Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 LYNGHÁLS 9, 110 REYKJAVÍK 1962 fm.Glæsilegt skrifstofu- húsnæði i Reykjavík til sölu. Húsnæðið eru þrjár hæðir sem hafa verið standsettar á smekklegan hátt. Hæðirnar bjóða uppá blöndu af opnum rýmum og lokuðum skrifstofum. Möttökurými er á öllum hæðum. Stutt út á helstu stofnbrautir. Nánari upplýsingar gefur Ísak V. Jóhannsson í síma 822-5588 og Sigrún í síma 7737617 Viðar Marionsson löggiltur fasteignasali Bæjarlind 4 , 201 Kópavogur, 512 3600, tingholt.is VIÐTAL Helgi Bjarnason helgi@mbl.is „Það er ekkert eitt sem ræður. Ef maður reynir að gera sitt besta á öll- um sviðum uppsker maður betur. Maður verður aldrei svo gamall að maður læri ekki af reynslunni, getur alltaf gert betur,“ segir Gróa Mar- grét Lárusdóttir sem rekur af- urðahæsta kúabú landsins ásamt manni sínum, Sigurði Eggertz Ólafs- syni, á Brúsastöðum í Vatnsdal. Búið á Brúsastöðum sem rekið er í nafni Brúsa ehf. hefur undanfarin fimm ár verið í röð afurðahæstu kúa- búa landsins, samkvæmt niður- stöðum skýrsluhalds í naut- griparækt sem Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins heldur utan um - og þrisvar verið í fyrsta sæti. Á síðasta ári voru meðalafurðir búsins 8.990 kg eftir hverja árskú að meðaltali. Er það nýtt glæsilegt Íslandsmet. Í fjósinu á Brúsastöðum stendur einn- ig kýrin Nína 676 sem var besta mjólkurkýr landsins á síðasta ári, mjólkaði meira en nokkur kýr hefur áður gert hér á landi. Halda uppi meðaltalinu Gróa segir að huga verði að mörg- um þáttum í búskapnum til að ná ár- angri. Allt verði að haldast í hendur. Hún nefnir að vanda þurfi uppeldi kvígnanna og hafa þær ekki of gaml- ar þegar þær bera fyrst. Vanda þurfi sláttutíma og heyja eins vel og hægt er. Taka heysýni að hausti og velja kjarnfóður eftir niðurstöðum þess. Hún segir að sinna þurfi kúnum vel. Gæta þess að þær skorti aldrei hey, hafi nóg að borða allan sólar- hringinn. Þau eru með gjafakerfi þar sem rúllurnar eru settar inn í fjós tvisvar til þrisvar sinnum í viku og auðvelt er að færa átgrindurnar að kúnum eftir því sem þær éta. „Heyin þurfa að vera góð og rúll- urnar jafngóðar þegar svona kerfi er notað. Kýrnar gera upp á milli rúllna og þær lélegri verða eftir.“ Einnig þurfi að sjá til þess að kýrnar hafi góðan haga í útibeit. Ræktun íslenska mjólkurkúa- stofnsins skilar stöðugum fram- förum, að sögn Gróu. Hún segir að þau á Brúsastöðum eignist stöðugt fleiri afburðakýr sem hækki með- altalið verulega. „Við erum að fá betri kvígur inn. Þær mjólka vel á fyrsta mjaltaskeiðinu og gera svo enn betur á öðru og þriðja. Þegar maður er kominn með 24 kýr af 50 sem mjólka yfir 8.500 kg á ári halda þær mjög vel við meðaltalið þótt aðr- ar séu lakari,“ segir Gróa. Heyskapurinn skemmtilegastur Góð tíð á síðasta ári er ekki skýr- ingin á miklum afurðum á Brúsa- stöðum. „Við áttum góð hey frá árinu 2015. Sumarið 2016 var ekki eins gott þó það væri hlýtt. Vissu- lega spratt betur en heyið í rúllunum í haust var ekki eins kröftugt og 2015. Fóðrið verður kröftugra þegar aðeins kaldara er í veðri,“ segir hún. „Þetta er skemmtilegt starf,“ seg- ir Gróa og heldur áfram: „Mér finnst heyskapurinn skemmtilegastur. Nýt mín í því að sópa saman góðu heyi í góðu veðri.