Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 48
LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 21. DAGUR ÁRSINS 2017 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 888 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. Sáu númerið og lögðu hald á bílinn 2. Sjást á svipuðu svæði og Birna í bænum 3. Mennirnir eru á þrítugsaldri 4. Ferðir bílsins raktar  Nína Dögg Filippusdóttir leikkona var í gær útnefnd bæjarlistamaður Seltjarnarness 2017. Við athöfnina tilkynnti hún að hún hygðist gefa verðlaunaféð, eina milljón króna, til eflingar skapandi starfi ungmenna á Seltjarnarnesi með áherslu á sviðs- listir. Einnig hyggst hún leggja bæj- arfélaginu lið í menningarlífi þess. Morgunblaðið/Kristinn Útnefnd bæjarlista- maður Seltjarnarness  Jónas Sig. og hljómsveit hans Ritvélar framtíð- arinnar halda tón- leika á Græna hattinum á Akur- eyri í kvöld kl. 20. Nýverið kom út plata sem inni- heldur öll vinsæl- ustu lög Jónasar ásamt lifandi upp- tökum og áður óútgefnu efni. Jónas og félagar leika á Græna hattinum  Ljóðadjasstónleikar verða haldnir í Hannesarholti, Grundarstíg 10, í dag kl. 16. Kvartett saxófónleik- arans Sigurðar Flosasonar og söng- konan Kristjana Stefánsdóttir koma fram og flytja úrval sönglaga Sig- urðar við texta Aðalsteins Ásbergs Sigurðssonar, sem komið hafa út á plötunum Hvar er tunglið? og Í nóttinni. Kristjana Stefánsdóttir syngur, Sigurður Flosason leikur á saxófón, Ey- þór Gunnarsson á píanó, Þorgrímur Jónsson á kontra- bassa og Einar Scheving á trommur. Flytja ljóðadjass FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðvestan 5-13 m/s eftir hádegi með skúrum eða éljum og kólnar smám saman en áfram úrkomulítið um landið norðaustanvert. Á sunnudag Suðvestan 5-10 og stöku él, en bjartviðri austanlands. Hiti kringum frost- mark en 0 til 4 stig suðvestantil. Vaxandi suðaustanátt með hlýindum og rigningu vest- ast á landinu seint um kvöldið en slyddu til fjalla. Á mánudag Sunnan 8-15 m/s og tals- verð rigning, einkum sunnanlands, en úrkomulítið norðaustantil. Hiti víða 4 til 8 stig. „Það er á slíkum tímum sem íþróttir geta skil- að hlutverki afþreyingar fyrir marga, því þær geta hjálpað okkur að gleyma reiðinni og binda samkennd okkar. Þegar allt virðist vera að fara í hundana og svartsýnin tekur yfir tíð- arandann getur leikmaður eða lið allt í einu beint athygli okkar frá eymdinni og átökun- um, þótt ekki sé nema í skamman tíma,“ skrifar Gunnar Valgeirsson í viðhorfsgrein í tilefni af valdatöku Donalds Trumps. » 4 Íþróttir hjálpa okkur að gleyma reiðinni „Við ætlum að taka næsta ár hérna. Okkur líður vel og tókum því þessa ákvörðun með fleiri þætti í huga en einungis fótboltann. Ég mun því taka slaginn með Start en svo kemur í ljós hvað gerist þegar samn- ingurinn rennur út,“ segir knattspyrnumaðurinn Guð- mundur Kristjánsson sem féll með liði Start úr norsku úrvalsdeildinni í haust. »4 Áfram með Start þrátt fyrir fall Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Helgi Tómasson, frægasti ballett- dansari Íslendinga, hóf ballettnám fimm ára, en eins og í mörgum list- greinum er almennt aldrei of seint að æfa ballett. Silfursvanirnir í Ballett- skóla Eddu