Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 21.01.2017, Blaðsíða 39
og hann starfaði í sendiráði Íslands. Halldór var fulltrúi í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu 1957 og í viðskiptaráðuneytinu 1957-62, síð- an deildarstjóri 1962-65, skrif- stofustjóri Landsvirkjunar 1965- 71, aðstoðarforstjóri 1971-83 og forstjóri Landsvirkjunar 1983-99. Halldór var ritari stóriðjunefndar 1961-64, varaformaður stjórnar SÍR, Sambands íslenskra rafveitna 1983-95 og síðan Samorku, Sam- bands raf-, hita- og vatnsveitna, til 1999. Hann sat í stjórn NORDEL, samtaka norrænna raforku- fyrirtækja, 1983-99, í stjórn lands- nefndar Alþjóðaverslunarráðsins á Íslandi 1983-90, í stjórn Markaðs- skrifstofu iðnaðarráðuneytisins og Landsvirkjunar 1995-98, í stjórn Fjárfestingarstofunnar 1998-2002 og var stjórnarformaður Hollvina- félags Lagadeildar Háskóla Íslands 1999-2002. Halldór hefur átt sæti í ýmsum nefndum um orkumál og ritað fjölda greina um orkumál. Halldór hlaut riddarakross Hinnar íslensku fálkaorðu 1970 og Grand Dukes of Luxemburg Order of Merit 1986. Eftir störf sín hjá Landsvirkjun hefur þeim Halldóri og Guðrúnu gefist aukinn tími til ýmissar tóm- stundaiðju svo sem í golfi í Flór- ída, að ógleymdum ánægjulegum dvölum í sumarbústað sínum í Grímsnesinu sem gefur Flórída ekkert eftir. Hæst ber þó fjölskyldulífið sem er þeim gjöfult og gæfuríkt. Fjölskylda Halldór kvæntist 3.5. 1958, Guð- rúnu Dagbjartsdóttur, f. 18.1. 1935, dóttur Dagbjarts Lýðssonar, f. 10.2. 1906, d. 9.7. 1957 og k.h., Jórunnar Ingimundardóttur, f. 29.1. 1911, d. 24.7. 2008. Börn þeirra Halldórs og Guð- rúnar eru 1) Dagný, f. 22.10. 1958, rafmagnsverkfræðingur, gift Finni Sveinbjörnssyni hagfræðingi en börn þeirra eru Guðrún Halla, rekstrarverkfræðingur, f. 25.2. 1984 gift Herði Kristni Heiðars- syni rafmagnsverkfræðingi, þau eiga soninn Heiðar Kára, f. 15.2. 2014, og Sveinbjörn iðnaðarverk- fræðingur, f. 30.3. 1989, í sambúð með Önnu Stefánsdóttur lækni; 2) Rósa, f. 25.8. 1961, tölvunarfræð- ingur, gift Vilhjálmi Þorvaldssyni, rafmagnsverkfræðingi og eiga þau þrjá syni, Halldór, hugbúnaðar- verkfræðing, f. 1.3. 1990, Ingi- mund, verkfræðinema, f. 4.2. 1994, og Þorvald Kára verkfræðinema, f. 11.3. 1997; 3) Jórunn, f. 8.10. 1962, byggingarverkfræðingur, og 4) Steinunn, f. 24.11. 1973, innan- hússarkitekt gift Raj Kumar Bonifacius viðskiptafræðingi, eiga þau fjögur börn, Rafn Kumar, f. 17.10. 1994, Ívan Kumar f. 23.4. 2002, Mikael Kumar f. 20.12. 2004 og Viktoría Inez f. 3.5. 2007. Halldór á tvær systur. Þær eru Bergljót, f. 11.4. 1935, gift Jóni Sigurðssyni lögfræðingi, eiga þau þrjú börn, og Sigríður, f. 18.4. 1937, en eiginmaður hennar var Þórður Þ. Þorbjarnarson, heitinn, borgarverkfræðingur og eru börn þeirra einnig þrjú. Foreldrar Halldórs eru Jónatan Hallvarðsson, f. 14.10. 1903, d. 19.1. 1970, hæstaréttardómari, og Sigurrós Gísladóttir, f. 9.11. 1906, d. 8.3. 