Fréttablaðið - 17.11.2017, Page 41
Fosshótel Jökulsárlón hlaut nýlega Vakann, sem er gæðakerfi stýrt af Ferða-
málastofu. MYND/UNNUr ArNArsDóttir
Kolbrún Jónsdóttir, fram-kvæmdastjóri fjármálasviðs Íslandshótela, á að baki
langan og farsælan feril í íslensku
viðskiptalífi. Hún starfaði sem
fjármálastjóri Húsasmiðjunnar á
vaxtarárum félagsins og í ýmsum
stjórnunarstöðum hjá Íslands-
banka auk þess að sitja síðar í
stjórn bankans. Síðar varð Kolbrún
framkvæmdastjóri fjármálasviðs
hjá VÍS og svo framkvæmdastjóri
fjárfestingasjóðsins Kjölfestu. Að
auki hefur hún setið í stjórn Húsa-
smiðjunnar, Fastus, Senu og unnið
að fjölmörgum verkefnum, félags-
og stjórnunarstörfum.
Öflugt félag
Kolbrún settist í stjórn Íslands-
hótela árið 2015 en hóf störf sem
framkvæmdastjóri fjármálasviðs í
desember 2016. Fyrsta árið hefur
verið bæði viðburðaríkt og spenn-
andi að hennar sögn. Gríðar-
legur vöxtur hefur einkennt rekstur
Íslandshótela undanfarin ár, sem
á og rekur 18 hótel með um 1.800
gistirými út um allt land auk funda-
og ráðstefnu aðstöðu. „Íslandshótel
eru annar stærsti hótelrekstraraðili
landsins og eiga 16 af þeim 18 fast-
eignum sem í dag hýsa hótelrekstur-
inn, auk frekari þróunarverkefna
á sviði hótelbygginga um land allt.
Félagið er því gríðarlega öflugt bæði
í hótel- og fasteignarekstri. Heildar-
tekjur félagsins námu tæpum 10 ma.
kr. árið 2016 og EBITDA var um 3
ma. kr. Heildareignir félagsins námu
rúmlega 31 ma. kr. í árslok 2016 og
lætur nærri að starfsemi okkar rúm-
ist á um 100 þúsund fermetrum,“
segir Kolbrún. Hjá félaginu starfa allt
að 1.100 manns þegar mest lætur og
er 51 prósent stjórnenda hjá Íslands-
hótelum konur.
Undir merkjum Íslandshótela
eru öll Fosshótelin, Grand Hótel
Reykjavík og Hótel Reykjavík
Centrum. „Íslandshótel rekur
stærsta hótel landsins, Fosshótel
Reykjavík með 320 herbergi og öll
þekkjum við Grand Hótel sem er
eitt stærsta ráðstefnuhótel landsins.
Við leggjum áherslu á að vera með
hótel hringinn í kringum Ísland og
er nýjasta hótelið Fosshótel Mývatn,
sem var opnað í sumar. Það er
gaman að fylgjast með því hversu
vel hefur tekist til með mörg af þeim
hótelum sem við erum með á lands-
byggðinni. Mörg af hótelum okkar
eru einstaklega vel hönnuð, falla
vel inn í landslagið og bjóða upp á
fyrsta flokks þjónustu og einstaka
upplifun.“
stolt af ferðaþjónustunni
Félagið var stofnað árið 1969 og er
því rekstrarsaga þess orðin löng
segir Kolbrún. „Þekking og reynsla
eigenda og stjórnenda er því mikil-
væg auðlind. Stjórnendur þekkja því
ekki aðeins þá uppsveiflu sem verið
hefur síðustu ár heldur einnig það
uppbyggingarstarf sem eigendur og
frumkvöðlar lögðu grunninn að.“
Samhliða vexti félagsins á síðustu
árum hefur verið ráðist í mikla inn-
viðauppbyggingu að sögn Kolbrún-
ar. „Skipulag hefur verið aðlagað
að ört vaxandi atvinnugrein og
rekstri, ráðið hefur verið í stöður
framkvæmdastjóra fjármála- og
starfsmannasviðs og rekstrarstjóra
hótelanna.
