Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 ✝ Kristín MargrétSveinbjörns- dóttir var fædd í Viðvík við Stykk- ishólm 4. marz 1921. Hún lézt á Hrafnistu í Reykja- vík 5. janúar 2017. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Sigríður Jónsdóttir, f. 21. október 1882 í Laxárholti í Hraun- hreppi á Mýrum, húsfreyja í Við- vík í Helgafellssveit, d. 18. sept- ember 1964, og Sveinbjörn Guðmundsson, fæddur 13. nóv- ember 1889 í Bíldsey á Breiða- firði, bóndi, bátasmiður og sjó- maður í Viðvík, d. 28. desember 1931. Systkini Kristínar voru Droplaug, f. 25. maí 1912, d. 20. júlí 1945, gift Birni Sigfússyni, f. 17. janúar 1905, d. 10. maí 1991, og Guðjón Snóksdalín, f. 7. des- ember 1928, kvæntur Símoníu Kristínu Helgadóttur, f. 1. októ- ber 1927. Kristín giftist 21. maí 1945 Pétri Kristjáni Vilhelm Sveins- syni, vélstjóra og rennismið, f. 28. febrúar 1914, d. 1. ágúst 2004. Foreldrar hans voru Sveinn Teitsson, f. 12. september börn eru Pétur, f. 2006, Áslaug Margrét, f. 2008, og Una Katrín, f. 2012. c) Ylfa Ösp, f. 1980, sam- býlismaður Davíð Freyr Þórunn- arson, f. 1978, börn þeirra eru Ið- unn, f. 2007, og Baldur, f. 2013. 3) Þóra, f. 1956, gift Flosa Þóri Jak- obssyni, f. 1951. Sonur þeirra er: Þórir Freyr, f. 1978, sambýlis- kona Halldóra Kristjánsdóttir Larsen, f. 1986, börn þeirra eru Haraldur Wilhelm, f. 2010, Þóra Kristín, f. 2014, og Hákon Andri, f. 2016. Kristín ólst upp hjá for- eldrum sínum í Viðvík. Þegar faðir hennar lézt 1931, fluttist hún með móður sinni um tíma að Dröngum á Skógarströnd, en þar bjó föðurbróðir hennar. Síðar bjuggu þær mæðgur í Stykk- ishólmi, þar sem Kristín lauk skyldunámi. Hún fluttist með móður sinni suður til Reykjavík- ur 1935 á Grettisgötu 46. Í Reykjavík vann Kristín almenn verkakvennastörf fram að gift- ingu, vann í fiski og var iðnverka- kona í Dósaverksmiðjunni. Seinna á ævinni tók hún oft að sér húshjálp og ráðskonustörf ásamt því að sinna heimili sínu. Pétur og Kristín hófu búskap á Grettisgötu 46 en lengst af áttu þau heima á Nökkvavogi 16 í Reykjavík. Eftir að Kristín missti mann sinn dvaldi hún á Hrafn- istu, við Laugarás í Reykjavík. Útför Kristínar Margrétar var gerð frá Fossvogskirkju 18. jan- úar 2017, í kyrrþey að ósk hinnar látnu. 1879, járnsmiður, og fyrri eiginkona hans, Sigríður Sig- urðardóttir, f. 7. apr- íl 1874, d. 10. janúar 1925. Börn Kristínar og Péturs eru: 1) Sigurður Sveinn, f. 1944, kvæntur Ólöfu Högnadóttur, f. 1943. Börn þeirra eru: a) Högni Pétur, f. 1965, fyrrverandi eiginkona er Íris Eiríksdóttir, og börn þeirra Stefán Már, f. 1992, og Birna Sól, f. 1995. Sambýlis- kona Högna er Ingibjörg Gunn- arsdóttir, f. 1968, og þeirra börn Högni Gunnar, f. 2002, og Ás- björn Thor, f. 2007. b) Kristín, f. 1969, fyrrverandi eiginmaður Atli Björn Bragason, f. 1965, börn þeirra Sigurður Andri, f. 1998, og Sjöfn Ísabel, f. 2002. c) Hrafnhild- ur, f. 1982. 