Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Kristín Jónas- dóttir vinkona mín til margra ára er fallin frá. Hana sá ég fyrst árið 1940 í Reykjavík, þar sem við báðar erum fæddar og uppaldar. Kristín kynntist manni sín- um, Snorra Guðmundssyni, þar sem þau unnu bæði í Sælgæt- isgerðinni Freyju í Reykjavík. Snorri var Norður-Þingeyingur og fluttu þau með son sinn Hauk Öxar, fæddan í Reykjavík 17. mars 1945, í Akursel í Öx- arfirði. Það sýnir bæði dugnað og skapfestu Stínu að fara frá Reykjavík með öll sín þægindi, í sveit þar sem hvorki var renn- andi vatn í krönum né rafmagn. Þar bjuggu þau til ársins 1960 er þau hættu búskap og fluttu aftur til Reykjavíkur vegna veikinda Snorra af heymæði. Stína hafði fallega söngrödd og þau hjónin sungu bæði í kirkju- kór Skinnastaðakirkju. Einnig höfðu þau gaman af að spila brids. Leiðir okkar lágu aftur sam- an þegar ég flutti norður í Kelduhverfi árið 1948. Það var ekki mikill samgangur milli sveita, nema þá ef fólk hittist á samkomum, sem var ekki gefið að allir kæmust á, þar sem ekki Kristín Jónasdóttir ✝ Kristín Jón-asdóttir fædd- ist í 15. september 1921. Hún andaðist 18. nóvember 2016. Útför Kristínar fór fram 28. nóvember 2016. var bíll á hverjum bæ. Elstu drengir okkar Stínu voru fermdir saman árið 1959 í Snartar- staðakirkju. Ætt- ingjar okkar komu, m.a. mæður okkar beggja sem komu samskipa norður. Enn lágu leiðir okkar Stínu saman 1982 og hefur vin- átta okkar haldist æ síðan. Fór- um við Yngvi með þeim hjón- um, Stínu og Snorra, í mörg ferðalög um landið. Mér er of- arlega í minni ferð sem við fór- um frá Reykjavík, austur um land og í Ás. Víða var stoppað og nutum við þekkingar Snorra því hann hafði farið margar ferðirnar um landið með Þor- leifi bróður sínum. Síðustu árin var síminn óspart notaður þar sem við bjuggum hvor á á sínu lands- horninu og má segja að við töl- uðum um allt milli himins og jarðar. Stína hafði stálminni og stjórnmálin vöfðust ekki fyrir henni. Dagurinn hófst hjá henni með lestri Morgunblaðs- ins og því að ráða krossgátuna. Það var ánægjulegt að hafa glaðst með henni og fjölskyldu hennar á 95 ára afmæli hennar nú í september sl. Ég þakka Stínu öll árin, gjafmildi hennar til mín og minna. Blessuð sé minning hennar og innilegar samúðarkveðjur til allra þeirra sem þótti vænt um hana. Margrét Nikulásdóttir. ✝ Sveinn TraustiHaraldsson fæddist í Reykjavik 27. janúar 1946. Hann lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga hinn 11. janúar 2017. Foreldrar hans voru Sveindís Sveinsdóttir hús- móðir f. 11. nóv- ember 1922, d. 6. janúar 1989, og Harald Ragnar Jóhannesson, áhaldavörður hjá Reykjavíkurborg, f. 4. ágúst 1919, d. 28. mars 1968. Systkini Sveins Trausta eru Jóhannes, f. 17. febrúar 1944, Halldóra, f. 13. desember 1948, d. 22. apríl 2016, og Harald, f. 11. júlí 1951. Hinn 4. ágúst 1979 kvæntist Sveinn Trausti Kristjönu Helga- dóttur, f. 16. apríl 1954. Eignuðust þau tvær dætur, Sveindísi Maríu, f. 25. júní 1979, og Svölu Hrönn, f. 26. september 1990. Sveindís María er gift Kristbirni Heiðari Tryggva- syni og eiga þau þrjú börn; Svein Trausta, Kristjönu Árnýju og Kötlu Sigrúnu. Svala Hrönn er í sambúð með Hákoni Gunnari Há- konarsyni. Útför Sveins Trausta fer fram frá Neskirkju í Aðaldal í dag, 21. janúar 2017, klukkan 14. Elsku besti pabbi minn. Ég er svo innilega þakklát fyrir árin tuttugu og sex sem við feng- um að eiga saman en á sama tíma finnst