Ferðamönnum er enn að fjölga og
gert er ráð fyrir að þeir verði um 2,5
milljónir á árinu 2018. Allt frá Eyja-
fjallagosinu 2010 hefur gistinóttum
fjölgað ár frá ári. Þær voru 3,8 millj-
ónir árið 2016 en 1,3 milljónir árið
2010 og hefur því fjölgaði síðan þá
um 192%. Ferðaþjónustan skilar nú
um 45% af útflutningstekjum lands-
ins og hefur á síðustu árum verið
stærsta útflutningsgrein okkar. Við
sem störfum í þessari grein getum
því verið stolt af vexti og viðgangi
greinarinnar.“
Umhverfismálin mikilvæg
Íslandshótel vinna að því markmiði
að lágmarka umhverfisáhrif starf-
seminnar eins og kostur er og segir
Kolbrún að í öllu starfi félagsins sé
lögð áhersla á umhverfisvernd. „Við
viljum vera í fararbroddi á þessu
sviði og ætlum okkur að halda
áfram á okkar góðu vegferð.“
Nýlega hlaut Fosshótel Jökulsár-
lón Vakann sem er gæðakerfi stýrt
af Ferðamálastofu. Markmið Vakans
er að stuðla að góðri og ábyrgri
ferðaþjónusta á Íslandi sem og
sjálfbærum atvinnurekstri. „Foss-
hótel Jökulsárlón flaggar með stolti
fjórum viðurkenndum stjörnum
svo og bronsmerki í umhverfishlut-
anum. Þar með eru sjö hótel undir
hatti Íslandshótela komin með
stjörnuflokkun Vakans. Auk þess
eru veitingastaðirnir Haust, Bjór-
garðurinn og Grand Restaurant allir
með gæðaviðurkenningu Vakans.“
Fosshótel Jökulsárlón er glæsi-
legt fjögurra stjörnu hótel sem
var opnað í júní 2016 við rætur
Öræfajökuls, á milli Skaftafells og
Jökulsárlóns þar sem má finna eitt
vinsælasta klifursvæði landsins.
„Á Fosshótel Jökulsárlóni má
finna einstaka innanhúshönnun og
fallegan arkitektúr en hótelið er allt
byggt úr náttúrulegum efnum auk
þess sem öll hreinsiefni og snyrti-
vörur á herbergjum eru umhverfis-
væn og vottuð. Hótelið býður upp á
104 herbergi í fimm flokkum ásamt
bar og stórglæsilegu veitingahúsi.
Sama má segja um hótelið á Mývatni
sem er byggt úr náttúrulegum efnum
og með þriggja þrepa skólphreinsi-
stöð sem er það fullkomnasta sem
völ er á. Auk þess er Grand Hótel
Reykjavík eitt fárra hótela á Íslandi
sem hefur fengið Svansvottun.“
Ört vaxandi atvinnugrein
Kolbrún hlakkar til að takast á
við ný og spennandi verkefni hjá
Íslandshótelum á næstu árum.
„Eins og allir þekkja er ferða-
þjónustan ört vaxandi atvinnugrein
og á örskömmum tíma hefur hún
orðið meginstoð í íslensku atvinnu-
lífi. Íslandshótel er eitt af stærstu
félögum í þessari atvinnugrein hér-
lendis það er því ánægjulegt að fá að
taka þátt í áframhaldandi uppbygg-
ingu hjá félaginu með því frábæra
starfsfólki sem þar starfar.“
KYNNiNGArBLAÐ 11 F Ö s t U DAG U r 1 7 . n óv e m b e r 2 0 1 7 KoNUr í FerÐAþJóNUstU
Kolbrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs íslandshótela. MYND/siGUrJóN rAGNAr
Fosshótel við Mývatn býður upp á frábært útsýni. MYND/tAKi BiBeLAs
spennandi tímar
fram undan
mikill vöxtur hefur einkennt rekstur Íslandshótela undan-
farin ár. Félagið á og rekur 18 hótel víða um land. Fram
undan eru spennandi verkefni í vaxandi atvinnugrein.
Fosshótel reykjavík er stærsta hótel
landsins. MYND/tAKi BiBeLAs
Grand Hótel reykjavík er stærsta ráðstefnuhótel landsins. MYND/tAKi BiBeLAs
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
3
E
-3
6
5
0
1
E
3
E
-3
5
1
4
1
E
3
E
-3
3
D
8
1
E
3
E
-3
2
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K