2) Droplaug, f. 1949, gift Áskeli Jónssyni, f. 1949. Börn þeirra eru: a) Hlynur, f. 1969, fyrrverndi eiginkona Berglind Soffía Björnsdóttir, f. 1968, þeirra barn er Ýmir Hrafn, f. 1996. Sonur Hlyns og Sigríðar Önundardóttur, f. 1969, er Hlyn- ur, f. 2010. b) Björk, f. 1975, gift Alfreð Harðarsyni, f. 1973, þeirra Fyrir tæpum 43 árum hitti ég Kristínu tengdamóður mína í fyrsta sinn. Þá eins og ætíð síðar mætti mér þetta hlýja og glaðlega viðmót sem einkenndi hana alla tíð og ég fann að ég var velkom- inn. Kristín ólst upp í Stykkishólmi á fábrotnu heimili eins og þau gerðust í þá daga. Hún missti föð- ur sinn ung og þurft snemma að fara að vinna fyrir sér. Við þessar aðstæður var þess ekki kostur að sækja sér menntun umfram þá skólaskyldu sem þá var. Ég er þess fullviss að Kristín hefði náð framúrskarandi árangri á menntabrautinni ef örlögin hefðu ætlað henni þá leið því hún var með afbrigðum minnug og skipulögð í allri framsögu. Margir, innan fjölskyldunnar sem utan, sóttu margvíslegan fróð- leik til hennar og komu þá sjaldn- ast að tómum kofunum. Ef innan fjölskyldunnar kom upp vafi um atburði, menn eða málefni þá var lausnin iðulega: „Spyrjum ömmu Kristínu, hún man þetta örugg- lega.“ En það er ekki nóg að muna hlutina, heldur þarf líka að hafa hæfileikann til þess að koma þeim frá sér og frásagnarhæfileikann hafði hún Kristín svo sannarlega. Þegar hún var að lýsa atburðum úr lífi sínu, ferðalögum, útvarps- þáttum, eða öðrum uppákomum var frásögnin svo lýsandi og hríf- andi að upplifunin varð eins og að hafa verið sjálfur viðstaddur. Það var ekki í anda Kristínar að trana sér fram í lífinu eða að vekja á sér athygli en þó var það nú svo að færi hún á mannamót þá lað- aðist fólk að henni og fyrr en varði var hún orðin miðdepill sam- kvæmisins. Það sama má segja þegar hún fluttist á Hrafnistu fyrir tæpum 11 árum. Þá hafði líkamlegri heilsu hennar hrakað verulega eftir áfall en andlegur styrkur stóð óhaggaður og fólk sóttist sem fyrr eftir samvistum við hana og var svo allt fram í andlátið. Kristín var góð og styrk eiginkona, móðir, amma og langamma og lagði rækt við sitt fólk og afkomendur. Við öll sem nutum hennar hlýju og glað- legu nærveru eigum um hana ljúf- ar og góðar minningar. Ég er þakklátur fyrir að fá að kynnast henni og njóta samvista við hana öll þessi ár. Áskell Jónsson. Kristín Margrét Sveinbjörns- dóttir var komin af útvegsbænd- um við Breiðafjörð. Hún óx upp í fátæku samfélagi. Fólk vann frá morgni til kvölds. Ekkert fjár- hagslegt öryggi. Ekki slíkt skjól, þegar að kreppti. Tryggingar ekki til. En fátækt fólkið var samheld- ið. Hver studdi annan. Á grasbýlinu Viðvík við Stykk- ishólm bjuggu foreldrar hennar, Sveinbjörn og Jóhanna, með tvær kýr, nokkur hænsni og fáeinar kindur. Húsbóndinn sótti sjóinn og smíðaði báta í skýli í fjörunni. Fór víða um sveitina og smíðaði. Fékk borgað í mat. Móðirin seldi egg í strandskipin og mjólk til heimilis, sem ekki hafði kú. Húsa- kynnin voru rök, köld. Sveinbjörn lést í desember 1931, rétt fertugur. Ekkjan var í Viðvík með yngri börnin tvö til vors 1932, en flutti þá að Dröng- um á Skógarströnd, til Ólafs, mágs síns. Nú var hún kaupakona í sveit. Árið 1935 var flutt suður. Kristín var 14 ára, hafði lokið skyldunámi. Hana langaði að læra meira, en það var ekki hægt. Hún varð að fara að vinna. Hún saumaði skerma í lampa- gerð á Þórsgötu 26, vann í Dósa- verksmiðjunni í Sænska frysti- húsinu við Arnarhól. Nóg var að gera á stríðsárunum við skúringar og þvott af hernum. Móðir hennar var í Þvottakvennafélaginu Freyju, skúraði á Skattinum og keypti Þjóðviljann til æviloka. Mæðgunum þótti vænt um grein- ar Árna Bergmann og Magnúsar Torfa. Tengdasonurinn kom sósí- alisti frá Svíþjóð, og mörg frænd- systkin urðu róttæk. Kristín gift- ist Pétri Sveinssyni, vélstjóra og rennismið. Hjá