Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Fjölskyldan í sólina Bókaðu snemma fyrir sumarið 2017 Allt að 25.000 kr. afsláttur á mann. Sjá nánar á VITA.IS VITA | Skógarhlíð 12 | Sími 570 4444 | VITA.IS Verkbann sett á í gærkvöldi  Formaður VM óttast að sett verði lög á verkfallið og gerðardómur taki við Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Staðan í sjómannadeilunni er mjög tvísýn en næsti sáttafundur er boð- aður á mánudaginn, á fertugasta degi verkfalls sjómanna. Deilendur líta svo á að fljótlega í næstu viku muni skýrast hvort sér fyrir endann á deilunni eða verkfall sjómanna geti dregist á langinn, jafnvel fram eftir næsta mánuði. Í gærkvöldi tók gildi verkbann sem Samtök fyrirtækja í sjávarút- vegi settu á sjómenn og á vélstjóra í VM. Það mun hafa mikil áhrif að sögn Guðmundar Þ. Ragnarssonar, formanns VM. Vélstjórar eru ekki í verkfalli eins og sjómenn, þar sem boðuðu verkfalli VM var aflýst þeg- ar skrifað var undir kjarasamn- ing sem var síðan hafnað í atkvæða- greiðslu. VM fór fram á að verkbanninu yrði frestað en SFS hélt sig við þá ákvörðun að setja það á. Sjómenn hafa komið saman á félagsfundum eftir að hlé var gert á viðræðum og hefur verið þungt hljóð í mönnum skv. upplýsingum Morgunblaðsins. „Báðir aðilar eru með þungar kröfur og tíminn vinnur ekki með okkur í þessu,“ segir Guðmundur í samtali við Morgunblaðið. Á félags- fundi VM í fyrrakvöld sagði hann stöðuna í viðræðunum vera tvísýna og harða. Hún væri „stál í stál“. Margt gott hefði verið í samn- ingnum sem var felldur og nú hefði náðst að semja um viðbót við hann, um frítt fæði, vinnuföt og um fjar- skipti. Eftir væri að ræða ýmislegt, t.d. um breytt olíuviðmið og kröfur útgerðarinnar, þátttöku í iðgjöldum slysatryggingar og breytingar á helgar- og hafnarfríum svo eitthvað sé nefnt. Guðmundur óttast að ekki takist að semja og að deilan fari hugsan- lega fyrir gerðardóm ef sett verða lög á deiluna. Í samantekt VM um félagsfundinn segir að ef svo fari sé það hættuspil fyrir sjómenn því dómurinn muni ekki einungis meta kröfur sjómanna, heldur einnig kröfur útgerðarinnar. ,,Verkbannið breytir alveg okkar stöðu og að- komu að þessum samningi,“ segir Guðmundur þar sem ef lög yrðu sett á deiluna gætu vélstjórar hugsan- lega fallið undir úrskurð gerðar- dóms. Nálgast lengd verkfallsins 2001 Ef verkfallið stendur út næstu viku er það orðið jafn langt sjó- mannaverkfallinu árið 2001 eða sex vikur. Guðmundur óttast að ef fund- urinn á mánudaginn fer illa sé laga- setning yfirvofandi og ,,að þá verði farið að þurrka rykið af einhverju á einhverju ráðuneytisborðinu“. Sáttafundurinn á mánudag er boðaður kl. 13. Guðmundur Þ. Ragnarsson Jón Þórisson jonth@mbl.is Á fundi Faxaflóahafna í gær varð niðurstaðan sú að Silicor Materials fær lokafrest til septembermánaðar til að standa skil á gjöldum vegna hafnarsamnings, lóðaleigusamnings og lóðagjaldasamnings um fyrirhug- aða aðstöðu fyrirtækisins við Grund- artanga í Hvalfirði. Geri viðvart verði hætt við Meðal skilyrða sem sett voru af hálfu stjórnar Faxaflóahafna fyrir lokafrestinum er að haft verði sam- ráð við atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneyti og fjármálaráðuneyti vegna fjárfestingarsamnings