1992, húsfreyja. Úr frændgarði Halldórs Jónatanssonar Halldór Jónatansson Guðrún Ásbjörnsdóttir húsfr. á Mið-Sýruparti og Réttarhúsum Sigurður Sigurðsson húsm. á Mið-Sýruparti og Réttarhúsum á Akranesi Halldóra Sigurðardóttir húsfreyja í Rvík Gísli Kristjánsson sjóm. frá Ánanaustum Sigurrós Gísladóttir húsfreyja í Rvík Kritstjana Ólafsdóttir húsfr. í Rvík Pétur Ó. Gíslason útvegsb. og bæjarfulltr. í Ánanaustum í Rvík Guðmundur Gíslason tómthúsm. og sjóm. í Ánanaustum í Rvík Gísli Pétursson héraðslæknir á Húsavík og Eyrarbakka Guðrún Vigdís Guðmundsdóttir húsfr. í Rvík Jakob Gíslason orkumálastj. í Rvík Sverrir Kristjánsson sagnfr., kennari og rithöfundur Guðbjörg Þorkelsdóttir húsfreyja á Skiphyl Jón Jónsson b. á Skiphyl Sigríður Jóndóttir húsfr. í Skutulsey Hallvarður Einvarðsson b. í Skutulsey á Mýrum Jónatan Hallvarðsson hæstaréttardómari í Rvík Halldóra Stefánsdóttir húsfr. í Skutulsey og í Hítarnesi Einvarður Einarsson b. í Skutulsey og í Hítarnesi Kristján Gíslasson tómthúsm. í Rvík Forstjóraskipti hjá Landsvirkjun Halldór og Friðrik Sophusson. ÍSLENDINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. JANÚAR 2017 Laugardagur 95 ára Sigríður Ingimundardóttir 90 ára Astrid Marita Garðarsson 85 ára Anna Sigurjónsdóttir Halldór Jónatansson Kristín María Heiðberg Svava Torfadóttir 80 ára Edda Guðmundsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Jónína M. Hermannsdóttir Ragnheiður Guðjónsdóttir Sigrún Björgvinsdóttir 75 ára Guðmundur Böðvarsson Kristmundur Guðmundsson Magnús G. Ólafsson Ólafía Magnúsdóttir Stefán Árni Tryggvason Þórólfur Pétursson 70 ára Gestur Halldórsson Guðmundur Örn Guðmundsson Guðný Harpa Kristinsdóttir Hörður Erlingsson 60 ára Alvilda Þóra Elísdóttir Árni Sveinbjörn Mathiesen Einar Víglundsson Erla Björg Eiríksdóttir Friðrik Sturlaugsson Guðrún Erna Magnúsdóttir Haraldur Marinósson Helgi Pálsson Hreinn Jónsson Hringur Hreinsson Lúðvík Karlsson Magnús Fannar Ingólfsson Páll Ingþór Kristinsson Rebekka Benediktsdóttir Sigríður Sigmundsdóttir Sigurbjörg Elimarsdóttir Tryggvi Sigurðsson Þorkell Arnar Ásmundsson 50 ára Árni Geir Snæþórsson Ebba Björg Húnfjörð Hafsteinn Þór Hilmarsson Hjörleifur Guðmundsson Hjörtur Sveinn Sveinsson Hrefna S. Bjarnadóttir Sverrir Guðmundsson Valur Einarsson 40 ára Agnieszka Kowalewska Arnar Snær Kárason Ástmundur Níelsson Björgvin Jónsson Edda Magnúsdóttir Gerður Björk Sveinsdóttir Hafdís K. Sveinsdóttir Helga Björg Arnardóttir Ingi Björgvin Sveinsson Jaroslaw Porzezinski Joanna Leokadia Wojtowicz Ragnheiður Magnúsdóttir Svetlana Anatolyevna Aksenova Vasyl Motrevych Þórunn H. Garðarsdóttir 30 ára Aleksandra Roszkowska Arnar Árnason Arnór Skúli Arnarson Árni Þór Skúlason Bjarki Friðriksson Björg Guðmundsdóttir Hálfdán Árnason Magdalena M. Wisniewska Pétur Örn Arnarson Sigurður Bjarni Sveinsson Snorri Berg Ægisson Sushma Shrestha Sunnudagur 90 ára Fjóla Ágústsdóttir Martha Sigurðardóttir 85 ára Áslaug Stephensen Helga Karlsdóttir Indriði Pétursson Randver G. Karlesson Sigríður Hjaltadóttir Sigurborg Helgadóttir 80 ára Anna Erla Magnúsdóttir Guðrún Einarsdóttir Haraldur Stefánsson Heiður Vilhjálmsdóttir Kapitola S. Jóhannsdóttir Kolbrún Þorsteinsdóttir Sigrún Ólöf Karlsdóttir 75 ára Björn Eymundsson Ebenezer Þ. S Sturluson Hafliði Ólafsson Kristrún B. Jónsdóttir Sigurjón Jónsson 70 ára Dagur Ásgeirsson Haraldur H. Jónsson Jóhanna Ragnarsdóttir 60 ára Anna Soffía Haraldsdóttir Árni Hansen Edda Hannesdóttir Erlendur Pétursson Hjördís Jónsdóttir Hrefna B. Júlíusdóttir Ingibjörg Gísladóttir Krystyna Maciejewska Ragna Finnsdóttir Sigríður Svava Rafnsdóttir 50 ára Arndís Heiða Einarsdóttir Ásta G. Guðbrandsdóttir Charles Robert Onken Ingibjörg Einarsdóttir Janusz Grzegorz Rogos Jóel Svanbergsson Karl Karlsson Markus Hermann Meckl Otgontsetseg Badam Priscila Zanoria Baldelovar Wieslaw Gajewski 