Kristínu, Jóhönnu ömmu, og Pétri, í Efstasundi var ég í fóstri í fjögur mótandi bernskuár. Þar átti ég líka athvarf seinna á unglingsárum. Þess minnist ég með gleði og þakklæti. Frá Efsta- sundi eru fyrstu bernskuminning- ar, um dorg frá bryggju og blendna ánægju með veiddan marhnút og óætan sandkola, firnaháa snjóskafla, barnalegan ótta við vistfólk á Kleppi, sem gekk með handapati og háværum einræðum, en Kristín breytti með útskýringum í varanlega samúð. Ég man Viggu, sem kom til Krist- ínar í kaffi líkt og kerlingar gerðu; hún átti börn og mann á Stokks- eyri. Einu sinni tók Vigga Sigurð, son Kristínar, og leiddi hann með sér inn á Klepp, en ég fór á eftir til að bjarga honum. Þegar við vor- um komin inn fyrir girðinguna, sótti Kristín okkur. Man skelf- inguna við lendingu Katalínuflug- báts á Ingólfsfirði sumarið 1947. Þar vann Pétur í síldarverksmiðj- unni á Eyri. Við Sigurður spók- uðum okkur mannalega um stað- inn og töluðum útlensku við barngóða Færeyinga: „allabattari fransí, biskví“ – tveimur árum áð- ur en prakkarasögur Hendriks Ottóssonar um Gvend Jóns og hann komu út. Við fengum beina- kex. Þá var þar mannlíf. Nú er allt í eyði. Um tíma bjuggu Kristín, Pétur og Jóhanna amma í kjall- aranum hjá okkur á Aragötu, og þar niðri leitaði ég skjóls. Kristín, móðursystir mín, bar höfuðið hátt. Yfir henni var reisn. Sviphrein yfirvegun. Einbeittur augnsvipur, íhugull, en gat verið fjarlægur, horfði þá inn. Engan annan hef ég þekkt með svo góða návist, og blessuð sé minning þín, fóstra. Helgi Björnsson. Nú er föðursystir mín Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir látin tæplega 96 ára að aldri. Alla tíð hefur hún sýnt mér elsku og um- hyggju. Þegar ég var barn bjó föð- uramma mín Jóhanna Sigríður í Nökkvavogi hjá Stínu og Pétri, þangað sóttist ég mjög eftir að koma. Ég var ekki há í loftinu þegar ég fór að fara ein þangað til að hitta ömmu og ekki síður frænkur mína Droplaugu og Þóru. Alltaf var tekið vel á móti mér. Þegar ég var unglingur var ég einn vetur í Vogaskóla, þann vetur fór ég oft í hádeginu til Stínu og naut ég þess bæði að fá hádeg- ismat og ekki síður að Stína gaf sér góðan tíma til að spjalla við unglinginn. Þarna styrktist vin- átta okkar sem ég hef notið alla tíð. Stína fylgdist alla tíð vel með þjóðmálaumræðunni, vakandi fyr- ir því sem var að gerast í kringum hana, hún las mikið og stálminnug fram á síðasta dag. Seinustu árin var líkaminn farinn að gefa sig, en hún tók því með ótrúlegu jafnað- argeði og kvartaði aldrei. Í rúm 10 ár hefur hún dvalið á Hrafnistu í Laugarási, þar fékk hún góða umönnun og eignaðist vináttu starfsfólksins. Við áttum þar yndislegar stundir saman sem við höfum báðar notið. Þar rædd- um við um allt milli himins og jarðar, bækur sem við vorum að lesa, hún lagði fyrir mig vísnagát- ur, við ræddum um það sem var að gerast í þjóðfélaginu, það nýj- ast í fréttum hjá stórfjölskyldunni og ekki síst hefur hún frætt mig um föðurfjölskylduna mína og uppvöxt sinn og pabba. Ég þakka fyrir þessar stundir. Fjölskyldu Stínu og pabba mínum votta ég samúð mína. Takk fyrir allt og allt. Jóhanna Sigríður Guðjónsdóttir. Ég vil með fáum orðum minn- ast rúmlega fimmtíu ára sam- fylgdar okkar Stínu. Við kynntust þegar ég nítján ára gömul giftist systursyni hennar, sem hún hafði fóstrað ásamt Pétri manni sínum um margra ára skeið