Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 42
42 MENNING MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Söfn • Setur • Sýningar LISTASAFN ÍSLANDS T E X T I 15.9 - 16.4.2017 Valin textaverk úr safni Péturs Arasonar og Rögnu Róbertsdóttur VALTÝR PÉTURSSON 24.9 - 26.3.2017 JOAN JONAS Reanimation Detail 2010/2012 26.10 - 26.02 2017 VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is. Opið alla daga kl. 11-17. Lokað á mánudögum LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR SAMSKEYTINGAR 3.9. - 28.05. 2017 Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 7.5.2017 Lokað í desember og janúar. Opnar aftur laugardaginn 4. febrúar. Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár grunnsýning Þjóðminjasafnsins Portrett Kaldals í Myndasal Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal Kaldal í tíma og rúmi á Vegg Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17. Sunnudaginn 22. janúar kl. 14: Leiðsögn með sérfræðingi Listasafns Íslands. Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög, ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna. Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi, opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210 www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/ Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17 SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU VIÐTAL Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Barnaleikritið Fjarskaland, eftir Guðjón Davíð Karlsson, Góa, verður frumsýnt á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins á morgun kl. 13. Í Fjarskalandi búa persónur úr gömlu, góðu æv- intýrunum, vondi úlfurinn, Rauð- hetta, Hans og Gréta og fleiri sem öll börn og fullorðnir ættu að þekkja en þekkja kannski ekki lengur. Í landinu ríkir neyðar- ástand og við mannfólkið berum ábyrgð á því, nánar tiltekið fullorðna fólkið sem er hætt að lesa ævintýri fyrir börnin sín fyrir svefninn. Ævintýrapersón- urnar hverfa hver af annarri en ekki er öll von úti. Ung stúlka, Dóra, heldur í háskaför með Gilitrutt o.fl. sögupersónum og þarf að bregða sér í hlutverk Mjallhvítar, Grétu úr Hans og Grétu og fleiri persóna til að bjarga Fjarskalandi og líka ömmu sinni sem er horfin. En vondi úlfurinn er samur við sig og reynir allt hvað hann getur að stöðva Dóru. Leikstjóri sýningarinnar er Selma Björnsdóttir og leikarar eru Baldur Trausti Hreinsson, Edda Arnljóts- dóttir, Gunnar Jónsson, Hallgrímur Ólafsson, Ísabella Rós Þorsteins- dóttir, Kolbrún María Másdóttir, Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir, Oddur Júlíusson, Ragnheiður Steindórs- dóttir, Rakel María Gísladóttir, Selma Rún Rúnarsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Snæfríður Ingvars- dóttir og Þröstur Leó Gunnarsson en Vignir Snær Vigfússon semur lögin í leikritinu. Dýrmætur tími Blaðamaður var viðstaddur rennsli á sýningunni í fyrrakvöld fyrir fullum sal og þá að mestu af börnum og var ekki annað að sjá og heyra en að gestir væru hæst- ánægðir. Gói var þar líka og er ánægður með viðbrögðin. „Ég var voða stoltur af hópnum,“ segir hann um aðstandendur sýningarinnar, leikara, tónlistarmenn o.fl. -Í verkinu eru þekktar persónur úr sígildum ævintýrum að hverfa af því að foreldrar eru hættir að lesa ævintýrabækur fyrir börnin sín, rétta þeim bara spjaldtölvur fyrir svefninn. Þetta er barnaleikrit en er þetta líka ádeiluverk? „Ja, hvað segir þú?