Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 32

Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 32
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 Ferðamenn koma til Íslands allan ársins hring og hefur heimsóknum að vetri til fjölgað umtalsvert. MYND/ANTON BRINK Þegar Helga er spurð fyrir hvað Samtök ferðaþjónustunnar, SAF, standa, svarar hún: „Meginverkefni samtakanna er að gæta sameiginlegra hags- muna félagsmanna sinna, sem eru fyrirtæki í ferðaþjónustu á Íslandi. Markmiðið með stofnun SAF er að ferðaþjónustan tali einni röddu gagnvart stjórnvöldum, fjöl- miðlum og öðrum sem ferðaþjón- ustufyrirtæki skipta við. Stefna SAF í hinum ýmsum málum er unnin á vegum stjórnar og nefnda, en innan samtakanna starfa sjö fag- nefndir. SAF hefur áhrif Starf Helgu og þeirra sem starfa hjá SAF felst fyrst og fremst í því að vinna að því að fyrirtæki í ferða- þjónustu búi við starfsskilyrði sem gera þau samkeppnishæf á alþjóðamarkaði og að heilbrigð samkeppni sé tryggð. „Samstarf og samtal við stjórnvöld, stofn- anir og aðra hagaðila spilar stórt hlutverk. SAF er umsagnaraðili um lagafrumvörp og reglugerðar- tillögur og eiga samtökin fulltrúa í fjölmörgum nefndum, stjórnum og ráðum bæði á vegum opinberra aðila og annarra. Á þann hátt hafa samtökin áhrif á starfsumhverfi fyrirtækjanna,“ útskýrir Helga sem tók við af Ernu Hauksdóttur sem gegnt hafði starfinu í þrjátíu ár. Forveri SAF var SVG (Sam- tök veitinga- og gististaða) sem Erna stýrði áður. Á undan henni var Hólmfríður Árnadóttir framkvæmdastjóri SVG, en hún var fyrsti fastráðni starfsmaður samtakanna. Það má því segja að konur hafi stýrt samtökum ferða- þjónustufyrirtækja frá upphafi. Konur í valdastöðum Helga segir að það séu öflugar konur í ferðaþjónustu rétt eins og á öðrum stöðum í atvinnulífinu. „Það er ekki síður áhugavert að konur skipa allar helstu stöður innan stjórnkerfisins og samtaka sem tengjast ferðaþjónustunni. Framhald af forsíðu ➛ Það er t.a.m. kona starfandi ráð- herra ferðamála, ferðamálastjóri, stjórnarformaður ferðamálaráðs, klasastjóri ferðaklasans, yfirmaður ferðaþjónustunnar hjá Íslands- stofu, yfirmenn á flestum markaðs- stofum landshlutanna og svo ég framkvæmdastjóri SAF. Starfið mitt er í raun síbreyti- legt frá degi til dags. Í grunninn eru verkefnin svipuð frá einum tíma til annars en þeim hefur eðli- lega fjölgað mikið í hröðum vexti greinarinnar síðustu misseri. Um leið og tækifærin eru sannarlega til staðar eru áskoranirnar margar og ólíkar og viðfangsefnin því marg- þætt,“ segir hún. Sameiginlegt átak Helga segist ánægð með mjög margt í ferðaþjónustunni. Fag- mennska og gæði innan greinar- innar hafi aukist. Fyrirtækin hafa fjárfest mikið í innviðum til að bregðast við fjölgun ferðamanna sem hefur skipt sköpum. „Samstarf greinarinnar við stjórnvöld hefur verið gott að mörgu leyti en þau þurfa hins vegar að vera tilbúin að taka ábyrgð á greininni í mun meiri mæli. Það er ekki sjálfsagt að ferðamenn komi til landsins og skilji eftir sig gjaldeyri sem skiptir sköpum fyrir íslenskt þjóðarbú. Stjórnvöld verða að tryggja sam- keppnishæf rekstrarskilyrði, heildarsýn og síðast en ekki síst að láta verkin tala. Það þarf að fjárfesta í ferðaþjónustunni til að tryggja þau tækifæri sem í henni felast til langrar framtíðar. Með sameiginlegu markaðsátaki stjórnvalda og greinarinnar hefur góður árangur náðst í ferða- þjónustu að vetri. Árstíðasveiflan hefur minnkað mikið, sér í lagi á suðvesturhorninu. Enn er þó mikið verk óunnið, til dæmis hvað varðar þau svæði sem hvað fjærst eru höfuðborgarsvæðinu. Áhersla á álagsstýringu þarf einnig að aukast. Ég á hér við álagsstýringu milli árstíða, milli landsvæða sem og innan þeirra,“ segir Helga og bætir við að stjórnvöld þurfi að sýna stórhug og metnað varðandi uppbyggingu á ferðamanna- stöðum. „Taka stórar ákvarðanir til að undirbyggja lífsgæði okkar til langs tíma. Uppbygging á ferða- mannastöðum í eigu ríkisins er hluti af þeirri innviðauppbygg- ingu sem verður að eiga sér stað. Þannig er sjálfbærni staðanna tryggð til komandi kynslóða sem og upplifun gesta okkar. Gleymum því ekki að rúmlega 80% af þeim ferðamönnum sem sækja okkur heim vilja njóta okkar einstöku náttúru. Í náttúrunni felast gífurleg verðmæti sem okkur ber að varð- veita fyrir komandi kynslóðir á sama tíma og við nýtum hana okkur til hagsældar með sjálf- bærum hætti. Jákvæðni og elja Ég hef þær væntingar að á næstu árum verði búið að búa svo um hnútana að sjálfbærni greinarinnar sé tryggð til langrar framtíðar, hvort sem horft sé til efnahags- legrar sjálfbærni, náttúrulegrar eða félagslegrar. Það er að mínu mati lykillinn að því að geta nýtt þau gífurlegu tækifæri sem í greininni felast fyrir íslenskt þjóðarbú. Samkeppnishæfur áfangastaður sem jafnframt er gott að búa í er leiðarstefið.“ Þegar Helga er spurð hvað sé skemmtilegast við starfið, svarar hún: „Þetta er bara almennt mjög skemmtilegt starf, fjölbreytt og krefjandi sem byggir á samskiptum við öflugt fólk á öllum sviðum. Krafturinn í þeim sem starfa í greininni er gríðarlegur og maður getur ekki annað en smitast af jákvæðninni og eljunni sem ein- kennir þessa aðila við oft mjög krefjandi og erfiðar aðstæður.“ Sérðu þig í þessu starfi næstu þrjá- tíu árin? „Væntanlega verð ég löngu komin á eftirlaun eftir þrjátíu ár, eins furðulegt og það nú hljómar, og farin í auknum mæli að ferðast um landið og njóta þeirrar inn- viðauppbyggingar sem átt hefur sér stað á þeim tíma.“ Helga segir að það sé áhugavert að konur skipa allar helstu stöður innan stjórnkerfisins og samtaka sem tengjast ferðaþjónustunni. Elín Albertsdóttir elin@365.is VERÐ FRÁ 299.900 KR. Verð á mann m.v. 2 fullorðna. Beint flug með Icelandair. NÁNAR Á UU.IS 3.–10. FEBRÚAR KÚBA HAVANA & VARADERO 2 KYNNINGARBLAÐ 1 7 . N óV e M B e R 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RKONuR Í FeRÐAþJóNuSTu 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -3 6 5 0 1 E 3 E -3 5 1 4 1 E 3 E -3 3 D 8 1 E 3 E -3 2 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.