Fréttablaðið - 17.11.2017, Síða 58
Bókaflóðið brast á snögg-lega þetta árið. Vegna mikilla tafa í prentun erlendis komu nýju bækurnar með seinni skipunum í orðsins
fyllstu merkingu,“ segir Bryndís
Loftsdóttir, starfsmaður Félags
íslenskra bókaútgefenda, í léttum
tón. Hún er að undirbúa bókamessu
í sjöunda sinn – og í annað sinn í
Hörpu – nú um helgina, frá 11 til 17
báða dagana. „Vel flestar bækurnar
verða komnar,“ lofar hún. „Fólk er
á handahlaupum niðri við höfn að
moka þeim í land!“
Bryndís segir bókamessuna minna
á þær sem haldnar eru í Gauta-
borg, Frankfurt og London, nema
smærri í sniðum. „Útgefendur selja
bækurnar á góðu verði og höfundar
þeirra aðstoða við afgreiðslu og gefa
persónulegar áritanir. Við leggjum
undir okkur salina á jarðhæð Hörpu,
þar verður samfelld lifandi dagskrá,
samræður við höfunda, upplestrar,
myndasýningar og tónlistarflutn-
ingur. Það verður kafað ofan í bæk-
urnar, þær liggja ekki bara flatar á
borðunum. Við eigum svo gott fólk
sem stýrir umræðum og öðru slíku,
bókmenntafræðinga og þaulvant
fjölmiðlafólk.“
Hlín Pétursdóttir Behrens sópran, Hólmfríður Jóhann-esdóttir mezzósópran og
Julian Hewlett píanóleikari flytja
sönglög og dúetta eftir Johannes
Brahms í Laugarneskirkju á sunnu-
daginn klukkan 17.
Meðal þess sem flutt verður eru
Sígaunaljóð op. 103, rómantískar
perlur eins og Mainacht og Von
ewiger Liebe en líka smámyndir þar
sem tónskáldið kemur sínu til skila
á áhrifaríkan og beinskeyttan hátt,
að sögn Hlínar sem segir hugmynd-
ina að tónleikunum hafa komið
frá Hólmfríði. „Við höfum sungið
saman sem dúett áður og nú eftir
dálítið hlé ákváðum við að taka upp
þráðinn aftur og hafa heildstæða
tónleika þar sem við hylltum eitt
tónskáld. Brahms varð fyrir valinu.
Hann bjó til svo fallega dúetta og
svo syngjum við nokkra sem hann
samdi sem einsöngslög en Hermann
Zilcher raddsetti sem dúetta.“
Hlín kennir við Tónlistarskólann í
Reykjavík sem heitir núna Mennta-
skólinn í tónlist eftir að hann sam-
einaðist FÍH, auk þess sem hún er
stundakennari í Listaháskólanum.
Hún á þýskar rætur því faðir hennar
er Þjóðverji. Í Þýskalandi var hún
við nám og um tíma fastráðin við
óperu. Hólmfríður stundaði söng-
nám í Vín þannig að tenging þeirra
beggja við ljóðahefðina er sterk.
Brahms vann á sinn einstaka
máta úr viðfangsefnum rómantíkur-
innar innan hinnar þýsku sönglaga-
hefðar, að sögn Hlínar. „Hann skilur
okkur eftir með sorgina, gleðina eða
þrána eina saman, vekur mun fleiri
spurningar en við höfum svör við og
náttúran, tónlistin og óvissan sem
fylgir ástinni seiða okkur til sín.“
Hressing er í boði að tónleikum
þeirra loknum. Miðaverð er 2.500
krónur, ekki er posi á staðnum.
Bryndís segir salina í Hörpu henta
vel til upplestra enda hljóðvistin
góð í allri byggingunni. Hún getur
sérstaklega ljóðadagskrár á sunnu-
dag þar sem fimmtán höfundar lesa
upp úr bókum sínum. „Það verður
mjög góð stund að eiga,“ segir hún
og gaman verði að sjá hverju útgef-
endur og höfundar finni upp á í
sameiningu. „Meðal annars gefa mat-
reiðslubókahöfundar æt sýnishorn
og eitthvað hliðstætt er uppi á ten-
ingnum hjá prjónabókahöfundum.“
Svo er það barnahornið. „Við
byrjuðum á því í fyrra að búa til
það sem við kölluðum undraland
bókanna. Þar eru staflar af nýjum
barna- og unglingabókum og
krökkum gefst kostur á að setjast
niður og lesa meðan eldra fólkið
nýtur dagskrárinnar að öðru leyti.
Það féll í feikigóðan jarðveg síðast.
Suma var hreinlega erfitt að draga
í burtu því þeir voru komnir á kaf
í góða sögu. Auk þess verður jóla-
kortagerð, skrímslagerð, ratleikur,
tilfinningasmiðja og auðvitað upp-
lestur úr barnabókum.“ Á vefnum
bokmenntaborgin@reykjavik.is má
sjá dagskrána í heild sinni.
BRÉF OG FRÁSAGNIR
ÍSLENSKRA PILTA
Í VÍTI HEIMSSTYRJALDAR
MAMMA, ÉG ER Á LÍFI
Jakob Þór Kristjánsson
Þeir gengu glaðir
í kandadíska herinn
haustið 1914
til að þjóna sínu
nýja föðurlandi
en áttu eftir að upplifa
hreint helvíti.
Illugi Jökulsson
ÖRLAGASÖGUR FRÁ HAFINU
Í SÍÐARI HEIMSSTYRJÖLD
Suma var erfitt að
draga í burtu
Bækur munu flæða yfir Flóann á jarðhæð
Hörpu um helgina er árleg bókamessa fer
þar fram. Bryndís Loftsdóttir veit meira.
Brahms bjó til fallega dúetta
Julian, Hólmfríður og Hlín ætla að skapa rómantíska stemningu í Laugarneskirkju. Mynd/SebaStian Storgaard
„Þetta er eiginlega bókahríð,“ segir bryndís hlæjandi þar sem hún stendur í ströngu. FréttabLaðið/anton brink
MeðaL annars geFa
MatreiðsLuBóka-
HöFundar æt sýnisHorn og
eittHvað HLiðstætt er uppi
á teningnuM Hjá prjóna-
BókaHöFunduM.
Hann skiLur okkur
eFtir Með sorgina,
gLeðina eða þrána eina
saMan, vekur Mun FLeiri
spurningar en við HöFuM
svör við og náttúran,
tónListin og óvissan seM
FyLgir ástinni seiða okkur
tiL sín.
Gunnþóra
Gunnarsdóttir
gun@frettabladid.is
1 7 . n ó v e m b e r 2 0 1 7 F Ö S T U D A G U r34 m e n n i n G ∙ F r É T T A b L A ð i ð
menning
1
7
-1
1
-2
0
1
7
0
4
:4
9
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
3
E
-1
D
A
0
1
E
3
E
-1
C
6
4
1
E
3
E
-1
B
2
8
1
E
3
E
-1
9
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
1
6
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K