“ Jarðrækt er undirstaða góðra heyja. Gróa og Sigurður hafa ræktað nánast alla jörðina og þau end- urvinna 20-25 hektara á hverju ári til að fá hámarksuppskeru af túnunum. Sigurður og Gróa ganga saman í fjósverkin og heyskapinn. Sigurður sér meira um vélarnar enda er hann reyndur vélamaður og tekur einnig að sér að rúlla fyrir nokkra ná- granna. Gróa segir mikilvægt að ráða eigin tækjum. „Það er eitt af því sem við höfum lært af reynsl- unni. Maður þarf að geta rúllað þeg- ar það hentar manni best.“ Mjaltaþjónn hefur verið í fjósinu á Brúsastöðum frá árinu 2011. Hjónin telja að hann eigi sinn þátt í góðum afurðum búsins. Kýrnar geti mjólk- að sig þegar þeim sýnist. Það skili meiri afurðum. Þá dreifi róbótinn kjarnfóðurgjöfinni yfir sólarhring- inn þannig að fóðrið nýtist betur. Þá gæti þau þess að hafa ekki of margar kýr fyrir mjaltaþjóninn þannig að hver og ein hafi nægan tíma til að mjólka sig. Þau fara í fjósið fjórum sinnum á dag. Þegar mjaltaþjónninn sér um mjaltirnar og gjafirnar eru vél- væddar eru fjósferðirnar aðallega til eftirlits og þrifa. „Við sáum það þeg- ar við tókum inn róbótinn að það skilaði sér strax í lægri líftölu og þar með hreinni mjólk að vera duglegur að þrífa. Þá heldur maður því við,“ segir Gróa. Mjólkuðu fyrir íbúðarhúsinu Vegna mikillar sölu mjólkuraf- urða síðustu árin gaf mjólkuriðn- aðurinn bændum lausan tauminn í framleiðslunni, þar til nú um ára- mótin að kvótinn fór aftur að virka. „Við nýttum svigrúmið að hluta. Við bættum ekki við kúm en kýrnar okk- ar mjólkuðu meira,“ segir Gróa. Kvótinn á Brúsastöðum er 350 þúsund lítrar en á síðasta ári lögðu þau inn í mjólkursamlag 415 þúsund lítra. Er það meira en þau hafa nokkru sinni áður gert. Þau fengu afurðastöðvaverð fyrir þessa 65 þús- und lítra sem voru umfram, að frá- dregnu 20 króna innvigtunargjaldi á lítra. „Við höfum verið að endurnýja íbúðarhúsið og vorum að reyna að láta kýrnar mjólka fyrir því. Það tókst að miklu leyti.“ Gróa er mótfallin því að leggja niður greiðslumark í mjólkurfram- leiðslu eins og mjög var til umræðu við gerð búvörusamnings. Nið- urstaðan var að leggja málið fyrir bændur í sérstakri atkvæðagreiðslu eftir nokkur ár. „Ég held að aldrei sé hægt að stýra framleiðslunni án þess að hafa stýrikerfi. Það er auðvelt að auka mjólkurframleiðsluna og þess vegna er nauðsynlegt að hafa eitt- hvert kerfi til að auka hana eða minnka eftir þörfum markaðarins. Kvótinn er langbesta aðferðin til þess.