40 ára Ásgeir B. Magnússon Ásgerður B. Bjarkadóttir Dóra I. Magnúsdóttir Elín Sveinsdóttir Elísa Joensen Creed Eva Björk Kolbeinsdóttir Harpa Lind Harðardóttir Ragnheiður Bogadóttir Roman Jarymowicz Thirumahal N. Gajendran 30 ára Anni Talvikki Rorke Arnar S. Gunnarsson Birgir Bachmann Konráðsson Birgir Urbancic Ásgeirsson Daniel Sam Clarkson Harley Edda Marín Einarsdóttir Fannar Vilhjálmsson Fjölnir Vilhjálmsson Friðgeir Jóhannes Kristjánsson Gylfi Víðisson Hafdís Betty Helgadóttir Kristín Ósk Matthíasdóttir Kristrún Una Thoroddsen Smári Bergmann Kolbeinsson Sævar Örn Gunnarsson Viggó Sigurðsson Til hamingju með daginn  Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir hefur varið doktorsritgerð sína í lýð- heilsuvísindum við Háskóla Íslands. Rit- gerðin ber heitið Skammtíma loftmeng- un í Reykjavík og heilsufarsvísar – úttektir lyfja, dánartíðni og komur á sjúkrahús. (Short-term air pollution in Reykjavik and health indicators – drug dispensing, mortality and hospital visits). Umsjónarkennari var dr. Þór- arinn Gíslason, prófessor við Lækna- deild Háskóla Íslands, og leiðbeinandi var dr. Vilhjálmur Rafnsson, prófessor emeritus við sömu deild. Ritgerðin er samantekt á þremur lýð- grunduðum rannsóknum sem birtar hafa verið í þremur vísindagreinum. Markmið þessara rannsókna var að skoða hugsanleg heilsufarsáhrif skammtíma útsetningar loftmengunar af völdum umferðar og jarðvarmavirkj- ana á íbúa Reykjavíkursvæðisins. Í grein I var tvíátta tilfella-víxlrann- sóknarsnið notað til að skoða samband- ið milli skammtíma útsetningar loft- mengunar og úttektar hjartalyfja við hjartaöng. Í grein II var tíma-lagskipt til- fella-víxlrannsóknarsnið notað til að skoða sambandið milli skammtíma út- setningar loftmengunar og dauðsfalla af náttúrulegum sök- um. Mengunar- þættir sem skoð- aðir voru svifryk sem er minna en 10 μm í þvermál (PM10), niturdíoxíð (NO2), óson (O3), brennisteinsvetni (H2S) frá jarðvarmavirkjunum og brennisteinsdíoxíð (SO2) (aðeins grein II). Í grein III var línuleg aðhvarfsgrein- ing (e. generalized linear model) notuð til að skoða sambandið milli skammtíma útsetningar H2S mengunar og innlagna og koma á bráðamóttöku á Landspítala Háskólasjúkrahús (LSH). Grein I sýndi að tveir umferðartengdir loftmengunarþættir (NO2 eða O3) voru tengdir við versnandi sjúkdómseinkenni þeirra sem þjást af hjartaöng, í formi út- tektar hjartalyfja. Greinar II og III gefa til kynna möguleg neikvæð heilsufarsleg skammtímaáhrif brennisteinsvetnis á heilsu manna, einkum ef 24 stunda meðaltal efnisins fer yfir lyktarmörkin, 7 μg/m3. Sambandið milli H2S og heilsu- farsbrests var sterkast yfir sumarmán- uðina og meðal karlmanna og eldri ein- staklinga. Ragnhildur G. Finnbjörnsdóttir Ragnhildur Guðrún Finnbjörnsdóttir lauk stúdentsprófi frá MH árið 2002. Hún lauk BSc-gráðu í líffræði frá HÍ árið 2007 og MSc-gráðu í umhverfis- og auðlinda- fræðum frá sama skóla árið 2010. Ragnhildur vinnur nú sem sérfræðingur í loft- gæðamálum hjá Umhverfisstofnun. Ragnhildur er trúlofuð Marinó Fannari Páls- syni og börn þeirra eru Rakel Júlíana, Ágústa Líf og Birgitta Lóa. Doktor TE & KAFFI NOTAR EINGÖNGU ÚRVALS KAFFIBAUNIR FRÁ BESTU RÆKTUNARSVÆÐUNUM, SÉRVALDAR OG BRENNDAR AF BRENNSLUMEISTARA. ILMANDI HLUTI AF DEGINUM Íslenskt fjölskyldufyrirtæki og framleiðsla síðan 1984

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.