mér svo ofsalega ósann- gjarnt að fá ekki að hafa þig leng- ur hjá mér. Það eru engin orð sem eru nógu stór og sterk til að lýsa þér og sambandinu okkar á milli. Þú varst langbestur, elsku pabbi, ég gat alltaf leitað til þín og spurt þig að öllu, þú áttir alltaf tíma fyrir mig, svör handa mér og öll bestu ráðin. Auðvitað fór ég alltaf eftir því sem þú sagðir, af því að þú vissir alltaf best. Við áttum eftir að gera svo mikið, elsku pabbi, og ég á svo erfitt með að sætta mig við að ég geti aldrei tal- að við þig aftur eða hlegið með þér, faðmað þig eða kysst þig á mjúka kinnina. Ég er svo þakklát pabbi, fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig, fyrir allt sem þú kenndir mér, og fyrir að gera mig að þeirri manneskju sem ég er í dag, og ég veit að þú varst jafn ánægður með mig, og ég með þig. Þú varst alltaf svo stoltur af okkur systrum og ég lofa að halda áfram að gera þig stoltan, og gera alltaf mitt besta í lífinu, fyrir þig, pabbi minn. Ég elska þig alltaf. Þín dóttir, Svala Hrönn. Elsku pabbi minn. Það verður skrítið að koma í sveitina okkar og þú ert ekki þar. Ég á eftir að sakna þess að geta hringt í þig til að fá ráðleggingar um allt mögulegt eða bara til að spjalla um allt og ekkert. Elsku börnin mín sakna þín meira er orð fá lýst, enda var ekkert sem þú hefðir ekki gert fyrir þau. Ég geymi minningarnar um þig í hjarta mínu og ég veit að þú vakir yfir okkur og passar okkur eins og þú hefur alltaf gert. Mamma send- ir ástarkveðjur. Takk fyrir allt. Ég elska þig. Englar Guðs þér yfir vaki og verndi pabbi minn vegir okkar skiljast núna, við sjáumst ekki um sinn. En minning þín hún lifir í hjörtum hér því hamingjuna áttum við með þér. Þökkum kærleika og elsku, þökkum virðingu og trú þökkum allt sem af þér gafstu, okkar ástir áttir þú. Því viðmót þitt svo glaðlegt var og góð- leg var þín lund og gaman var að koma á þinn fund. Með englum Guðs nú leikur þú og lítur okkar til nú laus úr viðjum þjáninga, að fara það ég skil. Og þegar geislar sólar um gluggann skína inn þá gleður okkur minning þín, elsku pabbi minn. Vertu góðum Guði falinn er hverfur þú á braut gleði og gæfa okkur fylgdi með þig sem förunaut. Og ferðirnar sem förum við um landið út og inn er fjarsjóðurinn okkar pabbi minn. (Guðrún Sigurbjörnsdóttir.) Þín dóttir Sveindís María. Sveinn Trausti Haraldsson ✝ Stefán fæddist5. júní 1941 að Hofstöðum í Skaga- firði. Hann lést á hjartadeild Land- spítalans 12. janúar 2017. Foreldrar hans voru Ingigerður Guðmundsdóttir, f. 18. desember 1901, d. 24. febrúar 1987, og Stefán Stef- ánsson, f. 18. desember 1885, d. 25. ágúst 1961. Stefán var yngst- ur af fjórum bræðrum, þeir hétu Geirfinnur og Björn, en þeir lét- ust í bernsku, og Geirfinnur, f. 9. mars 1935, d. 18. nóvember 2016. Stefán giftist 30. desember 1967 Eyrúnu Jónsdóttur, f. 24. júlí 1948 í Grindavík. Börn Stefáns eru: 1) Ingigerður, f. 24. ágúst 1963. 2) Stef- án, f. 20. september 1967, maki hans er Guðrún H. Rúnars- dóttir. 