“ spyr Gói á móti og blaðamaður segist hafa fengið þá tilfinningu í byrjun sýn- ingar, þegar fjölskylda Dóru kemur að húsi ömmu gömlu úti í sveit og pabbinn fer strax á Snapchat og Facebook og biður alla um að vera hressa fyrir samfélagsmiðlana. Ung- lingssonur hans á erfitt með það því hann er niðursokkinn í spjaldtölvu. Gói segir að vissulega hafi hann langað að segja eitthvað með verk- inu. „Það mega ekki bara vera prumpubrandarar og allt í stuði all- an tímann. Ég sá um þrjár þáttarað- ir af Stundinni okkar og ég hef voða gaman af efni sem bæði fræðir og skemmtir börnum. Auðvitað vill maður ekki vera að predika og segja að eitthvað sé rangt, það er ekki rangt að taka mynd á Snapchat eða leyfa börnum að fara í spjaldtölvu fyrir svefninn, en það má samt ekki gleyma hinu. Ég held að foreldrar nútímans séu að fara svolítið á mis við stóran tengslamyndunar-faktor sem er að setjast niður með börn- unum okkar í ró og næði, segja þeim sögu og jafnvel láta þau segja okkur sögu. Að vera með þeim. Það er svo mikill hraði og svo mik- ið að gerast að það er nauðsynlegt að ná þessum tíma. Eins og við vitum er þetta svo bara fokið í burtu, tím- inn flýgur áfram og þau eru komin í menntó, gift og flutt að heiman áður en maður veit af. Við erum svolítið mikið að tala um hvað við ætlum að gera, að það verði rosa gaman í sum- ar eða eftir tvö ár eða á páskunum því þá ætlum að fara í sumarbústað og hafa það rosa huggulegt. Við lif- um mikið í framtíðinni, erum aðeins á undan okkur í sjálfum í stað þess að skapa minningar í nútíðinni, að lifa í núinu,“ segir Gói. „Krakkar í dag geta tekið inn svo gífurlegt magn af upplýsingum á svo skömmum tíma, miklu meira en við. Þau lesa allt öðruvísi úr tölvuleikjum en við gerum, þau skilja þá einhvern veginn. Heilinn í þeim hefur bara þroskast þannig að þau eru fær um að lesa úr umhverfinu miklu meiri upplýsingar en við. Við þurfum að bregðast við til að vera með þeim í því. Það þarf líka mótvægi, stundum er hollt að láta sér leiðast, hollt að vera einn að leika sér. Það þarf ekki alltaf að vera rosalegt tempó, hraði og dagskrá,“ segir Gói. Ímyndunaraflið þarf að þroska -Í leikritinu er ímyndunaraflið að hverfa með minnkandi lestri og minni samveru foreldra og barna. Heldurðu að samhengi sé þarna á milli, að ímyndunaraflið dvíni með minnkandi lestri? „Já, ég held að það sé engin spurning og við matreiðum svo mik- ið fyrir þau. Þessir tölvuleikir sem eru í gangi í dag eru náttúrlega geggjaðir, grafíkin og allt saman er svo ofboðslega flott að þú ert bara inni í þessum heimi sem er fyrir fram skapaður fyrir þig. En við lest- ur ertu að búa til heiminn sjálfur,“ svarar Gói. Ímyndunaraflið þurfi að þroska, börn þurfi að fá að sjá fyrir sér hlutina og skapa í huganum. -Þú nýtir þér sígild ævintýri í frá- sögninni líkt og gert hefur verið áð- ur í barnaefni, m.a. teiknimyndinni Shrek. Var áskorun að gera það þannig að úr yrði eitthvað ferskt? „Já, auðvitað. Ég hef rosalega gaman af þessum gömlu ævintýrum, ég og börnin mín erum oft að lesa upp úr gömlum ævintýrabókum og ég hugsaði með mér að það væri gaman að koma í Þjóðleikhúsið og sjá þessar persónur lifna við á sviði. Þetta er margnotað þema, að nota gömlu ævintýrin og láta persónur úr þeim koma fram, þannig að það varð að vera eitthvað nýtt í þessu, ég var meðvitaður um það,“ segir Gói. Hann segist hafa farið í marga hringi þegar kom að því að velja ævintýri í leikritið, enda úr fjöl- mörgum