fingravettlinga. „Hægt er að fá lánaðan væng á námskeiðinu en þá mæli ég með að skrá sig fyrr en seinna þannig að hægt sé að finna væng sem hentar stærð og þyngd nemanda. Fyrir þá sem eru staðráðnir í að fljúga er bæði hægt að kaupa notaðan búnað og nýjan og eru nokkrir aðilar innan svif­ vængjasamfélagsins sem eru með umboð og selja vængi á sanngjörnu verði.“ Hún segir svifvængjaflugið á Íslandi vera að mestu leyti sumar­ sport. „Þó taka þeir allra hörðustu smá flug á veturna. Erfiðleikarnir við vetrarflug koma til af nokkrum þáttum, vindurinn er oft of sterkur, það er kalt og fyrir þá sem stunda langflug er ekki uppstreymi af heitu lofti sem er nauðsynlegt fyrir þann­ ig flug.“ Eigum góða flugmenn Til að viðhalda og bæta flughæfni sína er því nauðsynlegt að fljúga í útlöndum segir Alda Björk. „Bæði er það gert til að ná lengra flugi og æfa flug í sterku uppstreymi en ekki síður til að fara á öryggisnám­ skeið þar sem æfð eru viðbrögð við öllu því sem getur farið úrskeiðis í öruggum aðstæðum.“ Íslendingar eiga nokkra mjög góða flugmenn að sögn Öldu Bjarkar. „Þar ber helst að nefna Hans Kristján Guðmundsson sem er gífurlega öflugur flugmaður og keppti í heimsmeistarakeppni í svifvængjaflugi í sumar. Þar keppti líka Týr Goldsmith sem á íslenska móður en faðir hans, Bruce Gold­ smith, er fyrrverandi heimsmeistari og framleiddi meðal annars vænginn sem ég flýg á. Svo eru margir sem eru að keppa á mótum í Evrópu eins og Ágústa Ýr Sveins­ dóttir sem er líklega að öðrum konum ólöstuðum fremsta konan á Íslandi í keppnisflugi.“ Þótt hún taki því rólega í vetur er stefnan samt sem áður sett á gott flugsumar árið 2018. „Helstu plönin þennan veturinn eru að fylgjast með ævintýrum annarra og sjá hvernig þeim gengur í keppnum. Næsta sumar ætla ég að fljúga eins mikið og veður leyfir á sem fjölbreyttustu stöðum og koma mér út í flug og námskeið í framhaldi af því.“ Tilfinningin svo raunveruleg Svifvængjaflugkappar sjá landið og fallega náttúru þess frá öðru sjónarhorni. Alda Björk Óskars- dóttir sótti námskeið vorið 2016 og ætlar að vera dugleg að prófa fjölbreytta staði næsta sumar. Svifið vestur af Reynisfjalli og horft ofan í Reynisfjöru. Þráinn Sigurðsson er í forgunni en Alda Björk er í bakgrunni. MYND/PATRYCJA PATI MAKOWSKA Alda Björk Óskarsdóttir. MYND/ANTON BRINK JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út þriðjudaginn 28. nóvember. Áhugasamir auglýsendur hafið samband við auglýsingadeild sérblaða í síma 512 5402 Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 7 . N Óv E M B E R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U R 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -4 A 1 0 1 E 3 E -4 8 D 4 1 E 3 E -4 7 9 8 1 E 3 E -4 6 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.