“ Alltaf hægt að gera betur  Kýrnar á Brúsastöðum í Vatnsdal settu nýtt og glæsilegt Íslandsmet í afurðasemi á nýliðnu ári  Allir þættir í kúabúskapnum þurfa að vera í lagi til þess að árangur náist, segir Gróa Lárusdóttir Kýr Kg mjólkur Bú 1. Nína 676 13.833 Brúsastaðir 2. Hrísa 336 13.779 Austurhlíð 3. Stebba Dýra 684 13.621 Brúsastaðir 4. Skvís 1161 13.594 Gil 5. Króna 131 13.400 Ásgarður 6. Pollýanna 624 13.181 Brúsastaðir 7. Urður 1229 13.148 Hvanneyri 8. Surtla 695 13.110 Moldhaugar 9. Aska 12.869 Flatey 10. Klukka 12.733 Grænahlíð Afurðahæstu kýrnar 2016 Meðalafurðir á árskú Heimild: rml.is kg Afurðahæstu kúabúin 2016 Meðaltal eftir hverja árskú 6.500 6.000 5.500 5.000 2008 2010 2012 20142009 2011 2013 2015 2016 Bú Skýrsluhaldarar Árskýr Kg mjólkur 1. Brúsastaðir Brúsi ehf. 50,9 8.990 2. Moldhaugar Þröstur Þorsteinsson 60,8 8.274 3. Hraunháls Guðlaug og Eyberg 28,1 8.173 4. Syðri-Grund Félagsbúið Syðri-Grund 51,8 8.129 5. Gautsstaðir Pétur Friðriksson 98,6 8.091 6. Espihóll Félagsbúið Espihóli 61,4 8.049 7. Garðakot Pálmi Ragnarsson 65,2 8.029 8. Stóru-Tjarnir Stóru-Tjarnir ehf. 51,8 7.981 9. Núpur Björgvin Rúnar Gunnarss. 83,9 7.950 10. Skíðbakki Rútur og Guðbjörg 59,8 7.925 11. Skáldabúðir Gunnbjörn ehf. 58,4 7.923 12. Reykjahlíð Búkostir ehf. 70,5 7.914 13. Sólheimar Valdimar Óskar Sigmarss. 36,2 7.904 14. Hvanneyri Hvanneyrarbúið ehf. 68,8 7.859 15. Hurðarbak Hurðarbaksbúið ehf. 44,6 7.771 16. Engihlíð Félagsbúið Engihlíð 55,5 7.768 17. Hóll Hóll, Svarfaðardal 50,7 7.740 18. Syðri-Bægisá Helgi Bjarni Steinsson 37,4 7.715 19. Hallland Félagsbúið Halllandi ehf. 67,7 7.706 20. Lyngbrekka Sigrún og Ármann 31,9 7.665 Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Bændur Sigurður Ólafsson og Gróa Margrét Lárusdóttir eru fyrirmyndar- bændur. Þau huga að öllum þáttum rekstrarins og það skilar þeim á toppinn. „Hún er stór og mikil og mikið rými í henni til að éta. Svo hefur hún töluvert skap. Þær ákveðnu fara að garðann og éta hvað sem tautar og raular,“ segir Gróa Mar- grét Lárusdóttir um Nínu 676 sem var afurðahæsta kýr landsins á síðasta ári. Mjólkaði 13.833 kg sem er nýtt Íslandsmet. Nína er undan Ófeigi sem reynst hefur ágætis kýrfaðir. Þau keyptu móður hennar sem kálf. Nína hefur borið þrisvar og á að bera fjórða kálfinum í lok febrúar. Hún mjólkar enn á fullu og Gróa segir að erfitt sé að þurrka hana upp. Þau eiga efnilega kvígu und- an Nínu og vonast til að hún feti í klaufför móður sinnar. Á Brúsastöðum eru 9 kýr sem mjólkuðu meira en 10 þúsund kg á síðasta ári. Ein þeirra er Stebba Dýra 684. Hún mjólkaði 13.621 kg og var í þriðja sæti yfir landið og hærri en gamla Íslandsmetið. Hún er á öðrum kálfi. Pollýanna 624 er sú sjötta hæsta, mjólkaði 13.181 kg. Stebba er með gallað júgur og ekki tókst að koma kálfi í Pollý- önnu. Því þurfa þær að víkja fyrir öðrum. Metkýrin er skapmikil Morgunblaðið/Jón Sigurðsson Metkýr Nína á Brúsastöðum er stór mjólkurkýr sem skilar góðum afurðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.