að velja. Í fyrsta uppkasti hafi eingöngu verið íslensk ævintýri með Búkollu o.fl. en Gilitrutt hafi endað í lokaútgáfunni. „Við gerðum það í samstarfi, við Selma og Finnur Arnar (Arnarsson, leikmyndahönn- uður), lásum þetta saman og veltum því fyrir okkur hvað væri leikbærast og með hvaða ævintýri væri skemmtilegast að vinna á sviðinu,“ segir Gói. Honum hafi líka þótt eitt- hvað heillandi við að nota ævintýri sem fólk þekkti og vissi þ.a.l. hvenær eitthvað væri ekki sögunni sam- kvæmt, þegar úlfurinn væri að skemma ævintýrið. Mikill fimmaur -Talandi um úlfinn, sem Þröstur Leó Gunnarsson leikur, þú lætur hann að mestu sjá um fimmaura- brandarana. „Já, ég er svo mikill fimmaur,“ segir Gói og hlær. „Og Þröstur er einhver mesti fimmaurasnillingur þjóðarinnar,“ bætir hann við og að honum þyki afar mikilvægt að allir fái eitthvað fyrir sinn snúð, að allir skemmti sér á sýningunni. „Mér finnst ekki síður mikilvægt að skilja líka eftir einhverjar spurningar. Það þarf ekki að svara öllu, hægt að gera það í bílnum eftir sýningu.“ Nú þekkja öll börn Góa og spurð- ur að því hvort leikritinu fylgi þ.a.l. miklar væntingar segir Gói að jú, einhver sé pressan en þó af góða taginu. „Það hjálpar manni að hugsa áður en maður framkvæmir. Að maður sé fyrirmynd og megi ekki vera með einhvern hálfvitagang,“ segir hann sposkur. -Þetta barnaleikrit með söngvum, kom einhvern tíma til greina að þetta yrði söngleikur? „Það vantar ekkert mikið upp á að verkið sé söngleikur, nokkur lög. Það er voða skrítið þegar maður er að gera svona að hlutirnir vilja þróast í einhverja átt og maður finn- ur bara að einhver tiltekin leið er rétt. Þannig að nei, það var ekki ein- hver draumur að gera söngleik, ég geri það bara næst. Mér finnst þetta skemmtilegt form, leikrit með söngvum,“ segir Gói og bætir við að Vignir Snær, höfundur tónlistar í sýningunni, geri „límlög“, þ.e. lög sem límist við heilann og að þeir hafi unnið mikið saman áður. „Hann er með skemmtilegan tón,“ segir Gói. Vinnusöm og skipulögð Að lokum berst talið að leikstjór- anum, Selmu, sem Gói hrósar í há- stert. „Hún er ótrúlega flinkur leik- stjóri, ég hef leikið undir leikstjórn hennar og hún er afar vinnusöm og skipulögð þannig að ég treysti henni fullkomlega til verksins. Við vorum í mjög nánu samstarfi, töluðum mikið saman, skiptumst á hugmyndum og svo rak ég nefið inn á æfingar en ég vildi gefa þeim sem mest frí frá mér og leyfa þeim að skapa þetta sjálf. Mér finnst það nú skemmtilegt sem leikari og sérstaklega þegar maður er með nýtt verk sem hefur aldrei verið sett upp áður. Þá eignast leik- ararnir stærri hluta í því. Ég vildi gefa þeim frelsi til þess en ég hef verið með þeim eftir að þau komu á svið, sitja úti í sal og horfa og njóta. Það er skrítið að hafa verið í 12, 13 ár á sviði og sitja allt í einu úti í sal,“ segir Gói. Hann hafi ekki verið í þeirri stöðu áður, að vera höfundur sýningar án þess að leika í henni, og það sé skemmtileg tilbreyting. „Lifum of mikið í framtíðinni“  Fjarskaland frumsýnt á morgun Ljósmyndir/Hörður Sveinsson Sorgarstund Snæfríður Ingvarsdóttir í hlutverki Dóru sem er aftur í hlutverki Mjallhvítar í þessu atriði leikritsins. Mjallhvít liggur látin í glerkistu og ævintýrapersónur syrgja hana og bíða þess að prinsinn lífgi hana við. Ógnvekjandi Oddur Júlíusson í hlutverki nornarinnar í Hans og Grétu. Guðjón Davíð Karlsson, Gói

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.