Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 17.11.2017, Blaðsíða 39
Guðrún hefur unnið í fjölskyldufyrirtækinu Gray Line síðan hún var 18 ára, í alls 18 ár. Systir hennar, Bryndís Eir Þórisdóttir, vinnur sem bílstjóri hjá fyrirtækinu. MYND/LAUFEY Ég er dóttir annars eigandans og hef unnið með fjöl-skyldunni að uppbyggingu fyrirtækisins í nær átján ár. Ég hef markaðsmálin á minni könnu og sé um að stýra vörumerkinu Gray Line markaðslega, vörulega og útlitslega séð. Í mínum verkahring er að ákveða hvert við stefnum, hvar við eigum að sækja á, hvar við auglýsum og hvernig. Þetta er mjög fjölbreytt svið. Ég sit í stjórn Gray Line á Íslandi og einnig í stjórn Gray Line Worldwide. Til að hafa örugglega nóg að gera skellti mér í MBA-nám við Háskólann í Reykjavík núna í haust,“ segir Guðrún Þórisdóttir brosandi. Hún segir það vissulega hafa haft áhrif á störf sín að faðir hennar sé einn eiganda Gray Line. „Sérstaklega fyrst. Mér fannst ég þurfa að standa mig betur en aðrir og vildi sýna að ég hefði ekki fengið vinnuna bara út á að vera dóttir eins eigandans. Ég hef alltaf lagt mikið á mig og geri enn.“ Ör vöxtur Gray Line er vaxandi ferðaþjón- ustufyrirtæki sem býður upp á dagsferðir og norðurljósaferðir út frá Reykjavík og er með flugrútu á milli Keflavíkur og Reykjavíkur í rekstri. Fyrirtækið er aðili að Gray Line Worldwide sem er stærsta skoðunarferðafyrirtæki í heimi. „Þegar ég byrjaði að vinna hjá Gray Line á sínum tíma unnu þrjá- tíu manns hjá fyrirtækinu, nær eingöngu karlmenn. Núna vinnur fjöldi kvenna hjá fyrirtækinu; hvort sem er á skrifstofunni, við að keyra rúturnar eða við leið- sögn. Við systkinin vinnum öll hjá Gray Line og yngri systir mín er ein af bílstjórunum,“ segir Guðrún og bætir við að það sé skemmti- legt en jafnframt krefjandi að vinna með fjölskyldunni sinni. „Það tók okkur nokkur ár að læra að verða samstarfsmenn og við leggjum mikið upp úr góðu and- rúmslofti innan Gray Line,“ segir hún. En talið þið um eitthvað annað en vinnuna þegar þið hittist? „Nei. Ekkert annað,“ segir Guðrún hlæjandi. Tengslanet og tækni Mesta breytingin á starfsemi Gray Line varð árið 2005 þegar fyrir- tækið gerðist aðili að Gray Line Worldwide, að sögn Guðrúnar. „Við það fengum við aðgang að gríðarlega góðu tengslaneti og tækni sem var að ryðja sér til rúms, eins og að selja ferðir á netinu. Nafnið er alþjóðlegt og vel þekkt um allan heim og það hjálpar líka til. Frá 2005-2015 varð 1.500% fjölgun á farþegum hjá okkur og þegar við tölum um þetta við kollega okkar hjá erlendum fyrirtækjum trúa þeir varla þessum tölum. Við byrjuð- um að selja norðurljósaferðir fyrir 15 árum og þóttum alveg galin á þeim tíma. Við vorum spurð hvort fólk hefði virkilega áhuga á að fara út í myrkrið að horfa á norðurljós en við héldum okkar striki. Núna kemur fólk gagngert til Íslands til að sjá norðurljósin og þetta eru vinsælustu vetrarferðirnar okkar.“ Guðrún nefnir að frá alda- mótum hafi verið ákveðið að fjárfesta í nýjum rútum og Gray Line er með einn yngsta bílaflota landsins. „Við leggjum mikið upp úr því að vera með nýja bíla á okkar vegum og halda meðalaldri flotans undir þremur árum. Um borð í rútunum er þráðlaust net og við fylgjumst vel með tækni- nýjungum og hvernig við getum náð til farþega og boðið þeim betri þjónustu.“ Alþjóðleg samtök Undanfarin fjögur ár hefur Guðrún setið í stjórn Gray Line Worldwide en í stjórninni sitja 18 manns, þar af þrjár konur. Níutíu og átta fyrirtæki um allan heim eru í samtökunum og segir Guðrún að árlega berist fjöldi umsókna um aðild. Hún er lang- yngst þeirra sem í stjórninni eru og segir að kynslóðaskipti séu fram undan og gaman sé að taka þátt í þeim. „Þetta er vinnustjórn sem vinnur náið með forstjóra samtakanna að mörgum málum. Í okkar verkahring er meðal annars að fara yfir ný leyfi, markaðsmál og tæknimál. Á hverju ári eru margir tilnefndir til stjórnarsetu og það er alls ekki sjálfgefið að komast í stjórnina. Mér finnst mjög gaman að vera hluti af þessu og læri heilmikið af því og get vonandi lagt eitthvað til líka.“ Spurð hvort hún hafi tíma fyrir áhugamál segist Guðrún hafa yndi af því að ferðast innanlands sem utan og hún njóti þess að verja tíma með fimm ára dóttur sinni og fjölskyldunni allri. „Ég á mér marga uppáhaldsstaði á Íslandi en mér finnst Jökulsárlónið alltaf jafnmagnað. Það er eitthvað við þann stað sem heillar mig í hvert sinn sem ég kem þangað.“ En hvað er fram undan hjá Guð- rúnu og Gray Line? „Ég ætla að ljúka MBA-náminu til að styrkja mig enn betur í starfi og fyrir- tækið nýtur að sjálfsögðu góðs af því. Mér finnst alltaf jafngaman í vinnunni þótt hún snúist um það sama: Að selja Ísland. Ég segi oft að ég sé heppin að búa hér á landi því veðurfarið og náttúran eru síbreytileg. Við hjá Gray Line erum bjartsýn og sjáum fram á spennandi verkefni í framtíðinni.“ Skemmtilegt en krefjandi að vinna með fjölskyldunni Guðrún Þórisdóttir var aðeins átján ára þegar hún hóf störf hjá fjölskyldufyrirtækinu Gray Line. Hún byrjaði á skrifstofunni, vann sig upp í starf sölustjóra og er nú vörumerkjastjóri fyrirtækisins og situr í stjórn þess. Þegar ég byrjaði að vinna hjá Gray Line á sínum tíma unnu þrjátíu manns hjá fyrir- tækinu, nær eingöngu karlmenn. Núna vinnur fjöldi kvenna hjá fyrir- tækinu; hvort sem er á skrifstofunni, við að keyra rúturnar eða við leiðsögn. Við systkinin vinnum öll hjá Gray Line og yngri systir mín er ein af bílstjórunum. Guðrún Þórisdóttir KYNNINGARBLAÐ 9 F Ö S T U DAG U R 1 7 . n óv e m b e r 2 0 1 7 KoNUR í FERÐAÞjóNUSTU 1 7 -1 1 -2 0 1 7 0 4 :4 9 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 3 E -2 2 9 0 1 E 3 E -2 1 5 4 1 E 3 E -2 0 1 8 1 E 3 E -1 E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 1 6 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.