Scheving bera þess merki. Brynja Scheving, skólastjóri skól- ans, ákvað að bjóða upp á námskeið fyrir 65 ára og eldri í haust og er með tvo hópa nú eftir áramót. Hún segir að ballett fyrir fullorðna hafi alltaf notið mikilla vinsælda og sú ný- breytni að nálgast eftirlaunaaldurinn hafi gefið góða raun. Guðrún Pétursdóttir er í öðrum hópnum. Henni finnst svo mikill þokki yfir ballettinum, fallegur lík- amsburður og mýkt, og eftir að hafa séð ljósmyndir af konum á sínum aldri að dansa hafi hún hrifist með. „Þegar kórsystir mín spurði hvort ég væri ekki til í að koma með sér á námskeiðið sló ég til.“ Ekkert mjálm Eins og margar ungar stelpur var Guðrún í ballett þegar hún var lítil, byrjaði hjá Guðnýju Pétursdóttur á Lindargötu og fór síðan til meistara Eriks Bisted, fyrsta ballettmeistara Þjóðleikhússins. „Ég næ nánast aftur í forsögulegan tíma,“ segir Guðrún og hlær, „og það er gaman að taka upp gamlan þráð, þótt minningarnar úr tímum hjá Bisted séu blendnar, því hann var ansi strangur. Hann var eins og gamall hershöfðingi, skarpleitur og óþolinmóður, það var engin mildi, ekkert mjálm. Þú áttir bara að vera með rétta rist og þráðbein í baki, hár- ið í hnút og standa þína plikt.“ Guðrún segir að sér hafi alltaf fundist sú mjúka reisn, sem fylgir ballettinum, vera eftirsóknarverð. Vísar til Þórhildar Þorleifsdóttur og svilkonu sinnar, Bryndísar Schram. „Þær bera sig áreynslulaust svo vel og hafa svo fallegan limaburð. Mér finnst gaman að horfa á þessar konur hreyfa sig.“ Það er mikilvægt að brjóta aldurs- múrana, eins og gert var þegar öld- ungadeild Menntaskólans við Hamrahlíð var komið á, minnir Guð- rún á. „Fram að því var of seint að læra til stúdentsprófs eftir tvítugt og sama máli gegnir með þær konur sem komu á svokallaðri frúarleikfimi um 1970. Nú finnst okkur sjálfsagt að allir fari í líkamsrækt á hvaða aldri sem er. Og 2017 er svo komið að konur á sjötugsaldri drífa sig í ballett – kannski ekki í tjullkjól og táskóm, en á sinn hátt. Maður svífur ekki í heljarstökkum, það er nógu erfitt að líða af þokka yfir gólf. Það reynir meira á en sýnist – alla vöðva lík- amans þarf til að halda fallegri reisn og jafnri hreyfingu.“ Stóra sviðið er ekki enn í augsýn, en Guðrún segir eðlilegt að setja markið hátt þótt aðeins séu tvær kennslustundir að baki: „Ég stefni að því að dansa með flokknum mínum í búrkum, eða jafnvel á bak við tjald, undir nafninu Litli fílaflokkurinn.“ Dansarar líða af þokka yfir gólf  Konur á besta aldri láta drauminn rætast og rifja upp ballettsporin Morgunblaðið/Freyja Gylfa Silfursvanirnir Guðrún Pétursdóttir á milli Soffíu Drafnar Marteinsdóttur kennara og Brynju Scheving skólastjóra á meðan aðrir nemendur gera æfingar. Fyrir tuttugu árum var Geir Sveins- son einn besti varnarmaður heims í handboltanum og í stóru hlutverki hjá Montpellier í Frakklandi. Þá var nýkominn í liðið efnilegur varnar- maður, Didier Dinart að nafni, sem átti eftir að ná heldur betur langt með franska landsliðinu. Í dag mæt- ast þeir sem þjálfarar Íslands og Frakklands í sextán liða úrslitum heimsmeistaramótsins. »3 Þjálfari Frakka lærði af þjálfara Íslendinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.