Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Herdís Helgadóttir, hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi deild- arstjóri taugadeildar Landspítalans, lést á líknardeild Landspít- alans síðastliðinn fimmtudag, 19. janúar, á 89. aldursári. Herdís fæddist á Akureyri hinn 10. júlí 1928, dóttir hjónanna Helga Ólafssonar og Valýjar Þorbjargar Ágústsdóttur. Hún var næstelst átta systkina og eru fjögur þeirra á lífi. Herdís lauk hjúkrunarfræðiprófi árið 1950 og var skólahjúkrunar- fræðingur á Siglufirði frá 1955 til 1968. Hún hóf störf á Landspít- alanum árið 1968 og var deild- arstjóri taugadeildar frá 1970 til 1984. Herdís var deildarstjóri á Droplaugarstöðum frá 1986 til 1991. Hún var varafor- maður Kvenfélags Hallgrímskirkju frá 1968 til 1985 og vara- formaður Presta- kvennafélags Íslands frá 1972 til 1975. Herdís giftist séra Ragnari Fjalari Lár- ussyni, sóknarpresti í Hallgrímskirkju og prófasti, árið 1950 en hann lést árið 2005. Herdís og Ragnar eignuðust sex börn. Þau eru Guðrún, fædd 1950, Þórsteinn, fædd- ur 1951, Valý Helga, fædd 1953, Lárus, fæddur 1954, Ragnheiður Jensína, fædd 1956 og Halldóra Anna, fædd 1964. Barnabörn Herdísar eru 20 og barnabarnabörnin 29. Útför Herdísar verður gerð frá Hallgrímskirkju föstudaginn 27. jan- úar nk. og hefst athöfnin klukkan 13. Andlát Herdís Helgadóttir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri hefur ritað Jóni Gunnarssyni, sam- göngu- og sveitarstjórnarráðherra, bréf þar sem segir að Reykjavíkur- borg sé tilbúin til funda um framtíð Reykjavíkurflugvallar við fyrsta tækifæri. Borgarstjóri segir í bréfinu að mikilvægt sé að ríki og Reykjavík- urborg vinni saman að því að ná víð- tækri sátt um framtíð Reykjavíkur- flugvallar. Vísar hann til niðurstöðu stýrihóps, Rögnunefndarinnar svo- kölluðu, sem skyldi fullkanna aðra kosti til rekstrar innanlandsflugs en framtíðarflugvöll í Vatnsmýri. Stýri- hópurinn skilaði skýrslu í júní 2015. Í helstu niðurstöðum stýrihópsins hafi m.a. komið fram að mestir þró- unarmöguleikar innanlandsflugvall- ar til framtíðar séu við Hvassa- hraun, borið saman við aðra flugvallarkosti. Reykjavíkurborg sé reiðubúin til viðræðna við ráðuneyt- ið um næstu skref á grundvelli þeirra gagna sem stýrihópurinn afl- aði og tillagna hans. „Borgaryfirvöld eru tilbúin að eiga samstarf við ríkið um að tryggja rekstraröryggi Reykjavík- urflugvallar í Vatnsmýri á meðan undirbúningur að flutningi flugvall- arins og eftir atvikum framkvæmdir fara fram. Í því skyni hlyti endur- skoðun á dagsetningum í Aðalskipu- lagi Reykjavíkur 2010-2030 að eiga sér stað. Jafnframt þyrfti þó að mæta þeirri þörf fyrir húsnæðisupp- byggingu sem viðkomandi svæðum er ætlað að mæta í aðalskipulagi borgarinnar og svæðisskipulagi höf- uðborgarsvæðisins,“ segir borgar- stjóri meðal annars í bréfinu. sisi@mbl.is Borgin tilbúin í við- ræður um flugvöll  Tillögur Rögnunefndar grundvöllur Dagur B. Eggertsson Jón Gunnarsson ÞEKKING – FRAMTÍÐIN HVERT STEFNIR? Ráðstefna í tilefni af Degi rafmagns Þriðjudaginn 24. janúar 2017 kl. 13:00 – 15:45 Grand Hótel Sigtúni 38, Gullteigi B Dagskrá Ragnar Guðmannsson Forstöðumaður Stjórnstöðvar Landsnets Áskoranir og framþróun í flutningskerfi raforku Ragnheiður H. Magnúsdóttir Business Manager – Inside Sales Marel Hvernig mun fjórða iðnbyltingin hafa áhrif á störfin okkar? Hilmir Ingi Jónsson Framkvæmdastjóri Powena Veflægur rafvirki – framtíðin í rafmagnsþjónustu Tryggvi Thayer Verkefnisstjóri Menntamiðju Háskóla Íslands Tækniþróun, tæknibyltingar og framtíð náms Pallborðsumræður með þátttöku frá Rafiðnaðarsambandi Íslands, Samtökum rafverktaka og fyrirlesurum Ráðstefnustjóri: Rúnar Bachmann rafvirki Skráning á vef www.rafis.is í síðasta lagi mánudaginn 23. janúar Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Lítil hrifning er innan Samtaka at- vinnulífsins (SA) á áformum Þor- steins Víglunds- sonar, félags- og jafnréttisráð- herra, sem er fyrrverandi fram- kvæmdastjóri SA, um að lög- bundið verði að öllum fyrirtækj- um og stofnunum sem hafa fleiri en 25 starfsmenn verði skylt að láta fara fram vottun samkvæmt jafn- launastaðlinum ÍST 85:2012 á þriggja ára fresti. Telja fjölmargir innan SA að lög- festing slíkrar vottunar væri afar íþyngjandi fyrir fyrirtækin í landinu og myndi ekki skila tilætluðum ár- angri. Að lögfesta staðal sé mest íþyngjandi leið sem hugsast geti og gríðarlegt inngrip í starfsemi fyrir- tækja. Halldór Benjamín Þorbergsson, nýr framkvæmdastjóri SA, staðfesti í samtali við Morgunblaðið í gær að mikil andstaða væri innan SA við lögfestingu jafnlaunavottunar. „Það hefur alltaf verið staðföst stefna SA að eyða kynbundnum launamun og samtökin styðja að sjálfsögðu jöfn laun kynjanna á vinnumarkaði. Launamisrétti er ólíðandi. En að lögfesta jafnlauna- vottun byggða á jafnlaunastaðli er afar íþyngjandi aðgerð fyrir fyrir- tækin í landinu. Það eru allir sam- mála um takmarkið, en það eru aðrar leiðir færar til þess að ná því, t.d. að auka upplýsingagjöf fyrirtækja í ársskýrslum,“ sagði Halldór. Gríðarlega flókið í framkvæmd Hann segir að frumvarpið um jafnlaunavottun sé ekki komið fram en skilji hann málið rétt vilji ráð- herrann að jafnlaunastaðall verði lagður til grundvallar. „Þetta er gríðarlega flókið í framkvæmd. Staðlar heyra undir Staðlaráð Ís- lands, t.d. umhverfisstaðall, öryggis- staðlar o.s.frv. og til þess að fá vott- un á staðli þarf faggilt vottunarstofa að votta þetta. Þannig að flækjustig- ið er mjög hátt,“ sagði Halldór. Hann telur af þeim sökum að af- staða SA verði að leggjast gegn lög- festingu jafnlaunastaðals, enda séu staðlar hvergi í heiminum lögfestir. Þeir séu alltaf valkvæðir. Staðlar feli það í sér að fyrirtæki lofa að undir- gangast tugi kvaða og þannig sé lög- festing þeirra mikið inngrip í dag- lega starfsemi fyrirtækja. „Lögfesting á stöðlum gengur þvert á hugmyndafræðina sem er að baki stöðlum og það sem verra er, þetta gengur í berhögg við íslenska vinnumarkaðslíkanið. Stjórnmála- menn eiga ekki að bæta við kröfur, sem samið er um í kjarasamning- um,“ sagði Halldór. SA leggjast gegn jafnlaunavottun  Halldór Benjamín Þorbergsson, nýr framkvæmdastjóri SA, segir að hvergi í heiminum séu staðlar lögfestir  Stjórnmálamenn eigi ekki að bæta við kröfur sem samið er um í kjarasamningum Morgunblaðið/Golli Jafnlaunastaðall Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að lög- festing jafnlaunastaðals væri mikið inngrip í daglega starfsemi fyrirtækja. Halldór Benjamín Þorbergsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.