3) Fjóla Ósk, f. 27. apríl 1973, og maki hennar er Júl- íus M. Steinþórsson. Barnabörnin eru sex og barnabarnið er eitt. Lengst af starfsævinni var Stefán sjómaður, síðan sjálf- stæður vörubifreiðastjóri, síð- ustu starfsárin starfaði hann hjá olíufélaginu Esso. Útför Stefáns fer fram frá Grindavíkurkirkju í dag, 21. jan- úar 2017, klukkan 13. Við kveðjustund minnumst við pabba og tengdapabba sem vinar og félaga sem þótti fátt skemmti- legra en að ferðast um í húsbíln- um á sumrin, stoppa við ein- hverja lækjarsprænu og veiða í soðið, fara í ber á haustin og hafa það almennt náðugt með henni Rúnu sinni. Honum þótti alltaf vænt um Skagafjörðinn, æskustöðvarnar sínar. Þegar við hjónin heimsótt- um hann þá var venjulega fyrsta spurning hvernig barnabörnin hefðu það og núna undir það síð- asta hvernig langafabarnið hefði það, hvort drengurinn væri ekki hraustur. Þinn missir er mikill, kæra mamma, tengdamamma, megi góður Guð styrkja þig í gegnum sorgina. Fjóla og Júlíus. Stefán Stefánsson Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför KRISTÍNAR MAGNEU EGGERTSDÓTTUR, Jakaseli 12, Reykjavík. . Valur Leonhard Valdimarsson, Árni Snorri Valsson, Rakel Þorsteinsdóttir, Valdimar Lárus Valsson, Ásgerður Drífa Stefánsdóttir, Hrefna Lárusdóttir, Eggert Snorri Magnússon og barnabörn. Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður, tengdaföður, afa og langafa, GUTTORMS SIGBJARNARSONAR jarðfræðings, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík áður til heimilis í Skaftahlíð 8. Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Droplaugarstaða sem annaðist hann af alúð og hlýju. . Áslaug Kristjánsdóttir, Hjörleifur Guttormsson, Erna Jónasdóttir, Margret Guttormsdóttir, Anita Oddsdóttir, Þóra B. Hafsteinsdóttir, Vigfús Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, BJARNA KRISTJÁNSSONAR frá Neðri-Hjarðardal, Dýrafirði. Sérstakar þakkir sendum við starfsfólkinu á hjúkrunarheimilinu Eyri, Ísafirði, sem annaðist hann síðasta árið. . Elín G. Bjarnadóttir, Jón Baldursson, Guðrún S. Bjarnadóttir, Halldór J. Egilsson, Kristján Bjarnason, Kristín Guðmundsdóttir, Jóhannes O. Bjarnason, Eva Rós Vilhjálmsdóttir, Karl A. Bjarnason, Erla B. Ástvaldsdóttir, Anna Katrín Bjarnadóttir, Jónas Þór Birgisson, börn og barnabörn. Hugheilar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, MARÍU K. HARALDSDÓTTUR, Hraunvangi 3, Hafnarfirði, áður búsettrar í Bolungarvík. Sérstakar þakkir til starfsfólks gjörgæslu- deildar og hjartadeildar 14EG á Landspítala við Hringbraut og til starfsfólks á Hrafnistu í Hafnarfirði. . Einar K. Guðfinnsson, Sigrún J. Þórisdóttir, Haraldur Guðfinnsson, Anna Rós Bergsdóttir, Guðrún Kristín Guðfinnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæru foreldra, BJARNA GUÐJÓNSSONAR og AÐALBJARGAR AÐALBJÖRNSDÓTTUR fyrrverandi prestshjóna og bænda á Valþjófsstað í Fljótsdal. Hvíl í friði og trú. Hafdís Björg Bjarnadóttir, Jón Sveinbjörn Vigfússon, Una Birna Bjarnadóttir, Trausti Valgeir Sigvaldason, Kristinn Bjarnason, Elva Hildur Hjaltadóttir, Guðjón Bjarnason, Árný Gunnarsdóttir, Katrín Erla Kjartansdóttir, Jón Þór Tryggvason, Sigurbjörg Svana Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KAREN MARTEINSDÓTTIR, Álftamýri 58, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Droplaugarstöðum 9, janúar. Útförin hefur farið fram í kyrrþey. . Bryndís Aðalsteinsdóttir, Þórey Aðalsteinsdóttir, Sigrún Aðalsteinsdóttir, Geir Árnason, Auður Aðalsteinsdóttir og barnabörn. Ástkæri maðurinn minn, elsku faðir okkar, tengdafaðir og besti afi okkar, SVEINN ERLENDUR HJÖRLEIFSSON hestamaður, lést laugardaginn 14. janúar. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 26. janúar klukkan 13. . Ilka Kothes, Geir Ólafur Sveinsson, Ljósbjörg Ósk Aðalsteinsdóttir, Íris Hervör Sveinsdóttir, Ingi Gunnar Ingason og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.