Silicor og ríkisins um frágang málsins þannig að veittur lokafrestur rúmist innan ákvæða þess samnings. Jafn- framt verði ekki af hálfu Faxaflóa- hafna hafnar neinar framkvæmdir sem efni samninganna lýtur að, á meðan unnið er að fjármögnun verk- efnisins og samningar aðila hafa ekki tekið gildi. Þá er áskilið að Silicor Materials upplýsi um gang viðræðna þess við fjárfesta og geri grein fyrir eins fljótt og kostur er hvort af verk- efninu verði eða ekki. Stjórn Faxaflóahafna hefur veitt sambærilegan frest áður en ekki hef- ur verið um lokafrest að ræða fyrr en nú. Í upphaflegum samningum var ráðgert að greiðsla Silicor Materials, sem er nálægt 100 milljónum króna, færi fram 1. apríl 2016. Fjórir stjórn- armenn Faxaflóahafna greiddu at- kvæði með þessari niðurstöðu en fjórir sátu hjá. Silicor Materials fær loka- frest fram í september  Enn frestast 100 milljóna króna greiðsla á lóðagjöldum Grundartangi Svæðið þar sem ráð- gert er að verksmiðja Silicor rísi. Brúni hundamítillinn greindist ný- lega á hundi sem komið var með á Dýraspítalann í Víðidal. Þetta kem- ur fram í tilkynningu frá Matvæla- stofnun (MAST). Mítillinn hefur að- eins örsjaldan áður greinst hér á landi. Bendir MAST hundaeig- endum á að vera vakandi fyrir þess- ari óværu og að hafa samband við dýralækni verði hennar vart. Í til- kynningunni segir að mikilvægt sé að forðast að mítlar berist til lands- ins með fólki eða farangri. Matvælastofnun hafði þegar sam- band við eiganda hundsins sem mít- illinn fannst á og kannaði tengsl við önnur gæludýr. Í framhaldinu var haft samband við eigendur þeirra gæludýra. Þrátt fyrir þetta er ekki upplýst hvernig hundamítillinn barst á þennan hund. Fram kemur að þessi tegund mít- ils hafi aðeins fundist fimm sinnum áður á hundum hérlendis og þrisvar á innfluttum hundum í einangrunar- stöð. Brúni hundamítillinn er ólíkur öðrum mítlum að því leyti að hann getur farið í gegnum öll þroskastig og alið allan sinn aldur innanhúss. Fullorðnir hundamítlar nærast helst á blóði úr hundum en geta líka farið á önnur dýr og menn. Eins sé með þessa óværu og ýmis smitefni sem eru algeng erlendis að þau geti bor- ist til landsins með fólki og farangri þess, sér í lagi því sem hefur verið í snertingu við dýr. Fólk sé því áminnt um að gæta smitvarna og reyna eins og kostur er að bera ekki smitefni með sér til landsins. Bendir MAST á að það sé best gert með því að þvo allan fatnað og annað sem hefur verið í snertingu við dýr, hreinsa öll óhreinindi af skóm, þvo þá, þurrka og sótthreinsa. Hundamít- ill finnst hérlendis  Hundaeigendur verði á varðbergi Hundamítill Óværa sem fannst ný- lega hérlendis á hundi. Í dag er mánuður liðinn frá vetrarsólstöðum sem bar upp á 21. desember síðastliðinn sem af þeim sökum bar þann vafasama heiður að teljast stysti dagur ársins. Daginn hefur lengt frá þeim degi, hægt í fyrstu, eða 11 sekúndur fyrsta daginn. Jafnt og þétt lengir daginn hraðar og þennan mánuð hefur hann lengt um 143 mínútur eða um tvær og hálfa klukkustund. Daginn mun lengja allt til 21. júní næstkomandi en í kjölfarið taka dag- arnir aftur að styttast. Mánuður frá því að daginn tók að lengja á ný Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.