eftir andlát systur sinnar. Mér þótti strax vænt um Stínu sem hafði mjög ljúfa nærveru og var með ein- dæmum hjálpsöm og indæl og vildi öllum vel. Hún var auk þess bæði létt í lund, skemmtileg og skarpgreind. Hún er líka eina manneskjan sem ég hef kynnst um ævina sem ég hef aldrei heyrt segja hnjóðsyrði um nokkurn mann. Ef einhver hallmælti öðr- um í hennar návist var nokkuð öruggt að hún benti á eitthvað já- kvætt í fari viðkomandi. Þau Pétur reyndust mér og börnunum mínum ávallt mjög vel og ekkert breyttist í þeim efnum þó við Helgi slitum samvistum. Þau Stína og Pétur ræktu vel samband við mína fjölskyldu. Þau komu í heimsókn til okkar þegar við bjuggum í Noregi og dvöldu um mánaðar skeið hjá okkur árið sem við bjuggum í Englandi. Fyrsta árið eftir heimkomu úr námi tók Stína að sér að aðstoða okkur Helga við heimilishald fyrir litla greiðslu. Við vorum þá bæði í nýjum störfum og með elstu dótt- ur okkar litla og alls óvön barna- stússi og ég veit ekki hvernig við hefðum komist af þá án hennar góðu hjálpar. Stína og Pétur voru ávallt þátttakendur í öllum helstu viðburðum í okkar fjölskyldu og þó við höfum hist sjaldnar hin seinni ár hefur sambandið aldrei rofnað. Þau ár sem ég bjó fyrir norðan kom ég alltaf á Hrafnistu í öllum bæjarferðum til að heim- sækja tengdaforeldra mína og sætti þá lagi að kíkja við hjá þeim Pétri og síðan Stínu eftir lát hans. Það var svo gott að hitta Stínu því hún var alltaf svo jákvæð og mér leið vel eftir að hafa kíkt við hjá henni. Þær heimsóknir voru fjarri því að vera neitt skylduverk, held- ur frekar tilhlökkunarefni. Ég leit við hjá Stínu nú síðast daginn fyrir Þorláksmessu og átti með henni góða stund. Þó hún væri augljóslega nokkuð máttfar- in vildi hún fá öll nýjustu tíðindi af börnunum mínum og fjölskyldu og sendi bestu kveðjur. Hún sagði mér tíðindi og sýndi mér nýjar myndir af sínum börnum og þeirra fjölskyldum og við spjöll- uðum um alla heima og geima. Ég sagðist ætla að koma við í janúar og sýna henni myndir af dóttur- dóttur minni sem þá yrði fædd. Ég hafði þó sterklega á tilfinning- unni að þetta væri kveðjustund og hún kvaddi mig líka af enn meiri elskusemi en endranær. Ég þakka að leiðarlokum kærri vin- konu fyrir einkar ánægjulega samfylgd. Ég votta Sigga, Drop- laugu, Þóru og þeirra fjölskyldum samúð mína. Hrefna Kristmannsdóttir. Amma mín hún Kristín Margét Sveinbjörnsdóttir er dáin 95 ára að aldri. Hún lifði merkilega tíma og ég segi oft að hún hafi haft að minnsta kosti tveggja heima sýn. Hún sleit barnsskónum á gamla Íslandi og lifði sín fullorðins ár á því nýja. Þegar amma óx úr grasi var Ísland, eftir margra alda kyrr- stöðu, að sigla inn í breytinga- skeið þar sem allt hraðspólast áfram á þann veg að það sem er nýtt, gott og flott í dag er orðið úr- elt og ónothæft á morgun, hent á haugana, í besta falli endurunnið eða gefið á nytjamarkað. Amma fæddist í Stykkishólmi árið 1921 í húsi þar sem hvorki var rafmagn, hiti né rennandi vatn, endurvinnsla var sjálfsögð, mat- urinn var borðaður og honum ekki hent eins og tíðkast í dag. Rollan var öll étin og heilinn líka. Amma minntist einu sinni á það hvað heilastappan hefði verið góð. Svo var það húsakosturinn sem hún ólst upp í. Þar sem engar vatns- lagnir liggja er að sjálfsögðu ekki salerni. Ekki alls fyrir löngu spurði ég ömmu: „Ekkert klósett? Fórstu þá á kamarinn?“ Hún svaraði um leið: „Kamarinn! Það var enginn kamar. Maður fór bara út og kannski niður í fjöru.“ Sjálfum hefur mér ávallt fund- ist ég eiga tveggja heima athvarf. Annars vegar í eigin heimahúsum og hins vegar hjá ömmu og afa, honum Pétri Sveinssyni sem var fæddur árið 1914 og lést árið 2004. Ég var svo heppinn að búa í sama húsi og amma og afi fyrstu átta ár ævi minnar. Ég bjó með foreldr- um mínum í kjallaranum og amma og afi bjuggu á miðhæðinni. Þótt ég byggi í kjallaranum þá bjó ég líka á miðhæðinni. Þannig upplifði ég það. Ég hafði tveggja heima sýn. Mitt nýja Ísland var kjallarinn og það gamla á hæðinni fyrir ofan. Báðir heimar voru frá- bærir en það var annar bragur á gamla Íslandi. Andinn sem sveif þar yfir vötnum var öðruvísi. Hann var yfirvegaðri og þar var frelsið meira og aðeins rýmra um mann í alla staði. Regluverkið var öllu strangara á nýja Íslandi. Þar þurfti að fara snemma að sofa, koma fyrr inn á kvöldin, engin undanþága veitt vegna sjónvarps- efnis sem bannað var börnum og þar þurfti maður líka stundum að borða framandi og bragðvondan mat. Mat sem gamla Ísland bauð aldrei upp á. Þar var allur matur góður og þar mátti líka sleikja diskinn en það þótti slæmur siður á nýja Íslandi. Á gamla Íslandi voru líka bakaðar pönnukökur sem voru svo góðar að maður át þar til maður ældi. Mikið er ég þakklátur fyrir þau forréttindi að hafa fengið að alast upp í tveimur heimum, þeim nýja og þeim gamla. Elsku amma mín, ég þakka þér af hjartans einlægni fyrir að hafa lagt þitt af mörkum við að ala mig upp og leiða mig til manns. Þú varst mér ávallt svo hjálpleg, góð og ástrík. Hlýrri manneskju hef ég ekki kynnst. Án þín hefði ég farið á mis við svo margt og væri þeim mun andlega fátækari. Hús þitt og hjarta var mér alltaf opið og fram á síðasta dag gátum við sest niður í ró og næði og rætt nýja tíma sem og löngu liðna. Hvíldu í friði, amma mín. Leiddu mína litlu hendi, ljúfi Jesús, þér ég sendi bæn frá mínu brjósti, sjáðu, blíði Jesús, að mér gáðu. (Ásmundur Eiríksson.) Hlynur Áskelsson. Kristín Margrét Sveinbjörnsdóttir Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Auðbrekku 1, Kópavogi Sverrir Einarsson Kristín Ingólfsdóttir síðan 1996 ALÚÐ •VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 www.utforin.is Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BRAGI ÓLAFSSON loftskeytamaður, fyrrum launafulltrúi og starfsmannastjóri hjá Ríkisskipum og Landhelgisgæslu, lést á hjúkrunarheimilinu Eiri mánudaginn 16. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 31. janúar klukkan 13. . Guðleif Hrefna Vigfúsdóttir, Ásdís Margrét Bragadóttir, Áslaug Bragadóttir, Ólafur Bragason, Sigþrúður Jóhannesdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA SIGURBORG THORLACIUS, Álftamýri 8, lést á Landspítalanum 17. janúar. Útförin fer fram frá Háteigskirkju fimmtudaginn 26. janúar klukkan 13. . Helga M. Jónsdóttir, Erling Árnason, Þorbjörg Jónsdóttir, Terry Gunnell, Ólöf Anna Jónsdóttir, Guðjón Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÞÓRÐUR VIGGÓ GUÐNASON vélsmiður, Skógarseli 43, Reykjavík, áður Álfhólsvegi 22, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 18. janúar. Útförin verður auglýst síðar. . Ragnheiður Tryggvadóttir, Tryggvi Þórðarson, Helga Ingibjörg Guðmundsdóttir, Lína Margrét Þórðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.